Vikan - 19.03.1970, Side 16
NR. 5 TIL ÚRSLITA
uncn KvnsLonin
■: ■
GUftBIÖRG A.
VIKAN-
KARNABÆR
LJÖSMYNDIR:
SIGURGEIR SIGURJONSSON
HARMDSDÓTTIR
Guðb|örg er 16 ára, fasdd
23. ianúar 1954, yngst fjög-
urra barna Haraldar Gísla-
sonar, húsasmíðameistara, og
Sigríðar Björnsdóttur, Hraun-
teig 24 í Reykiavík. Hún er
171 cm á hæð, Ijósskolhærð
og bláeyg.
Hún er í 3. bekk alm.
deild Laugalækjarskólans, og
heldur mest upp á landa-
fræði, en danska er henni
minnst að skapi þó svo hún
sé ákaflega hrifin af Kaup-
mannahöfn, þar sem hún
kom þegar hún var 11 ára
gömul. I þeirri ferð heim-
sótti hún 16 lönd, þar á með-
al Alsír, Frakkland, Þýzka-
land og Feneyjar og fannst
það ágætt.
Þegar hún hefur lokið
gagnfræðaprófi hefur hún
hug á að fara í Handíða- og
myndlistarskólann eða þá í
gullsmiði. Þó er hún ekki
hrifin af teikningu í skólan-
um og segir það heldur leið-
inlegt sem þar er kennt.
Guðbjörg fer töluvert mik-
ið út að skemmta sér, og þá
helzt í Las Vegas eða Glaum-
bæ — þegar hún kemst þar
inn, en í fyrravetur fór hún
mest í Tónabæ.
Hún vinnur ekki á sumrin,
þar sem hún telur það of
erfitt að fá vinnu og svo er
hún þeirrar skoðunar að
sumarfrí eigi að vera sumar-
frí og notast sem slíkt.
Okurteisi og ti11itleysi er
það sem henni finnst helzt
óbótavant í fari ungu kyn-
slóðarinnar og jafnt hjá báð-
um kynjum.
☆
16 VIKAN 12-tbI