Vikan - 19.03.1970, Qupperneq 49
grunað að sá framsóknar- og
mannúðarsvipur, sem stjórn Go-
wons setti upp, væri ekki ekta,
og sá grunur fékk byr undir
báða vængi við það að nýja
stjórnin gerði nákvæmlega ekk-
ert til að láta þá, sem ábyrgir
voru fyrir ofsóknunum norðan-
lands, sæta ábyrgð fyrir glæpi
sína. Giskað hefur verið á að
ástæðan til þessa aðgerðaleysis
hafi verið sú, að Gowon hafi
ekki þorað að fyrirskipa rann-
sókn á hrannmorðunum fyrir
hernum, en í honum höfðu Hás-
arnir nú tögl og hagldir og þeir
kærðu sig vitaskuld ekkert um
neina slíka rannsókn. íbóar voru
líka andvígir hugmyndinni um
tólffylkjakerfið, en í henni var
gert ráð fyrir að Austur-Níger-
íu yrði skipt í þrjú fylki, og
næði eitt þeirra yfir byggðir
íbóa, en hin tvö yfir lönd ann-
arra þjóðflokka austur þar.
Fram til þessa höfðu fbóar ráð-
ið lögum og lofum í Austur-
Nígeríu en með þessari skipan
mála hlaut aðstaða þeirra þar
mjög að veikjast.
Stjórn Gowons sýndi verulega
viðleitni til að mýkja íbóa og
bauð þeim meðal annars að
hverfa frá tólffylkjakerfinu, og
þótt Ojukwu, leiðtogi íbóa, virt-
ist um tíma hallast að samkomu-
lagi, þá varð sú ákvörðun ofan
á að halda fast við skilnaðinn
við Nígeríu. Þrítugasta maí 1967
var svo lýst yfir stofnun lýð-
veldisins Bíöfru, er ná skyldi
yfir allt það svæði sem áður var
Austur-Nígería. íbúar þessa
svæðis voru þá um tólf milljónir,
tveir þriðju hlutar þeirra fbóar,
en þriðjungur af ýmsum smærri
þjóðflokkum þeim skyldum, Ij-
aw, Ibibio, Efik og fleirum.
Byggðu þeir íausturhluta hins
nýia ríkis og sömuleiðis strand-
lengjuna, sem nú var orðin eft-
irsóttasti bletturinn í allri Níg-
eríu vegna olíunnar sem hafði
fundist þar. Olían réði áreiðan-
lega miklu um þá ákvörðun Oj-
ukwus og hans manna að lýsa
yfir sjálfstæði og jafnframt að
krefjast Austur-Nígeríu allrar,
enda hæpið að það hérað sem
íbóar sjálfir byggja hafi mögu-
leika til að standa á eigin fótum
sem ríki. Olían herti Nígeríu-
stiórn líka í þeim ásetningi að
sleppa Bíöfru ekki lauSri og
þessar sömu lindir, sem eru svo
tærar að hægt er að ausa úr
þeim beint á bílana, réðu mestu
um afstöðu þeirra aðila erlendra
sem stutt hafa stríðsaðila.
Að öllu samanlögðu verður
varla annað séð en málstaður
Bíöfrumanna í þessu stríði hafi
verið betri en andstæðinga
þeirra, þótt ekki væri skjöldur
þeirra hreinn. Bíöfrumenn héldu
því fram að ásetningur Nígeríu-
stjórnar, sem enn væri mjög
undir áhrifum norðlenskra
skuggaafla, væri alger útrýming
fbóa. Þótt fbóar hefðu fulla
ástæðu til að trúa þessu og hafi
efalaust margir gert það lengi
vel, þá höfðu þeir hér tvímæla-
laust rangt fyrir sér. Greinilegt
er að stjórn Gowons hefur engin
slíkt hryllingsverk í hyggju,
þvert á móti virtist hún frá upp-
hafi reyna að ná hylli íbóa á
svæðum þeim, er her hennar tók.
