Vikan


Vikan - 06.05.1970, Blaðsíða 20

Vikan - 06.05.1970, Blaðsíða 20
4 Á þessari mynd er sýnt með brúðu hvern- ig slysið ber að höndum. Það sýnir hve hættulegt það er að hafa hnappa á fötum barnanna, sem eru í netgrindum. Þessi mynd sýnir hvað kom fyrir Carmen litlu Scwer. Hún hékk á linappi á peysukraganum. MARGT BER AB VARAST Auglýsingapésinn sagði að þessar grindur væru til ör- yggis fyrir börnin, ekkert gæti orðið þeim að grandi í slíkri grind. Þessu trúði Lot- har Riedel, þegar hann keypti leikgrind handa syni sínum Uwe. Þrem mánuðum síðar lézt litli drengurinn í hræði- legu slysi, sem varð með þeim hætti að hnappur á peysunni hans festist í net- möskvum grindarinnar Þetta skeði á síðastliðnu ári, en nú er vitað um ekki færri en ellefu börn, sem hafa látið lífið á svipaðan hátt. Börnin hafa oltið um koll og eitthvað á fötum þeirra hefur orðið fast í net- inu. Öryggismálastjórinn Karl Brix, fór að hugsa um þetta mál, þegar hann frétti lát 13 mánaða gamals drengs, Stephans Schröder, sem lézt á þennan hátt. Hann, sem sjálfur er tveggja barna fað- ir, kom þá á fót, með aðstoð lögreglustjórans í Bremen, sýnikennslu og upplýsinga- fyrirlestrum, sem varðar ör- yggi smábarna. Þeir létu sýna með brúðum, hvernig slysin bera að og hvernig skuli varast þau. Þetta höfðu þau hjónin Lothar og Karin Riedel í Baden-Wiirtenburg ekki heyrt, þegar þau keyptu leik- grindina handa hinum litla syni sínum. Lothar segir: — Okkur fannst þetta einkar þægilegt tæki, mjög hentugt, vegna þess að það var hægt að leggja hana saman. Móð- ur hans fannst þetta líka; henni fannst svo auðvelt að 20 VIKAN 19. tbl. Þarna cr sýnt hvcrnig harninu varð bjargað með lífskossinum, blástursaðferðinni. Það getur munað broti úr sekúndu. Lothar og Karin Riedcl fara viku- lega, mcð eldri syni sínum, að gröf litla drengsins, sem lézt á svo vofciflegan hátt. | Uwe litli Kicdcl (í miðjunni) var sjaldan svona þungbúinn, eins og á þessari mynd. Hann var glaðiynt barn og uppáhald foreldra sinna. Umdæmisstjórinn Karl Brix í Bremen sá sjálfur barn, sem látizt hafði í leikgrind. Hann er umdæmisstjóri í öryggismálum, og segir aS mikla gát þurfi að hafa á börnum, sem höfð eru í slíkum grindum.... hafa auga með honum. En það var eitt einasta korter, sem hún leit af honum, og á þessu korteri lézt drengur- inn. Hnappur á peysunni hans hafði flækzt í möskva- netinu og drengurinn hékk fastur á hálsmálinu. Hinn örvilnaði faðir gerði allt sem á hans valdi s-tóð. Hann reyndi hjartahnoð og blásturaðferðina, en allt kom fyrir ekki. Læknirinn, sem sóttur var, sagði að það hefði verið of seint. Hjónin Gerlinde og Walt- er Schwer í Gerbach við Ulm, voru lánsamari. Dóttir þeirra Carmen, sem þá var ársgöm- ul, festi hnapp á kjólnum sínum í neti leikgrindarinn- ar. Móðirin hafði skroppið upp á loft, til að sækja eitt- hvað. Barnið hafði dottið og hékk á hálsmálinu. Gerlinde Scwer greip barnið, en vissi ekki hvað hún átti að gera. í því kom faðirinn inn, hann var í Rauða krossinum og hafði lært lífgunartilraunir. — Ég hélt að mér tækist þetta ekki, en ég gerði það sem okkur er kennt, að gef- ast ekki upp. Eftir að hann var búinn að blása 10—15 sinnum í munn barnsins, fann hann að lungun belgd- ust út. Barninu var bjargað á síðustu sekúndum. Síðan heí'ur Schwer, sem er málarameistari, notað öll tækifæri til að brýna fyrir fólki að gæta vel öryggis barnanna. Hætturnar leynast víða og aldrei of varlega farið.... 19. tbl VIKAN 21

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.