Vikan


Vikan - 09.07.1970, Blaðsíða 30

Vikan - 09.07.1970, Blaðsíða 30
HEYRA MA Cþó lægra tátij ÖMAR VALDIMARSSON ^Hljómplötu gagnrýni Trúbrot Fyrir tæpum hálfum mánuði kom út fyrsta tveggja laga stereo-hlióm- plata hljómsveitarinnar Trúbrot, og með henni hafa þeir enn á ný sett sig efst allra skapandi hljóðfæraleikara ungu kynslóðarinnar á íslandi. Bæði lögin eru eftir gítarleikarann, Gunnar Þórðarson, og er ekki hægt að segja annað en að mikið er að eitthvað „skeði" á íslenzkri hljóm- plötu; einhvernveginn er ekki hægt að bera þessa plötu saman við tveggja laga plötu Oðmanna, sem kom út fyrr á þessu ári. Lagið sem ég setti ósjálfrátt á A-hlið heitir ,,Ég sé það", og er bæði lag og texti eftir Gunnar Þórðarson. Það er höfundurinn sem syngur, ásamt þeim Rúnari Júlíussyni og Shady Owens. Raddirnar eru í fullu jafnvægi og samræmi hver við aðra, og hljóðfæraleikur mjög góður. Gunnar Þórðarson hefur fyrir löngu sýnt það að hann er í hópi okkar beztu gítarleikara, og tekst honum vel að samræma hraða, tækni og melódíska áferð, eins og bezt sést í enda lagsins hinum megin. Gunnar Jökull Hákonarson er með skemmtilegri trommuleikurum, og það er í rauninni hann sem hefur átt hvað stærstan hlut í því tempói sem hefur einkennt hljómsveitina mest síðan hún varð til fyrir ári síðan; nokkurskonar staccato-taktur. í hinu laginu, „Ég vil að þú komir", leikur Jökull á bongótrommur og hvílík hrynjandi. Rúnar Júlíusson gerði textann við hitt lagið ! sameiningu við Gunnar Þórðarson, og þó textinn verði seint settur í skólaljóðabækur má telja hann athyglisverðan, fyrir það að í honum kemur fram lífsskoðun, sem er orðin mjög útbreidd meðal poppkynslóðarinnar: Ég vil vera til . ." Meiningin er sú að manneskjan sjálf hafi mest gildi. Rúnar er í stöðugri framför sem bassaleikari og fléttar leik sinn lipurt inn í heildar- hljóðfæraleikinn Karl Sighvatsson hefur lengi einbeitt sér að því að læra að þekkja sitt hljóðfæri orgelið, og er tæplega hægt að þræta fyrir það sem haldið hefur verið fram: Að hann sé „undrabarn" á sitt dýra og góða Hammond- orgel. Það er mikill kraftur í því sem hann gerir og hversu „ruglings- lega" sem leikur hans hljómar, er hver einasta nóta úthugsuð. Shady er eina virkilega poppsöngkonan sem Islendingar hafa átt, en nú er hún á förum til Bandaríkjanna, og er það mikið tjón. Verst er þó að hún syngur með áberandi erlendum hreim, og kemur það mun betur í Ijós í laginu „Ég vil að þú komir", en það syngur hún ein. Shady hefur þel fyrir því sem hún gerir og hún kann að syngja. í enda lagsins „Ég sé það" er heilmikið hænugagg — og meira að segja tekur Andrés Önd þátt í því sem er að gerast. Þetta mun eiga að vera ádeila: Valdhafarnir gagga og góla skoðanir sínar inn í fólkið þar til allir rjúka upp og segja: — Já, auðvitað. Við sjáum það öll. Það er góðs viti að þetta fólk, sem gegnir svo mikilli ábyrgð gagnvart samborgurum sínum og jafnöldrum er farið að taka til máls, bæði í tón- um og tali. Flautuleikur Gunnars Þórðarsonar í „Ég vil að þú komir" er leikandi léttur og fellur sérlega vel við bongótrommuleik Jökuls. Ekki er plata þessi fullkomin, en þó er hún boðleg á hvaða markaði sem er, og hún hefur sýnt það að Trúbrot á framtíð fyrir sér á erlendri grund. Pressun er með því allra bezta sem heyrst hefur, tóngæði frábær, og plötuumslag, sem er unnið af auglýsingastofunni Argus og prentsmiðj- unni Grafík, úr tillögum frá Trúbrot, mjög einfalt og mjög skemmtilegt. 30 VIKAN 28-tbl- Rifjað upp það helzta sem komið hefur fyrir hljómsveitina alræmdu, Trúbrot, á eins árs afmælinu. Á föstudaginn var, þriðja júlí, átti hljómsveitin JRÚBROT eins árs afmæli. Okkur þótti tilheyra að minnast þess á einhvern hátt, svo það varð úr að við rifjuðum upp það sem helzt hefur á daga þeirra drifið í sameiningu við meðlimi hljómsveitarinnar, og þar af þau tvö sem nú eru hætt, Karl og Shady. Það vita allir hver var ástæðan fyrir stofnun hljómsveitarinnar: — Við vildum skapa góða tónlist, sagði Gunnar Þórðarson. — Til að byrja með gekk það mjög vel — en svo datt það einhvernveginn uppfyrir, og við höfum ekki haldið okkur nægilega vel við efnið. Sjálfsagt eru skiptar skoðanir um þetta manna á meðal — og einnig innan hljómsveitarinnar — en rétt- ast er sennilega að taka árið fyrir samkvæmt fornri hefð:

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.