Vikan


Vikan - 09.07.1970, Blaðsíða 13

Vikan - 09.07.1970, Blaðsíða 13
-A- María Ragnarsdóttir stjórnar Tízkuþjónust- unni. er Iiér enn. Sú reynsla, sem ég öðlaðist erlendis, var mér ákaflega dýrmæt, og mér finnst það vel þess virði fyrir áðra að reyna það. — I rauninni lærir maður ákaflega lítið í þessum skólum, annað en undir- stöðuatriðin. Svo þegar maður kemur út í sjálft starfið, þarf að fara að keppa við önnur módel, þá lærir maður, og ekki hvað minnst af þeim sem maður er að keppa við. Þá eru kröfurnar erlendis svo margfalt meiri, að vísu hef ég ekkert nema Norðurlöndin til að bera saman við, en hér er fólk almennt ekki farið að gera sér grein fyrir bví hvað tízkusýn- ing er. Það er ekki litið á þetta, yfirleitt, sem auglýsingu, heldur sem skemmti- atriði. — Ef ég mætti ráða þá yrðu tízku- sýningar að kvöldi til, og þá á dans- leikjum, útilokaðar. Tízkusýningar eiga að vera á eftirmiðdögum, gjarnan sunnu- dögum, og þá kemur fólk til að horfa á nýjustu tízkuna í það og það skiptið, en ekki til að drekka og horfa á skemmti- atriði sem fara fyrir ofan garð og neðan hjá fjöldanum. — En það kostar töluvert að vera módel, miðað við þau laun sem við höf- um. Fyrir hverja sýningu fáum við 1100 krónur, og þegar við erum búnar að borga það sem við þurfum að borga, hárgreiðslu, leigubíl fram og aftur og oft á tíðum sokkabuxur — jafnvel skó — þá er ekki svo ýkja mikið eftir. Og UID EIGIim DB SELJD ÞDÐ sim um súnum „stofnkostnaður“, ef svo má segja, er mikill, því við þurfum að eiga gott skó- „safn“ og svo verðum við hreinlega að vera vel klæddar og fylgjast vel með því sem er að ske í tízkuheiminum. Það er ætlast til þess af okkur og við gerum það ósjálfrátt sjálfar líka. — Við eruin ekki í góðri aðstöðu til að fara fram á kauphækkun, því það er jú geysilega dýrt fyrir framleiðendur og kaupmenn að ráða módel til að sýna fyr- ir sig. Ekki það að þeim finnist of mik- ið að borga hverri stúlku 1100 krónur fyrir sína vinnu, heldur að það er dýrt að ráða fimm eða sex stúlkur til að sýna, en þeir komast tæplega af með minna. En sem betur fer eru framleiðendur alltaf að gera sér betur og betur grein -V- Þessi þrjú eru að æfa stellingar. 12 VIIvAN 28 tbl- fyrir því hversu gífurleg auglýsing það er fyrir þá að sjá vöruna á lifandi mann- eskju í stað þess að nota dautt herðatré. Annað sem ég gleymdi í sambandi við stofnkostnaðinn, er að við þyrftum lika að eiga að minnsta kosti eina hárkollu og' einn topp. Við verðum að geta sýnt hvað sem er — og alltaf verður það að fara okkur jafn-glæsilega, sem að vísu er allt mátað og atlmgað áður en við sýnum. María hefur verið að leiðbeina stúlk- unum — og herrunum — á meðan lnin hefur talað við okkur; ein þarf að ganga María litla Jóhannsdóttir er ekkert feimin t og vekur alltaf kátínu, þegar hún æfir sig. Kolbrún Sveinsdóttir er ein af sýningarstúlk- | unum. hægar, önnur hraðar og þar fram eftir götunum. Uti í horni er glymskratti og þau sem bíða dilla sér rólega i takt við músikina, Hér á landi eru starfandi tvenn sam- tök, auk 'rízkubjónustunnar eru til „Módelsamtökin“, sem er stjórnað af Pálínu Jónnnmdsdóttur. Það kann að virðast einkennilegt að hér séu starfandi tvenn samtök, með meira en 60 módel- um, íyrir ekki stærri markað en þann sem hér er um að ræða. María er ekki á sama máli: Ég held að það skapi heilbrigða sam- keppni, sem ég tel nauðsynlega. Við höf- um að vísu eitthverja samvinnu, við höfum sama verð á okkar sýningum, en það er líka allt og sumt. Jú, sennilega gætu bæði við og Módelsamtökin hækk- að verðið, en þá veit ég ekki hvað fram- leiðendur gerðu. Sennilegast þykir mér að þeir myndu einfaldlega labba út á götu og fá einhverjar lmggulegar stúlk- ur til að sýna fyrir sig. — Ástæðan fvrir því að hér eru tvenn samtök starfandi er einfakllega sú, að þegar Módelsamtökin voru stofnuð fyr- ir nokkrum árum hafði ég ekki áhuga á að vera með. Svo datt mér það í hug i fyrra að ég ætti að byrja með eigin samtök, svo ég gerði það. Þetta er ekk- ert annað en tómstundastarf — það lifir. enginn á því á íslandi að vera módel. Fengjum við 1100 krónur nettó, myndi þetta borga sig fjárhagslega, en við lít- um ekki á þetta frá fjárhagslegu sjónar- miði. Framhald á bls. 45. Ásta Benny Hjaltadóttir og Heiðar Jónsson stilla sér upp fyrir Ijósmyndarann. 28. tbi. VIKAN 13

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.