Vikan


Vikan - 09.07.1970, Blaðsíða 18

Vikan - 09.07.1970, Blaðsíða 18
DREKAEÐLURNAR LFANDl STEINGERVNGAR Steingervingar eru sem kunnugt er leifar dýra, sem nú eru löngu útdauð. Víða um heim hafa fundizt lilutar úr beinum, einstök hein og jafnvel lieilar beinagrindur dýra, sem lifðu hér á jörð- inni fyrr á öldum. Feril þessara dýra geta vísindamenn nú rakið i jarðlögum allt að tvö hundruð milljón ár aftur í tímann. Víða á söfnum erlendis getur að líta beinagrindur þessara dýra og Iirikaleg stærð þeirra vekur strax at- hygli. Stærstu risaeðlurnar voru tugir tonna að þyngd og liæð þeirra varla minni en 10—15 metrar. Þessar risa- eðlur töldust allar til skriðdýranna og þótt krókódilar og slöngur þyki flest- um nógu stór, þá er stærð þeirra aðeins lítilræði í samanburði við jæssa forfeð- ur þeirra. Lengi vel var álitið, að jiessi dýr væru með öllu útdauð, en öðru hverju í seinni tíð, hefur komið í ljós, einkum á af- skekktum stöðum, að þau eru enn til, j)ótt stærð þeirra sé ekki hin sama og áður var. Og til eru þeir, sem vilja álíta, að skrímslin, sem menn þjdvjast verða varir við í vötnum um allan heim, séu að öllum líkindum lifandi eftirlegu- kindur frá tímum hinna risavöxnu skriðdýra fornaldarinnar. Einna merkust hinna lifandi stein- gervinga er drekaeðlan á eyjunni Ko- modo, sem er smáeyja í eyjakeðju Það er tilkomumikil sjón að sjá drekaeðlu eta hræ. Hún slítur stór kjötstykki af beinunum og á augabragði hverfa þau ótuggin niður í maga hennar. 18 VIKAN 28- tbl-

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.