Vikan - 19.03.1970, Síða 44
Fæst
núna í fyrsta
sinni
úr ijósum
viöi
Loksins. Loksins eftir allt tekkiS: Pira-
System gefur ySur kost á aS lífga uppá
híbýli ySar. Ljósar viSartegundir eru
sem óSast aS komast í tízku. Framúr-
skarandi í barnaherbergi. SkrifborS úr
Ijósri eik. UppistöSurnar svartar eSa
Ijósgráar eftir vali. Smekklegt, nýtt,
margir uppröSunarmöguleikar.
Hvorki skrúfa
né nagli í vegg.
Ekkert annað hillukerfi
hefur þessa kosti.
Því ekki aS velja ódýrustu lausnina,
þegar hún er um leiS sú fallegasta.
LífgiS uppá skammdegisdrungann meS
Ijósum viSi. SkiptiS stofunni meS Pira-
vegg. Frístandandi. ESa upp viS vegg.
Bezta lausnin í skrifstofuna. Höfum
skápa, sem falla inní. BæSi í dökku og
Ijósu. KomiS og skoSiS úrvaliS og
möguleikana hjá okkur. Pira fæst ekki
annarsstaSar.
PIRA
Frábær lausn í
húsbóndaherbergið
EINKAUMBOÐ FYRIR PIRA-SYSTEM Á ÍSLANDI
HUSlBSKIP
Ármúla 5 - Sími 84415-84416
var eftir sem áður öllum
stundum heima hjá honum
og vakti enn meiri illdeilur.
Auk þess fór hún að kvarta
við nágrannana undan með-
ferðinni, og varð það til að
koma af stað alls konar slúð-
ursögum.
Jack vissi sjálfur um það
bil sem hann var að ljúka við
fyrstu skáldsöguna sína,
„Snædrottninguna“ að hon-
um hafði ekki tekizt vel upp.
I „Snædrottningunni" bólar
strax á tveim höfuðgöllum,
er kom svo greinilega fram
hvað eftir annað í seinni
verkum hans, en það er sú
skoðun hans, að engilsax-
neski kynstofninn sé öllum
öðrum kynstofnum betur
ger, og ennfremur livað hon-
um skeikar í lýsingum sínum
á þeim konum, sem ekki eru
af alþýðustéátt.
Á listanum yfir útgjöld
hans á milli jóla og nýárs má
sjá, að hann hefur lánað Jim
Whitaker peninga, að hann
varð að borga reikninga fyrir
vin sinn, sem hafði fótbrotn-
að á báðum fótum í umferð-
arslysi, að hann borgaðí
44 VIKAN 12- tbl-
gamla skuld fyrir Flóru, að
gamla negrakonan Jenny,
fósturmóðir hans, hefur
fengið lánaða hjá honum
peninga til að borga rentur,
afborganir og skatta af hús-
inu sínu, sem taka átti af
henni upp í gamla skuld, og
loks að hann hefur orðið að
neita einum vini sínum um
peningalán, af þvi að hann
varð sjálfur að fá lánaða
peninga til að greiða heimil-
isútgjöldin. Þar á ofan bætt-
ist svo, að Bessie átti von á
barni eftir eina viku.
Bessie segir, að hún hafði
haldið áfram að kenna alveg
þangað til morguninn, sem
barnið fæddist. Þegar hún
fann, að stundin var komin,
sendi hún eftir lækninum,
sem flýtti sér svo mikið, að
hann gleymdi svæfingarlyf-
inu heima. Jack var þá send-
ur af stað eftir flösku af
kloroformi, en á leiðinni
heim flýtti hann sér svo mik-
ið, að hjólið valt undan hon-
um. Flaskan brotnaði og
hann skar sig í hendina.
Fimmtánda janúar fæddi
Bessie átján marka stúlku-
bam og var lengi veik á eftir.
Jack gat ekki leynt vonbrigð-
um sínum, að það skyldi ekki
vera drengur.
Þó að McClure féllist ekki
á að birta skáldsöguna „Snæ-
drottninguna“ í tímariti sínu,
hélt hann þó áfram að senda
Jaclc 125 dollara á mánuði.
— Af þvi að ég er sjálfur
giftur og veit, að það kostar
peninga að kaupa kartöflur,
sendi ég yður hér með ...
slcrifar hann einu sinni. Und-
ir eins og Jack hafði lokið við
skáldsöguna, byrjar hann
aftur á smásögunum. Eftir
nokkrar vikur er honum far-
ið að þykja vænt um dóttur
sína, Joan, sem var mjög lík
honum. Jenny gamla flytur
til þeirra til þess að gæta
Joan á sama hátt og liún
hafði gætt föður hennar, er
hann var barn.
Jack London hefur sjálfur
viðurkennt, að ástæðan til
þess að hann giftist Bessie
Maddern hafi verið sú, að
hún mundi geta alið honum
sterk og hraust börn og þar
skjátlaðist honum lieldur
ekki. Ilann hafði gifzt henni
til þess að fylla upp í eyðu,
sem var í lífi þeirra beggja
og til þess að varpa þeim út
í hina öru hringiðu lífsins.
Og Bessie var í samræmi við
þá mynd. sem hann hafði
gert sér af henni. Hún var
trygglynd, ástúðleg, gáfuð og
fús til að hjálpa honum og
taka þátt i áhyggjum hans.
Hann var hamingjusamur
yfir þvi, að vera orðinn fað-
ir, og honum fannst hann
standa í mikilli þakklætis-
skuld við hana. En þegar
hann var þreyttur, gat þó
stundum komið fyrir, að
þessir eiginleikar Bessiear,
sem hann að öðru leyti mat
svo mikils, ergðu hann fram
úr öllu hófi. Hann var fjör-
mikill að eðlisfaxú, það brann
eldur i æðum lians, hann varð
að sökkva sér algerlega niður
í málefni augnabliksins,
fórna sér fyrir það, hann
varð að lifa ákaft og villt,
hefja sig fagnandi upp á
hæstu tinda gleðinnar og
steypa sér harmþrunginn
niður í yztu djúp örvænting-
arinnar. En Bessie gat ekki
fylgt honum á þessum flug-
ferðum tilfinninganna. Til-
finningalíf hennar var stöð-
ugt, kyrrt og óbifanlegt. Þessi
eðlismunur varð oft orsök til
óþægilegra árekstra.
Á slíkum stundum skrifaði
hann Önnu Strunsky, sem
hann liafði haldið sambandi
við og var mjög hrifin af.
— Hér sitjum við og söfnum
fróðleilc, flokkum, röðum
niður, skrifum drengjasögur,
lævíslega blandaðar siðapré-
dikunum, hömrum þúsund
orð á ritvélina á dag, kom-
umst úr jafnvægi út af lif-
fræðilegum vafaatriðum,
glettumst og hlægjum dálit-
ið, þegar við ættum að gráta.
En þetta getur þó ómögu-
lega verið allur tilgangur
lífsins? Skyldu nokkurntíma
hafa verið til tvær sálir, sem
eiga jafn illa saman og við?
Jack og Anna Strunsky
ákváðu að færa hugsanir sin-
ar og tilfinningar i letur og
gefa út sem bréf. Þau áttu að
heita „Kempton-Wace bréf-
in“, og var Jack Wace, en
Anna Strunslcy, Kempton.
Hún átti að verja ástina, sem
andlega uppsprettu, skáld-
legs eðlis, en hann átti að