Vikan


Vikan - 06.05.1970, Blaðsíða 10

Vikan - 06.05.1970, Blaðsíða 10
„Yogafræðin kenna að með viðeigandi þjálfun, öndunaræf- ingum og réttu mataræði sé hægt að koma í veg fyrir hrörn- un líkamans allt að sjötíu og fimm ára aldri. Frá þrjátíu og fimm til sjötíu og fimm áttu að geta verið í toppformi.“ — Vikan heimsækir Heilsuræktina í Ármúla 14. Salurinn er fullur af körlum og konum á ýmsum aldri, sem öll eru önnum kafin við líkams- æfingar, er í augum óvaninga sýnast verulegar þrautir. Sumt af þessu fólki ér af léttasta skeiði, en það virðist í engu standa sig miður því, sem yngra er. Það fer í brú, gerir kóbru, stendur á höfði og svo framveg- is. í lokin vefja allir sig inn í teppi og slaka á. Bæði æfingarn- ar og slökunin fara fram sam- kvæmt nákvæmum og öruggum { Prófessor Yamamoto. Frú Jóhanna Tryggvadóttir, for- maður Heilsuræktarinnar, ásamt þjálf- urum. Jóhanna er Kodokan 1. dan í judo, en mjög fáar evrópskar konur hafa náð því stigi. fyrirmælum stjórnanda, og hið síðarnefnda minnir raunar mest á hugleiðslutíma hjá austrænum gúrú. Það er engin tilviljun. Við er- um stödd inni í Ármúla 14, í bækistöð Heilsuræktarinnar, sem frú Jóhanna Tryggvadóttir veitir forstöðu. Sjálf stjórnaði hún æf- ingunni, sem við vorum við- stödd, en hún var fyrir þjálfara Heilsuræktarinnar. Aðalþjálfar- arnir eru átján, en samtals eru þau þrjátíu og sex sem annast þjálfun og ýmis önnur störf fyr- ir Heilsuræktina. Ótaldir eru þá margir stuðningsmenn, sem veita ómetanlegan tæknilegan og mór- alskan stuðning. Þjálfararnir kenna síðan hver sínum flokki það sem Jóhanna hefur kennt 4 Prófessor Yamamoto segir aldur og stærð engu máli skipta í judo; íþrótt- in sé mjög góð þjálfun fyrir fólk á öllum aldri. Hér glímir Jóhanna Jón- asdóttir, fimm ára, við Nönnu Ólafs- dóttur. þeim. Æfingakerfið er byggt upp úr judo og yoga nokkurn veginn til helminga af hvoru. Til skýr- ingar mætti geta þess að yoga hefur verið skilgreint sem sam- tengingarvísindi, en í judo er lögð áherzla á hámarksnýtingu hugar og líkama. — Að lokinni slökunarstund fengum við tæki- færi til að ræða við Jóhönnu og nokkra aðra þjálfara. — Þú ert höfundur að þjálf- unarkerfinu, Jóhanna? — Ég er ekki höfundur að einu eða neinu; þetta er einung- is fróðleikur sem hefur komið til mín, sem mér hefur verið lán- aður. Ég hef haft áhuga á yoga- fræðum síðan ég man eftir mér. Ég geri ráð fyrir að ég sé fædd með þessu. — Hvað er langt síðan þú byrjaðir með Heilsuræktina? — Það eru nú rúm tvö ár síð- an. Ég hafði þá sjálf lengi iðkað þessi vísindi og þjálfað mig eftir þeim, með svo sér- staklega góðum árangri, að ég gat með engu móti hugsað mér að sitja með þetta ein og láta enga aðra njóta þess, sem ég hafði lært. Svo að ég byrjaði á þessu. Margir nemendanna voru fólk, sem lítillar eða engrar slíkrar þjálfunar hafði notið áð- ur og var því eðlilega stirt og stíft. Mér fannst ég því þurfa að þróa sérstakt æfingakerfi, sem hentaði þvi. Eftir mikla yfirveg- un fór ég að blanda saman því, sem ég hafði numið í judo og yoga. Um judo er rétt að taka fram að þessi fræði hafa verið mjög mistúlkuð hér á Vestur- löndum. Það er langt í frá að það sé eingöngu glíma. Það judo sem við kennum er Kodokan -4P- l»arna eru Jóhanna og Nanna, sem cr 4. kyu í judo, í gólfglímu. Jó- hanna hefur náð kyrkitaki og armlás. judo, en í því felst andleg, sálar- leg og líkamleg þjálfun og sjálf glíman kemur ekki fyrr en í fjórða lagi. Þar er megináherzl- an lögð á þolgæði í vörn, það að gefast ekki upp. Judovísindum fylgir gífurlega mikil agaþjálfun, ef þau eru rétt kennd. Unglingar, sem njóta réttrar judofræðslu blómstra jafnt andlega og lík- amlega, fá sjálfstraust og mik- inn dugnað og þrótt. Það sem mér þykir mest um vert við ÞRÐ GR LIST Hfl LIFH 10 VIKAN 19-tbl- Þjálfarar og stuðningsmenn Heilsuræktarinnar á sólaræfingu. Æfing þessi miðar að því að halda hrygg og mænu heilbrigðum og hlcður sólarplexus, sem er ein aðalorkustöð likamans. -qp- Prófessor Yamamoto, kodokan 5. dan og auk þess viðskiptafræðingur að mcnnt, þjálfar kvennaflokk judodeildar Ármanns þrisvar í viku. Eins og allir aðrir þjálfarar Hcilsuræktarinnar þjálfar hann endurgjaldslaust á vegum hcnnar. Frú Guðrún Magnúsdóttir, ein af ömmunum duglegu i hæsta aldurs- flokki Heilsuræktarinnar, að liðka sig. 1S. tbl. viXAN 11

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.