Vikan


Vikan - 09.07.1970, Blaðsíða 6

Vikan - 09.07.1970, Blaðsíða 6
MIDA PREIMTUIM HILMIR HF SKIPHOLTI 33 - SÍMI 35320 Breytt framkoma stjúpmóður Kæri Póstur! Þar sem þú hefur hjálpað svo mörgum í vandræðum þeirra, þá bið ég þig að vera svo vænan að hjálpa einnig mér. Þannig er mál með vexti að ég missti móður mína fyrir nokkrum árum. Pabbi giftist svo aftur í annan kaup- stað, miög góðri og skemmtilegri konu. Ég heimsæki þau og börn þeirra á hverju sumri, og þá gefur pabbi mér yfirleitt eitt- hvað. Núna þegar ég var hjá þeim seinast, varð ég vör við að konan var orðin svo allt öðru vísi en venjulega við mig, hún svaraði mér varla þegar ég yrti á hana og eitt sinn þegar ég kom seint heim í mat og gekk fyrst inn í herbergi áður en ég tók til matar míns, þá kom hún á eftir mér og spurði með þjósti: „Ætlarðu ekki að éta,“ en venju leea hefur hún sagt: „Gjörðu svo vel að borða, vina.“ Seinasta morguninn sem ég var þarna vaknaði ég óvenju snemma og heyrði þá að þau voru að rífast og skildist mér það vera út af mér. Svo sagði pabbi setningu sem fullvissaði mig um það. Það var greinilegt að konunni var síður en svo vel við mig. Ég fór svo sama dag, en get ekki hætt að hugsa um það, hvers vegna henni er illa við mig; ég veit ekki til þess að ég hafi nokkuð eert á hluta hennar. Ég hef kepp7.t við að nota alla mína kurteisi oe stimamýkt, svo að ég skil þetta ekki. Ja, nema það sé veena þess að ég hjálpaði ekki dætrum hennar tveim að þvo upp í fjögur skipti (ég tek það fram að mér hefur ekki verið ætlað það verk að hjálpa þeim að þvo úpp). Hjálpaðu mér nú, góði Póstur. Eg vil eklci láta nabba vita að ég hafi heyrt þetta því hann var alltaf að líta inn í herberpi til mín þennan morgun, til að vita hvort ég væri vakandi, en ég lézt alltaf sofa. Ef ég kem ekki næsta sumar veit pabbi að ée hef heyrt þetta og honum bvkir mjög vænt um börnin sín hér, svo og fjölskyldu sína á hinum staðnum, svo að ég vil ekki særa hann. Svo get ég ekki farið bangað aftur, því að ég get ómöguleea verið nálægt fólki, sem ég veit að er ekkert of vel við mig. Ef ég færi aftur til þeirra, mundi það aðeins stofna til meiri rifrilda og það vil ég alls ekki, því að pabbi er ekkert styrkur á taugum og þessi kona hefur reynzt honum mjög vel. Nú veit pabbi ekki hvorri okkar hann á að gera til hæfis og ég veit ekki heldur hvað ég á að gera, við erum bæði milli steins og sleggju! Góði Póstur, ég þarf svo á hjálp að halda, hvað á ég að gera? Svaraðu mér nú fljótt og vel og án útúrsnúninga. Svo þakka ég fyrir allt gott í Vikunni og það vonda líka, og svo fyrir- fram fyrir birtinguna. Þrettán ára vandræðabarn. Að svo komnu máli virðist frá- Ieitt að þú heimsækir föður þinn og stjúpu í sumar, enda telur þú það raunar sjálf óhugsandi. Ástæðulaust er fyrir þig að láta pabba þinn vita nokkuð af því að þú hafir heyrt samtal þeirra hjóna um þig, en gangi hann hart eftir að þú gefir ástæðu fyrir niðurfellingu heimsóknar- innar kæmi til greina að þú segðir sem svo, að þú hefðir orð- ið vör við vaxandi kulda í þinn garð af hálfu konu hans, án þess að tilgreina nokkurt sérstakt til- felli. En bezt væri að þú gætir fundið upp einhverja tylliástæðu fyrir þvi að sleppa heimsókninni. Þaff er augljóst, eins og þú segir, að stjúpmóðurinni er ekki sérlega hlýtt til þín, og geta auð- vitað margar ástæður legið til þess að það kom fram í þetta sinn, til dæmis aff hennar eigin taugar hafi verið í einhverju ólavi. eins og hendir hjá mörg- um. En meðan þú hefur ástæðu til að ætla að hún stilli ekki skap sitt betur er engum til góðs að þú lialdir áfram að heimsækja þau hjón. Knésetjan hans Kæri Póstur! Eg þakka þér fyrir allt gam- alt, nýtt og gott. Vandamál mitt, því það ku vera vandamál sem þið leysið úr, er að knésetjan mín vill alls ekki gegna mér, hvernig sem ég reyni að biðja hana með góðu. Ég hef reynt að skamma hana, en það dugar ekki heldur. Þó getur hún verið af- skaplega dugleg ef hún er á þeim buxunum (þær eru núna bláar). Ekkert þýðir að ógna henni. — Þetta vandamál heldur fyrir mér vöku dag og nótt og leggst svo þungt á mína sálu að ég get ekki sinnt mínum eigin störfum eins og skyldi. — Hvernig fara sam- an kvenhrútur og meyjarmaður í hjúskap, og vatnsberi og vatns- beri. Hvernig er uppsetning, réttrit- un og skrift? — Með fyrirfram þökk fyrir greinagóð svör. Þrælahaldari. 6 VIKAN 28. tbl.

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.