Vikan


Vikan - 22.01.1970, Blaðsíða 16

Vikan - 22.01.1970, Blaðsíða 16
Hann hefði getað keypt hana og alla hennar fjölskyldu og borgað sjöfalt verð fyrir. Vald hans yfir henni var óvéfengjanlegt.... SMÁSAGA FRÁ INDLANDI EFTIR T. H. WHITE FURSTAYNJAN Það kom ekki oft fyrir, að furstinn keypti eitt eintak af nokkrum hlut. Af Rolls-Royce bifreiðum keypti hann jafnvel stundum hálfa tylft í einu. Þetta var lítill maður og gild- vaxinn, úteygur og augun kara- mellubrún, en fingurnir stuttir og gildir, brúnleitir og silkimjúk- ir. Hann hafði viðkvæmt hörund með smágerðum hrukkum. Hringarnir frægu voru sokknir í holdið. Hann var svitagjarn og þó ekki illa þefjandi. Alltaf fór klæðnaður hans ótrúlega vel. Þjónar hans sátu við það tím- unum saman, að bursta reiðstíg- vél hans af mikilli vandvirkni, og þrisvar á dag skipti hann um silkiskyrtur. Hann átti tuttugu og fjórar snyrtitöskur úr svína- skinni, fullar af krystalsflöskum með gulltöppum. í hár sitt notaði hann Rowlands Macassarolíu, en Kölnarvatn í vasaklútana. Þegar hann kveikti í vindlingi fyrir gesti sína, smellti hann upp gull- kveikjaranum, sem aldrei bilaði, með snoturri sveiflu. Reiðmaður var hann mikill að sjálfsögðu, og lék bæði póló og krikket, því hann hafði stundað nám við háskólana í Harrow og Cambridge. Hann var ekki í tölu hinna fremstu fursta, sem stað- hæft var að ættu fullar sundlaug- ar af perlum og gimsteinum. En hann átti nægilegt af skartgrip- um til þess að fylla venjulegt baðker upp á barma. Hann var snjall í vetraríþróttum og fimur að skjóta tígrisdýr af fílsbaki. Furstinn var örlítið rangeygð- ur á öðru auga og það var blár blettur á nefi hans eftir spreng- ingu. Hann var um fimmtugt að aldri. Þegar hann tók ofan vefj- arhöttinn, mátti sjá að hár hans var strítt eins og fax á hrossi. Furstafrúin, sem var seinni kona hans, var tuttugu og sjö ára. Hún var komin af miðstéttarfólki í Seattle og hafði verið skrif- stofustúlka. Hafði hún kvænzt honum til þess að geta orð- ið auðug hefðarfrú, — — og vegna þess að hún hélt að Ind- land væri eins og í Þúsund og einni nótt. En er stundir liður fram, gerðist hún leið á öllu þar í landi, og gat ekki stillt sig um að kvarta og kveina. Og nú var hún komin langt á leið. Hún var skelfingu lostin. Þau umgengust með brennandi hatri. Nú var rómantík samlífsins fokin út í veður og vind og hún fyrirleit ástaratlot hans, karde- mommueiminn, sem af honum lagði, fyrirleit litarhátt hans, fyr- irleit hann af því að hann bar ekki nægilega virðingu fyrir henni, af því hann var húsbóndi hennar og herra. Hún kveinkaði sér í innsta eðli, hvert sinn er brúnar hendur hans snertu hana. Hann hataði hana vegna þess, að hún auðmýkti hann. Hann hefði getað keypt hana og alla hennar fjölskyldu með, og borgað andvirði sjöfalt. Vald hans yfir henni var óvéfengjan- legt. En hann var brúnn á hör- und. Enda þótt telft væri fram baðkeri, fullu af gulli og gim- steinum, námi hans í Harrow og Cambridge og öllum hans for- feðrum, gegn miðstéttarfjöl- skyldu hennar, gat það ekki jafnað upp muninn á litarhætti þeirra. Til að byrja með, hafði hún ekki auðmýkt hann vitandi vits, — og þó hafði hún auðmýkt hann. Hryllingin, er hann sá í svip hennar, hvert sinn sem hún leit til hans, orkaði svo niðurdrep- andi á sjálfsvirðingu hans, að verra var en móðgun að yfir- lögðu ráði. Árið 1948 var Arbuthnot lækn- ir kallaður frá Bombay til þess 16 VIKAN 4-tb]-

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.