Vikan - 09.07.1970, Blaðsíða 48
FRÆGDIN EYBILAGOI
HAMINGJU
HENNAR
Fyrir nokkrum mánuðum sagði Nyree Dawn
Porter:
— Þetta er mjög erfitt, ég sit og bíð. Ef ég
væri ekki svona hamingjusöm í hjónabandinu,
væri þetta alveg óbærilegt.
Nyree Dawn Porter hefir oft kvartað undan því
að hún þekkist allsstaðar. Hún hefir alltaf viljað
hafa einkalíf sitt í friði. Hún hafði verið gift í
ellefu ár, leikaranum Brian O'Leary frá Nýja Sjá-
landi. Vinir þeirra hafa sagt að þau hafi alltaf ver-
ið mjög hamingjusöm og ánægð í hjónabandinu.
En nú fyrir skömmu varð Nyree Dawn Porter
fyrir mikilli sorg. Maðurinn hennar lézt á slysa-
legan hátt. Nyree varð að koma fyrir dómstólana
og greina frá einkalífi sínu, sem hún hafði alltaf
frekar viljað halda leyndu. Hún hafði hjálpað
manni sínum, eftir að hann hafði fengið tauga-
áfall. Hann hafði verið drykkjumaður og verið á
hæli fyrir drykkjusjúklinga. En hann var kominn
vel yfir það, og hafði fengið atvinnu sem
skemmti-kraftur á skemmtiferðaskipi. Bréfin frá
honum báru vott um það að honum liði vel og að
hann væri ánægður með starfið. Þegar hann kom
heim til London, var hann mjög þreyttur og sagð-
ist ætla að sofa reglulega vel út . . . En þegar
brotizt var inn í herbergi hans, var hann látinn,
hafði tekið svefntöflur ofan í viský. Líklega hefir
hann ekki vitað um hættuna, sem er því samfara,
sögðu dómararnir.
Milljónir karlmanna um allan heim dáðu hana
í hlutverki Irene. Hún var draumakonan, kynþokki
hennar sérstakur, sögðu þeir.
I mörg ár hafa milljónir manna, allt frá Hon-
kong til Mexikó og frá Uruguay til Finnmerkur,
flýtt sér heim á vissum tímum, til að fylgjast með
vandamálum þeirra Irene og Soames Forsyte.
Framhaldsþættirnir eru nú sýndir í fjórða sinn í
BBC.
En hver og hvað er Irene? Nyree Dawn Porter
segir: — Aðdráttarafl Irene liggur í því að hún er
allt í öllu, — eiginkona, ástmey, undirgefin,
ástríðufull og líka nokkuð léttúðug.
Ef ég hefði verið í sporum Irene Forsyte, gift
manni, sem ég hefði andúð á og því síður elsk-
aði, og verið uppi á þessum tímum, hefði ég gert
nákvæmlega það sama og Irene.
Það er mjög auðvelt fyrir okkur að dæma kon-
ur í þessum kringumstæðum. En hugsið ykkur
hvernig lífið var fyrir fátækar stúlkur á þeim
tímum, stúlkur, sem hvorki höfðu nokkur fjárráð
eða ættingja. Þær hljóta að hafa verið eins og
mýs í gildru.
Nyree Dawn Porter kom til Englands frá Nýja
Sjálandi í lok fimmta tugarins, til þess að leika í
reynslukvikmynd, en af því varð aldrei. Hún fékk
nokkur hlutverk á leiksviði og lítil sjónvarpshlut-
verk. En hún var ekki heppin. Hún varð líka
veik, fékk gulu og áverki í baki, tók sig upp En
svo kom Saga Forsyteættarinnar.
Hún segirsjálf að líklega hefði hún getað orðið
ein af ríkustu konum í London, ef hún hefði vilj-
að nota sér vinsældirnar til að koma sér inn í við-
skiptalífið. En síðar komu erfiðir dagar.
— Irene hafði einhvernveginn skriðið inn í
mig. Mér voru boðin ýms hlutverk, en ég gat
ekki ákveðið mig. Eftir að hafa haldið til í sjón-
varpssalnum allar þessar vikur, var ég svo fegin
Framhald á bls. 45.
Frægðin, sem hún hiaut,
fyrir leik sinn, sem Irene í
Sögu Forsyteættarinnar,
stóð í vegi fyrir því að hún fengi
góð hlutverk...
48 VIKAN 28- tbl-