Vikan - 19.03.1970, Síða 7
varðandi frímúrararegluna. —
Hvers konar félagsskapur er
þessi frímúrararegla? Er þetta
leynifélag eða hvað er þetta? Eg
hef heyrt, að það sé mjög erfitt
að komast í regluna og að for-
tíð þeirra manna, sem æskja inn-
göngu sé rannsökuð gaumgæfi-
lega, áður en þeir eru teknir
inn. Hvers vegna?
Hvers vegna er þetta allt
svona leynilegt? Er ekki bannað
samkvæmt stjórnarskrá lýðveld-
isins íslands að halda fundi, sem
enginn, ekki einu sinni eigin-
konur þeirra manna, sem í þess-
ari reglu eru, fá neitt að vita
um?
Er eitthvað hæft í því, að
húsið, sem þeir halda fundi sina
í, sé svo rammbyggt, að það
standi af sér snörpustu jarð-
skjálftakippi, hörðustu loftárásir
og svo framvegis? Ef þetta er
satt, þá finnst mér ekkert at-
hugavert við að halda, að þarna
sé eitthvað gruggugt á ferðinni.
Setjum svo, að mig langaði til
að ganga í þessa reglu, hvað veit
ég þá um í hvað ég er að ganga?
Hvernig fara menn að því að fá
upplýsingar um regluna? Hvaða
skilyrði þurfa menn að uppfylla
til þess að fá inngöngu? Er þetta
aðeins fyrir þá, sem eru nógu
ríkir? Eða geta allir, hvaða at-
vinnu sem þeir stunda, gengið í
þennan félagsskap? Hvað segja
brunaeftirlitsmennirnir um það,
þegar húsið er svona ramm-
byggt? Er það ekki á móti lög-
unum um brunaeftirlit að hafa
hús svona rammbyggð?
Félagar í SVEPS.
Frímúrarareglan er ævagamall
félagsskapur. Hún á rætur sínar
að rekja allt til miðalda; var
upprunalega félag iðnaðarmanna
og þaðan er nafnið komið. En
með núverandi fyrirkomulagi
hefur reglan starfað allt frá átj-
ándu öld. Fað er rétt, að starf-
semi reglunnar er leynileg, en
ekkert launungarmál er, hverjir
eru félagar í henni eða hvar
fundir eru haldnir. Hins vegar
eru félagar innbyrðis bundnir
þagnarheiti með sérstökum eiði.
Ef bréfritari vill fá nánari upp-
lýsingar um frímúrararegluna,
getur hann flett upp í hvaða al-
fræðiorðabók sem er. Upplýs-
ingarnar hér að framan eru til
dæmis teknar úr Britannicu, sem
er nú víst til á öðru hverju
heimili hér á landi. Reglan er
fullkomlega lögleg, enda væri
hún ekki Ieyfð annars, og óhætt
er að fullyrða, að ekkert ósæmi-
legt athæfi fer fram á fundun-
um, sem haldnir eru í húsi regl-
unnar við Borgartún. Og húsið,
vel á minnzt! f sambandi við
það fer bréfritari heldur betur
villur vegar. Petta er gamalt iðn-
aðarhúsnæði, sem frímúrara-
reglan keypti en breytti innrétt-
ingunum. Það kann vel að vera,
að það sé rammbyggt og standi
af sér snörpustu jarðskjálfta-
kippi, eins og öll góð hús eiga
að gera, en það er þá ekki sök
frímúrarareglunnar. Ef bréfrit-
ari vill ganga í félagsskapinn,
ætti hann að skrifa frímúrara-
reglunni.
Hrútur og Jómfrú
Kæra Vika!
Getur þú sagt mér, hvernig
maður og kona eiga saman, þeg-
ar hann er fæddur í Hrútsmerk-
inu, en hún í Meyjarmerkinu?
Eg.
Því er verr og miður að þessi
merki eiga ekki sérstaklega vel
saman, að því er fróðir menn á
þessu sviði telja. Fólk í þessum
merkjum botnar sjaldnast hvorí;
í öðru, en að vísu er ekki úti-
lokað að samband þeirra geti
henpnazt ef kringumstæðurnar
veita þeim fáa eða enga aðra
kosti.
Feimin - en aðeins
viff hann
Kæri Póstur!
Mig langar til að snúa mér til
þín með vandamál, — þú ert
hvort sem er alltaf að ráða úr
slíkum málum fyrir einhvern.
Það er nú svo, að ég er hrifin af
strák og hef verið það lengi.
Gallinn er hins vegar sá, að ég
er svo skelfing feimin við hann;
veit ekki hvernig ég á að vera,
þegar hann talar við mig eða er
nálægt mér. Hvað á ég að gera
til að hætta þessari feimni? Yf-
irleitt er ég ekki feimin við fólk,
aðeins við hann. Um daginn var
hann eitthvað að fíflast við mig,
og ég sagði ofurlítið. sem ég sé
eftir að hafa sagt. Eg vil taka
það fram, að hann er með ann-
arri stelpu, og hann hefur ekki
yrt á mig, síðan ég sagði þetta.
Mér nægir að vera vinur hans
og tala við hann. Hvað á ég að
gera til að ná vinskap hans á ný?
Vertu blessaður, Póstur minn,
og þakka þér fyrir allt, gamalt
sem nýtt.
Ein úr Eyjum.
Feimnin bendir til þess, að þú
sért meira en lítið hrifin af hon-
um. Og hætt er við, að þér nægi
ekki til lengdar að vera vinur
hans. Fyrst hann möðgaðist við
þig vegna einhvers lítilræðis,
sem þú hefur sagt, bendir það til
þess, að hann sé eitthvað veik-
ur fyrir þér. Reyndu að hafa
samband við hann, í síma eða
einhvers staðar, þar sem þið er-
uð ein. Þar sem þú ert yfirleitt
ekki feimin, ættirðu að geta
harkað af þér og gættu betur
tungu þinnar framvegis.
BLÓMABÚÐIN DÖGG
er meðlimur í
Sendum um allan heim.
Blómabúðin selur S. A. og Funa keramik.
Allskonar gjafavörur.
Blóm og skreytingar.
Höfum í þjónustu okkar einn færasta
skreytingamann landsins, Ásmund
Jónasson, skreytingameistara.
BLOHABUDIH DÖCfi
Álfheimum 6 - Sími 33978
12. tbi. VIKAN 7