Vikan


Vikan - 06.05.1970, Blaðsíða 29

Vikan - 06.05.1970, Blaðsíða 29
I Meðal íslenzkra leik- húsverka sem sýnd voru leikárið 1966—‘67 var Hornakórallinn, mjög at- hyglisverður framúr- stefnuleikur eftir Odd Björnsson. Hér sjáum við Þóru Friðriksdóttur og Róbert Amfinnsson í hlutverkum Móðurinnar og dr. Krátans. Frá 1962—‘63 er mörgum minn- isstætt Andorra, magnað verk \ og hrollvekjandi eftir Svisslendinginn Max Frisch. Á myndinni eru Lárus Pálsson, Guðbjörg Þorbjarnardóttir og Gunnar Eyjólfsson í hlutverkum læknisins, móðurinnar og Andra. 4 Meðal margra góðra gesta á sviði Þjóðleikhússins var Ballets USA undir stjórn hins heimsfræga dansmeistara og leikstjóra Jerome Robbins, sem sýndi þar haustið 1959. Myndin er úr einu viðfangsefni ballettsflokksins, Síðdegi skógarpúkans, sem gert er við tónlist eftir Debussy. Það sama leikár var fyrst sýndur í Þjóðleikliúsinu Kardemommubærinn eftir Thorbjörn Egner, sem varð lang- vinsælasta barnaleikrit hússins til þessa og meðal þeirra verka þess, er mestrar aðsóknar hefur notið. Hér eru þeir Baldvin Halldórsson, Bessi Bjarnason og Ævar R. Kvaran í hlutverkum ræningjanna þriggja, sem náðu geysivinsældum meðal yngstu kynslóðar leikhúsgesta og raunar fleiri kynslóða, og Jón Sigurbjörnsson í hlutverki rakarans. 1966—‘67 var Marat/Sade Pet- ers Weiss eitthvert athyglis- verðasta sýningarverk leikhúss- ins, og fór Róbert Arnfinnsson þar með hlutverk de Sades markgreifa og brást áhorfend- um ekki frekar en endranær. — Á myndinni má einnig sjá Sigurð Skúlason, Margréti Helgu Jóhannsdóttur, Baldvin Halldórsson og fleiri. Horfðu reiður um öxl eftir John Osborne, sem sýnt var leikárið 1958—‘59, vakti verð- skuldaða athygli. Myndin er af Kristbjörgu Kjeld og Gunn- ari Eyjólfssyni í hlutverkum Alison og Jimmys Porter.

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.