Vikan


Vikan - 09.07.1970, Blaðsíða 31

Vikan - 09.07.1970, Blaðsíða 31
JÚLÍ: Fyrsti dansleikurinn var haldinn í Sigtúni, fimmtudagskvöldið 3. júIí, og var troðfullt hús. Það er erfitt að seg|a hvort það var hljómsveitin eða áheyrendur sem biðu með meiri eftirvæntingu, en móttökur urðu m|ög góðar, og mun betri en með- limir hljómsveitarinnar höfðu átt von á. Aðfaranótt sjöunda júlí hélt svo hljómsveitin til New York, þar sem hún var ráðin til að leika í ,,Witch End"-klúbbnum í Yonkers um þriggja vikna skeið. ,,Witch End" er lítill klúbbur og ekki mjög þekktur, en rétt áður en hljómsveitin hætti fór nafn þeirra að ganga manna á meðal, og undir lokin hafði .þeim tekist að ná metaðsókn, við mjög góðar undirtektir. I New York komst hljómsveitin i samband við umboðsskrifstofu sem gerði við þau samning um að koma til Bandaríkj- anna og leika þar inn á hljómplöt- ur, á hljómleikum og i sjónvarps- þáttum, en enn sem komið er hefur ekki tekizt að útvega atvinnuleyfi, svo ekki er gott að segja hvað verður úr þeim málum. í lok júlí komu þau svo heim, og segist Gunn- ar Jökull hafa verið því einna fegn- astur, því honum hafi ekki þótt neitt „sérstakt"; Karli og Shady þótti hinsvegar ferðin mikið ,,upplifelsi". Það er ef til vill rétt að taka það fram að hljómsveitin lék ekki út allan tímann sem hún var ráðin, og er ástæðan sú að um einhverskonar samningsrof eða misskilning var að ræða frá hendi framkvæmdastjóra klúbbsins, og að auki fannst hljóm- sveitinni lítið í það varið að leika fyrir gesti „Witch End". Gamla Trúbrot og nýja. Karl og Shady fara, en Magnús kemur í staðlnn. ÁGÚST: Agústmánaður var aðallega not- aður til æfinga fyrir LP-plötu þá sem í undirbúningi var fyrir Fálkann, og eins lék hljómsveitin á dansleikjum víðsvegar um landið, því alla fýsti til að sjá og heyra ,,beat-landslið- ið", eins og hljómsveitin var köll- uð. í kjölfar stofnunar Trúbrots fylgdu miklar sviptingar innan poppheimsins, og margar nýjar hljómsveitir urðu til og voru end- urskipulagðar. Einnig var gerður einn sjónvarpsþáttur með hljóm- sveitinni, en hann þótti ekki gefa góða mynd af hljómsveitinni og þeirri tónlist sem hún hafði ætlað sér að halda sig við. Astæðan var sú að fljótlega eftir að sá þáttur hafði verið sýndur átti að gera ann- an sem var meira á þeirra sviði, en vegna ýmissa atburða, sem greint verður frá síðar í þessu grein- arkorni, varð ekkert úr því, svo þessi þáttur er sá eini sem gerður var með hljómsveitinni Trúbrot á fyrsta ári hennar. I rauninni hófst mánuðurinn á því að hljómsveitin lék á bindind'- ismannamóti í Húsafellsskógi um verzlunarmannahelgina, og síðar í mánuðinum lék hún við stórkost- legar undirtektir á popphátíð í veit- ingahúsinu KLÚBBURINN í Reykja- vík, en þar komu fram allar af- lögufærar hljómsveitir Reykjavíkur- svæðisins. Þann fjórða september var popp- hátíðin mikla haldin í Laugardals- höllinni. Um fjárhagslega hlið þess máls er búið að tala meira en nóg (tölum ekki of mikið um það leið- inlega), en ekki er úr vegi að víkja aðeins að þeim vinsældakosning- um sem þar voru háðar. Flestir höfðu frá upphafi spáð Trúbroti ör- uggum sigri — og þar af leiðandi átti Rúnar Júlíusson að verða popp- stjarna ársins 1969. En það fór al- deilis á annan veg, og í rauninni var heldur lítið gaman að hljóm- sveitinni á þessari hátíð, enda átti hún í alls kyns vandræðum með tæki sín og tól. Þannig lítur Trúbrot út nú. En ef maður fer að líta aftur í tímann með þessar kosningar i huga, þá kemst maður að þeirri niðurstöðu að slik fyrirtæki eru til hreinnar skammar, og í þessu til- Reskiavfk - Nmw Virk - londn - Dahnk Kaupmannahöfn - RevkNvíh Magnús Kjartansson, hinn nýi meðlimur Trúbrots. felli er það þó sérlega eftirleikur- inn sem hefur verið lítillækkandi fyrir almenning. Og síðari hluta september var svo hljómsveitin bönnuð á Kefla- víkurflugvelli, fyrir það að leika „Give Peace a Chance" í 20 mín- útur — og allir hermennirnir komn- ir upp á borð og stóla til að syngja með — um leið og einstakir með- limir hljómsveitarinnar spurðu sol- dátana, á all-háværan hátt, hvers vegna þeir væru í hernum. Banninu var aflétt fljótlega. OKTÓBER: Þann sjötta október var haldið til Lundúna til að hljóðrita þar 12- laga hljómskífu, og voru þau öll útsett eða samin af hljómsveitinni, aðallega af þeim nöfnum Gunnar Þórðarsyni og Gunnari Jökli, þó öll hin hafi og átt sinn þátt í út- setningum laganna. Umdeildasta lagið á plötunni er tvímælalausl „Pílagrímskórinn" úr Tannhauser eftir Richard Wagner, en Karl Sig- hvatsson hafði útsett verkið — og var þar af leiðandi skrifaður höf- undur þess, þar eð höfundarréttur er fyrndur. Ríkisútvarpið tók nokkuð undar lega, svo ekki sé meira sagt, af- stöðu í sambandi við þetta lag, og bannaði allan flutning á því bæði í hljóðvarpi og sjónvarpi, á þeim for- sendum að þarna væri verið að eyðileggja verk meistarans. Allir sjá hversu hlægilegt það er, og það er Framhald á bls. 43. 28. tbi. VIKAN 31

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.