Og þótt misjafnlega agaður her-
mannalýður Lagosstjórnarinnar
hafi framið og fremji enn ótal-
in níðingsverk á óbreyttum
borgurum í íbólandi, þá er ekki
hægt að sjá að þar sé um skipu-
lögð fjöldamorð að ræða, og
raunar hefur stjórnin nokkra til-
burði til að hindra glæpsamlegt
atferli dáta sinna.
Hitt er svo annað mál að eftir
þær ofsóknir og svívirðu sem
íbóar, sá þjóðflokkur Nígeríu
sem langbest var fallinn til að
leiða hana inn í nýja tímann,
hafði orðið fyrir af löndum sín-
um, þá var erfitt að krefjast
þess af þeim að þeir hefðu nokk-
uð með svoleiðis fólk að gera
framar. Nígeríumönnum til máls-
bóta hefur því verið haldið fram
að ef íbóum hefði haldist þetta
uppi hefði mátt búast við að af-
leiðingin yrði upplausn í ger-
vallri álfunni, en flest ríki henn-
ar samanstanda líkt og Nígería
af fjölmörgum ólíkum þjóð-
flokkum og ættbálkum. Þessi
röksemd sýnist nokkuð ein-
strengingsleg. Flestir afrísku
þjóðflokkanna eru of fámennir
til að þeir hafi nokkra mögu-
leika á að verða sjálfstæð ríki,
en allt öðru máli gegnir um þá
sem eru orðnir á stærð við með-
alþjóðir í Evrópu, eins og raun-
in er á um stærstu þjóðflokk-
ana í Nígeríu. Ef einhver slíkur
þjóðflokkur vill fara eigin göt-
ur, er erfitt að neita honum um
það, einkum ef það kostar slík
ósköp sem orðið hafa í Bíöfru.
Einn dekksti bletturinn á
skildi fbóa er meðferð þeirra á
áðurnefndum minnihlutaþjóð-
flokkum Austur-Nígeríu. Fyrir
sjálfstæðisyfirlýsinguna höfðu
fbóar ráðið lögum og lofum í
fylkinu og ekki verið minni-
hlutaþjóðflokkunum of náðugir,
sett þá hjá um framkvæmdir og
þróunarhiálp. Minnihlutaþjóð-
flokkarnir kærðu sig því ekkert
um að verða með í hinu nýja
ríki og leist miklu betur á tólf-
f ylk j ahugmynd Nígeríustjórnar,
sem gaf þeim færi á aukinni
siálfstiórn. Þótt einstaka for-
ustumenn þessara þjóðflokka
hafi stutt Ojukwu (Effiong, síð-
asti æðstráðandi Bíöfruhers. er
þannig Ibibió), þá voru hinir
miklu fleiri sem andæfðu honum
eftir því sem til vannst. Vitað
er að Bíöfrustjórn barði öll mót-
mæli af hálfu minnihlutanna
niður með harðri hendi; þannig
drápu hermenn hennar við eitt
tækifæri allmargt manna af Ibi-
bio-þjóðflokknum, sem efnt
höfðu til andmælaaðgerða.
Þegar stríðinu lauk í janúar
siðastliðnum, hafði það staðið
BIBLÍAN - RIT HENNAR í MYNDUM OG TEXTA
er falleg myndabók í alþjóðaútgáfu og bezta ferm-
ingargjöfin sem völ er á. Hér er um aS ræSa nýstár-
lega túlkun á heilagri ritningu, sem fellur ungu
fólki vel í geð. Myndirnar, sem danska listakonan
Bierte Dietz hefur gert, eru litprentaSar í Hollandi,
en textinn er prentaSur hérlendis. Magnús Már
Lárusson, háskólarektor, hefur annazt útgáfuna og rit-
ar inngang og ágrip af sögu íslenzkra BiblíuþýSinga
frá upphafi. Þetta er vönduð og glæsileg mynda-
bók. sem hentar sérstaklega vel til fermingargjafa.
Fæst hjá næsta bóksala
HILMIR HF. SKIPHOLTI 33
PÖSTHÖLF 533 SÍMI 35320 REYKJAVÍK
BIBLÍAN
RIT HENNAR i MYNDUM OG TEXTA
TILVALIN FERMINGARGJÚF
12 *w VIKAN 49