Vikan - 16.04.1970, Blaðsíða 25
FISKUR í HLAUPI
Byrjið á að útbúa hlaupið. Það
má reikna með 12—14 blöðum af
matarlími I 1 I. af fisksoði, og er
mjög gott að setja örlítið vín í soðið.
Notið sem mest af fiskinum og
minna af soði.
Fyrir 4—5 manns þarf form, sem
tekur ca. 1 V4 I. 250 gr af soðnum
hreinsuðum fiski má reikna með að
sé nægilegt. Eftir að matarlímið hef-
ur verið leyst upp í soðinu er ör-
litlu af því hellt í formið og það
látið stifna. Þá er sett skreyting í
botninn og hliðarnar, munstur ef vill,
og notið það sem fyrir hendi er til
skreytingar. T.d. er fallegt að nota
nóg af steinselju eða dilli.
Síðan má nota rækjur, krækling,
krabba eða hvað sem hver og ein
húsmóðir kýs að bera í réttinn. Hellið
dálitlu af soði yfir svo skreytingin
festist. Síðan er fiskurinn settur í og
er bezt að nota heilagfiski, rauð-
sprettu eða silung. Síðan er soðinu
hellt yfir og látið stífna á köldum
stað.
Við framreiðsluna má skreyta
réttinni með blaðsalati, heilum asp-
as, sítrónubátum o.s.frv.
Berið piparrótarrjóma með eða
mayonese, ásamt ristuðu brauði og
smjöri, eða smjördeigstíglum.
Hér eru nokkrar uppskriftir af fínum fiskréttum, sem þýðir að mikið er í þá boriS og má ætia
þá gestum. Ágæt tiibreyting er að bjóða gestum upp á góðan fiskrétt í stað þess að bjóða alltaf
upp á kjöt.
FÍNIR FISKRÉTTIR
OFNBÖKUÐ
RAUÐSPRETTUFLÖK
MEÐ KRÆKLING
0G HUMAR
Fyrir 4 er reiknað með 12 litlum
rauðsprettuflökum (þ.e. hvert flak er
skorið að endilöngu). Rúllið flökun-
um upp og festið með tannstöngli.
Byrjið við þykkari enda flaksins.
Sjóðið í 6—8 mínútur í ósöltu vatni.
Færið þau þá gætilega upp og setjið
í eldfast fat. Búið til sósu úr fisk-
soðinu, (ásamt humar- og kræklings-
soði) rjóma og 3 eggjarauðum. Hum-
arinn og kræklingurinn er settur í
formið hjá fiskflökunum og sósunni
hellt yfir og kartöflustöppu spraut-
að fallega hringinn í kring um fat-
ið. Egg er gott að setja í kartöflu-
stöppuna og papriku. Fatið látið
vera í vel heitum ofni í ca. 15 mín-
útur eða þar til allt er orðið vel
gegnum heitt og kartöflustapparr
hefur fengið á sig lit.
16. tbi. VIKAN 25