Vikan - 19.03.1970, Qupperneq 10
IMIGERIA
DAGUR ÞORLEIFSSON - SÍÐARI HLUTI
En íbóarnir tóku hvarvetna
forustuna í hinni nýju, brezk-
skóluðu Nígeríu, einkum á sviði
vísinda, tækni og atvinnurekstr-
ar. Þeir tóku að sér hvers kon-
ar störf, hversu sóðaleg eða erf-
ið sem þau voru, bara ef þeir
gátu þénað á þeim. Peningana
notuðu þeir oft til að mennta
sig, börn sín eða ættingja, eða
þá til framkvæmda í heima-
byggðunum. Samvinnuandinn,
sem frá fornu fari hafði ríkt í
hinum smáu og lýðræðislegu
samfélögum íbóa var virkjaður
í þessum nýju kringumstæðum
og hafði heillarík áhrif. Fjöldi
fbóa fluttist úr heimabyggð
sinni og settist að um alla Ní-
geríu, bæði sökum þess hve vel
þeim gekk yfirleitt að vinna sig
upp í samkeppni við aðra lands-
menn og eins vegna hins að fbó-
land er þéttbýlasta hérað Níger-
íu og rúmaði naumast alla fbóa.
Eftir ofsóknirnar 1966, er leiddu
til stofnunar Bíöfruríkis, flýði
fjöldi þessara útfluttu fbóa til
heimalandsins á ný. Sá aukni
mannfjöldi átti sinn þátt í því
hve hungursneyð varð fljótt al-
varlegt vandamál í landinu eftir
að tekið hafði verið fyrir sam-
göngur við önnur lönd.
Sem kunnugt er, skiptu Bret-
ar Nígeríu í þrjú sérstjórnar-
svæði, Norður-, Austur- og
Vestur-Nígeríu. Þessi skipting,
sem hélzt eftir að landið varð
sjálfstætt, átti sér marga van-
kanta. Hún var gerð með það
fyrir augum að geðjast stærstu
þjóðflokkunum, sem urðu ríkj-
andi hver í sínum parti, Hásar
og Fúlanar norður frá, Jorúbar
í vesturlandinu og íbóar eystra.
Minni þjóðflokkarnir, sem eru
óteljandi og telja tæpan helm-
ing allra Nígeríumanna, voru
með þessum hætti settir hjá og
undu því að vonum illa. Þeirra
tími átti eftir að koma síðar.
Sem fyrr er ritað komst
Vestur-Nígería fyrst svæðanna
þriggja í samband við Evrópu-
menn og naut þess á margan
hátt. Hvað félagsskipan snerti
höfðu íbúarnir þar verið nokk-
urn veginn mitt á milli Hása og
Fúlana annars vegar en íbóa
hins vegar; þeir höfðu komið
upp hjá sér ríkjum, sem voru
allvoldug með köflum og höfðu
yfirstéttir með tilheyrandi fag-
urmenningu, en voru engu að
síður miklu lausari í sér en rík-
in nyrðra. Bæði af efnahagsleg-
um og þjóðfélagslegum ástæð-
um þótti Bretum vesturlandið
hvað gæfulegast svæðanna
þriggja. Tvo síðustu áratugi ný-
lendutímabilsins naut Vestur-Ní-
gería og mikils uppgangs vegna
gróðavænlegs kakóútflutnings,
og þeirri búbót fylgdi stóraukin
menntun. Þar var komin upp
fjölmenn stétt embættis- og
þjónustumanna er var einhver
sú færasta í sínum greinum í
allri Afríku. Austur-Nígería átti
miklu meira undir högg að
sækja á sinni framþróunarbraut,
en um það leyti sem landið fékk
sjálfstæði stóð hún þó Vestur-
Nígeríu jafnfætis.
Maður hefði kannski getað
ætlað að þar sem menningar-
legar, þjóðernislegar og land-
fræðilegar andstæður innan
Suður-Nígeríu eru ekki ýkja
miklar, allavega ekki á afrískan
mælikvarða, að sunnlendingar
hefðu getað staðið saman í deil-
unum við norðanmenn, þegar
þær blossuðu upp. En úr því
varð ekki, og mun rígur milli
stjórnmálamanna Jorúba og íbóa
hafa valdið mestu þar um. Þess-
ir þjóðflokkar eru að ýmsu ólík-
ir. Jorúbar hafa orð á sér fyrir
að vera léttlyndir, fremur róleg-
ir í tíðinni og tækifærissinnað-
ir, en fbóar eru fyrst og fremst
taldir ötulir vinnuþjarkar og
selfmade-menn. Þegar spennan
í landinu óx milli íbóa og norð-
lendinga, urðu Jorúbar því tví-
átta og vissu ógerla hvern upp
skyldi taka. Þeir litu á sjálfa sig
sem réttborna til forustu í land-
inu og ekki að öllu leyti með
röngu; þeir höfðu haft allra Ní-
geríumanna lengst og víðtækust
kynni af evrópskri menningu og
bjuggu auk þess að nokkurri
for-evrópskri menningararfleifð.
Norðlendingana höfðu þeir til-
hneigingu til að líta á sem van-
þróaða afturúrkreistinga en íbóa
hins vegar sem óheflaða upp-
skafninga.
Hinn efnahagslegi uppgangur
suðurlandsins eftir síðara heims-
stríð ásamt fordæminu frá Gana
bætti mjög upp á sjálfstraust
Stjórnmálamanna þar, svo að
þeir mönnuðu sig upp í að
krefjast algers sjálfstæðis.
„Frelsisbarátta" þessi átti sér að
vísu grunnar rætur, þar eð þorri
almennings var áhugalaus um
hana með öllu, og varla tilkom-
in af miklu öðru en persónu-
legum metnaði stjómmálamann-
anna sjálfra. Forkólfar þessir
voru allflestir Jorúbar og fbó-
ar. Leiðtogar norðlendinga tóku
þessu nýmæli hins vegar með
mestu ólund, þar eð þeir óttuð-
ust að stjórnvöld sjálfstæðrar
Nígeríu yrðu líklegri til að
skerða forn séhréttindi þeSrra
en brezka nýlendustjórnin.
Bretar tóku vel í tilmæli sunn-
lendinga, þar eð þeim var ljóst
að þeir gætu áfram ráðið auð-
lindum landsins, þótt það héti
frjólst. Norðlendingarnir urðu
því að bíta í hið súra epli frels-
isins, en það gerðu þeir aðeins
með því skilyrði að sérstjórnar-
svæðin þrjú hefðu allvíðtæka
sjálfstjórn. Hefði ekki verið
gengið að þeirri kröfu, er trú-
legast að norðlendingar hefðu
annaðhvort myndað ríki út af
Víða um heim var aðförunum gegn Bíöfru mótmælt, þótt li.it'
velda, er stóðu að hakt Nígeríu. Þessl mynd er frá einnl slíkrl
Breitt yfir lík fallinna liðsmanna úr her Bíöfru. Hungur og skotfæralcysi bugaði þá að lokum.