Vikan


Vikan - 06.05.1970, Blaðsíða 7

Vikan - 06.05.1970, Blaðsíða 7
Nú vill hann fá ... Kæri Póstur! Ég þakka þér fyrir allt gamalt og gott. Ég vona að þú getir hjálpað mér úr vandræðum mín- um. Ég er sextán ára og er búin að vera með sama stráknum í hálft ár, hann er nítján ára. Nú vill hann fá að lifa með mér og ég get vel hugsað mér að leyfa honum það. En ég vil ekki barn strax. En fæ ég þá „pilluna“ hjá einhverjum lækni? Og hvaða læknis á ég helzt að fara til? Vertu nú blessaður, Póstur minn, og ég vona að þú svarir mér fljótt og enga útúrsnúninga, því þetta er ekkert grín. Solla. P.S. Ég er alveg ofsalega hrif- in af honum. Og ég veit að hann er mjög hrifinn af mér líka. — Það er alveg öruggt aff þetta er engin skólaást. Pilluna færðu ekki nema sam- kvæmt læknisráði, en hins veg- ar áttu aff geta snúiff þér til hvaffa læknis sem er meff þetta vandamál. Sheikh of Araby Kæri Póstur! Við erum hérna nokkrar stúlk- ur í skóla úti á landi. Okkur langar til að fá upplýsingar vegna greinar einnar sem birt var í Vikunni fyrir nokkru. Greinin fjallar um Abdallah, sjeik í Kuwait. Okkur langar til að fá að vita hvernig hægt væri að komast í samband við sjeik þennan í Arabíu. Fjórar háfættar og Ijóshærðar. P.S. Hvers konar manngerð getið þið lesið út úr skriftinni? Bréf frá ykkur til Abdallah sjeiks í Kuwait myndi trúlegast skila sér ef þiff skrifuffuð utan á þaff sem svo: His Royal Highness Sheikh Abdallah, Kuwait. — Rithandarsérfræðingur okkar telur skriftina bera vott um ró- lega og trausta skapgerff — þótt undarlegt kunni aff virffast. Verðandi flugstióri og ritst'óri Kæri Póstur! Ég er tólf ára og hef ákveðið að verða flugmaður — og rit- stjóri hjá blaði. Ég hef verið að hugsa um að senda þeim manni sem er yfir hjá varnarliðinu á Keflavíkurflugvelli bréf, en þá veit ég ekki hvert ég á að senda það. Nú ætla ég að biðja þig, Póstur minn, að segja mér hvert á að senda það. Einn verðandi flugstjóri. (Vona að þetta bréf lendi ekki i ruslafötunni). Viff gerum ráð fyrir aff bréfiff kæmist til skila ef þú stílaffir þaff á Iceland Defense Force Head- quarters, Keflavík Airport. RitgerSarsamkeppni Kæri Póstur! Ég hef nú ekki skrifað þér áð- ur, en vona að þetta bréf lendi ekki í ruslakörfunni. Mig langar til að spyrjast fyrir um hvar ég gæti fengið greinargóð svör við eftirfarandi spurningum: 1. Siglingar íslendinga fyrr og síðar. 2. Staða fiskiðnaðarins í þjóð- félaginu í dag. 3. Þýðing fiskveiða fyrir fs- lendinga fyrr og síðar. Spurull. Svör við þessum spumingum fær maffur eingöngu meff því aff kynna sér efniff frá öllum hliff- um og þá helzt meff lestri. En eitthvaff held ég aff þú misskiljir þetta allt saman — og lielzt er ég á því aff þú hafir ætlað aff sleppa „billega“ út úr skólarit- gerff. Draumadís? Kæri Póstur! Ég hef alltaf ætlað að skrifa þér en ekki komið því í verk fyrr. Ég er skotinn í stelpu en hún býr anzi langt frá mér, hún er þremur árum eldri en ég. Mig hefur stundum dreymt hana, ég kynntist henni í sumar sem leið. Svaraðu mér sem fyrst. Einn sem bíður og vonar. Þó mér sé ekki fullkomlega ljóst hverju ég á aff svara, tel ég þó líklegt aff þú viljir komast í sam- band viff stúlkukindina. Hringdu í liana, skrifaðu henni effa farffu hreinlega til hennar og tjáffu henni hug þinn. Væntanlega er hún sama sinnis nú, annars ger- ir hún aldrei nema aff neita þér. — Það er kominn tími til að þú farir að hugsa um þak yfir höf- uðið á mér! Mömmu finnst það vera leikur að þvo með C-ll það er bæði ódýrt og gott segir hún avKita&t e^ttc {rty'it'i pc*&ttavé£<vi bakteriueybandi Þér soariO meO áskriít UIKAN Skipholti 33 - sími 35320 i9. tw. VIKAN 7

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.