Vikan


Vikan - 22.01.1970, Blaðsíða 21

Vikan - 22.01.1970, Blaðsíða 21
Veggir „reykháfsins“ voru þaktir hálli bleytu og leðju og erfitt að fá þar hand og fótfestu. Eftir M Peters Teikning af Peak Cavern. Göngin niður úr hellisgólfinu til vinstri eru hinn frægi og illræmdi „reykháfur Satans“. atvinnu og hef heilarannsóknir fyrir tómstundastarf. í Englandi eru ég og mínir líkar kallaðir ,,moldvörpur“, vegna þess hve við sækjum í djúpa hella og göng undir sjávarmáli. ■— Ókei, sagði Carter. — ÍÉg gaf honum ríflegan morfín- skammt. Vona að þú getir þá bjargað honum. Ég tók nokkra vatnsteyga úr flösku, sem einhver rétti mér. Svo kleif ég varlega fram af holubarminum; undir var ekkert að sjá nema niðamyrkur. Hér efst var holan eitthvað níutíu sentimetra í ummál, svo að ég gat látið mig síga með fæturna á undan. En sums staðar voru göngin miklu þrengri, ekki meira en fjörutíu sentimetra, og ein- mitt þar sneru þáu upp á sig. Að innan voru göngin þakin slími og leðju. Ég átti erfitt með að fá nokkra festu fyrir hendur og fætur. Á einum stað rann mórautt vatn út um sprungu og að manninum, sem sat fastur undir niðri. Svo víkkuðu göngin og urðu rúmlega hálfur annar meter. Hér varð ég að snúa mér við og halda áfram með höfuðið á und- an. Annars hefði ég ekki komizt gegnum þrengslin fram undan. Öndunargríman mín — af sömu gerð og þær sem froskmenn nota — ýttist stöðugt til hliðar. Ég reyndi að loka fyrir súrefnið þangað til ég næði til Moss, en í þrengslunum náði ég ekki til ventilsins. Nú gat ég greint Moss í skin- inu frá ennislampanum. Ég var ennþá tíu metra frá honum, en Framhald á bls. 40. 4. tbi. VIICAN 21

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.