Vikan


Vikan - 09.07.1970, Blaðsíða 27

Vikan - 09.07.1970, Blaðsíða 27
UMSJÖN: DRÖFN H. FARESTVEIT, HÚSMÆÐRAKENNARI Sherrydrykkur 1 Itr. mjólk '/2 fl. sherry 4 msk. sykur 150 gr. saxaðar möndlur . vanillustöng 2 eggjarauður Sjóðið mjólkina hægt með van- illustönginni og möndlunum og lát- ið standa dágóða stund. Eggjarauð- urnar þeyttar með sykri og víni. Síið mjólkina og þeytið ca. V2 hennar í eggjablönduna. Hellið eggjablöndunni síðan saman við það sem eftir var af mjólkinni og hitið upp að suðu, en látið ekki sjóða. Stráið örl. af múskati yfir í hvert glas. ÞaS getur verið skemmtilegt og skapar oft heillandi andrúmsloft að bera fram eitthvað nýtt. Hér eru t.d. ýmsir drykkir, flestir án alkóhóls, en þrátt fyrir það, skapa notalega „stemningu". 26 VIKAN 28’ tbl Brasilíusúkkulaði V2 Itr. heit mjólk vanillusykur ef vill 50 gr. suðusúkkulaði 2 msk. sykur (ögn af salti) Kanell á hnífsoddi V2 Itr. sterkt kaffi Bræðið súkkulaði og sykur í heitu kaffinu. Setjið sjóðandi mjólkina í. Bragðið til með kanel og vanillu- sykri eftir smekk og ef til vill meiri sykri. Appelsínusúkkulaði 1 kúfuð tsk. kakó ca. 21/2 tsk. sykur vatn safi úr einni appelsínu engifer sítrónuhýði appelsínuhýði Sykur og kakó hrært út með vatni (eins og þegar kakó er útbúið). Suðan aðeins látin koma upp. App- elsínusafanum bætt í. Hitað aftur en má alls ekki sjóða. Bragðað til með engifer og gfösin skreytt með sítrónu- og appelsínuhýði. 1. Fata Morgana Hellið 2 msk. af lime-djús (fæst í dósum) yfir nokkra ísmola og bæt- ið V2 flösku af gosdrykk á, t.d. sítróni, pommac eða einhverjum þessháttar drykk. Setjið lítinn á- vaxtabita í, t.d. ananasbita. V2 app- elsínusneið og gjarna nokkur vín- ber í. Skreytið glasbarminn með sítrónusneið. Ef vill má setja nokkra dropa af gin eða vodka saman við. 2. Alexander-kaffi 1 dl. nougatfs 1/2 dl. mjólkursúkkulaði 1/2 dl. ískalt kaffi Þetta er allt hrist saman. Isinn er bezt að mósa með gaffli. Nokkr- ir dropar af konjaki framhefja bet- ur bragðið. En því má að sjálfsögðu sleppa. 3. Kakódraumur 1 dl. rjómabland 1 dl. vanilluís 2 dl. Coca cola Þetta er allt hrist saman. Nægir í 1 stórt glas eða 2 minni. 4. Júlídrykkur Setjið V2 sítrónusneið í glas og setjið 1 dl, af hvítvíni á, gjarnan hálfsætt. Setjið 2—3 ísmola í glas- ið og fyllið með Hi-spot eða kínín- vatni. 5. Eftirlætisdrykkurinn 1 dl. af jarðarberjaís er blandað saman við nokkur jarðarber og ca. 1/2 dl. af gosdrykk, t.d. sítróni. Fyllið síðan glasið með sama gos- drykk um leið og drykkurinn er borinn fram. 6. Rauði rúbíninn 1 dl. vfnberjasafi (djús) og 1 dl. rauðvín (eða rósavín). Setjið í 4 glös og fyllið síðan með sætum gosdrykk eftir yðar höfði. 7. Gamall vinur Safinn úr V2 sftrónu 1 dl. rautt vermouth dál. hi-spot eða kfnínvatn örl. rifið sítrónuhýði Þessu er öllu blandað saman, og hellt á nokkra ísmola. 8. Illusion Setjið sykurmola á botn í glasi og nokkra dropa af sítrónusafa. Kreistið safa úr 1 stórri appel- sínu og hellið saman við. Fyllið síðan glasið með ísköldu alkóhól- lausu víni, Gravensteiner eða þess háttar. Einfalt en gott. 9. Öl með sítrónu Hellið nokkrum dropum af lime- djús (mesta lagi 2 msk.) í stórt glas og fyllið síðan með fsköldum pilsn- er. 28. tbi. VIKAN 27

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.