Vikan - 09.07.1970, Page 3
28. tölublaS - 9. júlí 1970 - 32. árgangur
í dansskólahúsnæði að Laugavegi 178 kemur
Tízkuþjónustan saman öðru hverju og
æfir fyrir tízkusýningar. Það er sú
þjónusta sem þessi samtök veita undir stjórn
Maríu Ragnarsdóttur, sem meðal annars hefur
starfað við sýningarstörf í Danmörku í
- fjögur ár. Við brugðum okkur á
æfingu hjá Tízkuþjónustunni í vor og segjum
frá heimsókninni í máli og myndum.
Það getur verið skemmtilegt og skapar
oft heillandi andrúmsloft að bera fram eitthvað
nýtt fyrir gesti, sem koma í heimsókn.
I Eldhúsi Vikunnar, sem Dröfn H.
Farestveit, húsmæðrakennari, annast verður
nú sagt frá svalandi drykkjum, og á það vel
við á þessum tíma ársins. Þeir eru flestir án
alkóhóls, en skapa þrátt fyrir það
skemmtilega stemningu.
Indíánarnir í Brasilíu lifa eins og steinaldar-
menn í frumskóginum. Er hægt að
þröngva upp á þessa ættflokka lifsvenjum,
sem við köllum menningu og höfum
verið að þróa í þúsundir ára? I þessu blaði
birtum við skemmtilega giein, sem segir
frá ferð Joan og Edward Jackson til eyjar-
innar Bananal fyrir utan strendur Brasilíu.
I ÞESSARI VIKU
I NÆSTU VIKU
„Það var barið að dyrum og steinar komu
fljúgandi úr lausu lofti.
Og eitt sinn kom vasahnífur þjótandi og
festist í kassa". Þessir atburðir gerðust
á bæ einum í Svíþjóð í fyrrasumar.
Hjónin sem þar bjuggu voru staðráðin i að
flytja þaðan vegna reimleikanna,
þar til miðillinn Astrid Gilmark kom til
skjalanna og leysti gátuna.
Listahátíðin, sem haldin var hér i sumar-
byrjun, er ugglaust einn merkasti atburður,
sem hér hefur gerzt lengi. Einn af ótal-
mörgum þáttum hennar var útisýning
höggmynda á Skólavörðuholti. Þetta er þriðja
sýningin, sem þar er haldin, en allar
hafa þær vakið óskipta athygli. I næstu
Viku birtum við svipmyndir af hinum
skemmtilegu og nýtizkulegu verkum
sýningarinnar.
Maó formann er óþarft að kynna, en ekki
er víst að mönnum hafi áður verið
kunnir heimilishagir hans og einkamál. í
næsta blaði segjum við frá
hjónaböndum hans og heimilislífi og ýmsu
öðru skemmtilegu, sem ekki hefur áður verið
á allra vitorði um Maó formann.
FORSÍÐAN Það er komið hásumar, þótt ekki hafi mikið farið fyrir blessuðu
sólskininu, þegar þetta er ritað. En vonandiá forsiðan vel við, þegar hún birtist i blaðinu.
í FULLRI ALVÖRU
UNGA ÍSLAND.
Urslitin í skoðanakönnun Vikunnar benda til þess
að ísl. unglingar séu almennt róttækari í mörg-
um málum en menn hafa viljað álíta. Þvi hefur
oft verið haldið fram að hinir róttæku meðal
unglinganna séu aðeins fámennur hópur, en
mikill meirihluti þeirra hægfara eða ihaldssamur
þótt „þögull" væri.
Samkvæmt úrslitum skoðanakönnunarinnar
vantar ekki að unga fólkið hafi trú á landinu
sínu, svo að hvað það snertir er ekki hægt að
sjá að þjóðinni hafi farið aftur frá aldamótun-
um. Unga ísland í dag á það líka sammerkt með
vormönnum aldamótaáranna að það hefur litla
trú á stjórnarvöldum landsins. Ungmenni nú-
timans virðast ekkert slakari i fordæmingu sinni
á núverandi valdhöfum en aldamótamennirnir
þegar þeir réðust gegn danska nýlenduvaldinu
og selstöðubröskurunum. Hinu vísar skoðana-
könnun þessi eindregið á bug að æskan í dag
vilji hliðra sér hjá ábyrgð og sé að gagntakast
kæruleysi í hippastíl, eins og oft heyrist haldið
fram. Þvert á móti töldu flestir þeirra, sem spurð-
ir voru, að æskan myndi stjórna landinu betur en
núverandi valdhafar, þegar hennar tími kæmi. Og
mikill meirihluti aðspurðra var alveg óragur við
að hefja virka þátttöku í opinberum málum. Einn
lét að vísu fylgja þann fyrirvara svari sínu við
spurningunni um stjórnarhæfni æskunnar, að þvi
aðeins væri hún líkleg til að gera betur en nú-
verandi ráðamenn að hún næði völdum fyrir
fertugsaldur.
Þessi fyrirvari er síður en svo út í hött. Stað-
reyndin er sú með flesta að þótt þeir kunni að
vera nokkuð róttækir og lifandi i andanum árin
kringum tvítugt, þá þurfa þeir að skólagöngu
lokinni ekki nema fá ár til að eldast og sljóvg-
ast, verða hugsunarlítil og áhrifalaus tannhjól
t vél þjóðfélagsins, hvers ranglæti þeir reiddust
meðan glæður æskunnar voru ekki kulnaðar.
Með tilliti til þessa er sérstök ástæða til að hvetja
ungt fólk til að taka sér hlutdeild i völdunum
meðan það er ennþá ungt. I stað þess að láta
gamlingjana svínbinda sig i pólitískum samtök-
um sem háð eru núverandi stjórnmálaflokkum á
æskan að skapa sér vígstöðu í eigin stjórnmála-
samtökum, óháðum þeim pólitísku báknum sem
stjórnað er af mönnum, sem flestir hafa að
minnsta kosti einn eða tvo áratugi um fertugt,
fyiir utan það svo að vera margir hverjir enn
meiri fornleifar í andanum en aldurinn beinlín-
is gefur til kynna. dþ.
VIKAN
Útgefandi: Hilmir hf. Ritstjóri: Gylfi
Gröndal. Blaðamenn: Dagur Þorleifsson, Matthildur
Edwald og Ómar Valdimarsson. Útlitsteikning: Hall-
dóra Halldórsdóttir. Auglýsingastjóri: Sigríður Ól-
afsdóttir. — Ritstjórn, auglýsingar, afgreiðsla og
dreifing: Skipholti 33. Símar 35320 — 35323. Pósthólf
533. Verð í lausasölu kr. 50,00. Áskriftarverð er 475
kr. fyrir 13 tölublöð ársfjórðungslega, 900 kr. fyrir
26 tölublöð misserislega. — Áskriftargjaldið greiðist
fyrirfram. Gjaldd. eru: Nóv., febrúar, maí og ágúst.
28 tbi. VIKAN 3