Vikan - 09.07.1970, Síða 8
Á baðströndinni
Kæri þáttur!
Mér fannst ég vera á bað-
strönd með annarri stelpu. Henni
fannst vatnið of kalt, en ég óð
út í það og fann þá, að vatnið
var aðeins ylvolgt, en mér fannst
það ágætt. Þegar ég ætlaði að
vaða í land gekk mér illa að
komast upp á sandinn. Ég hrakt-
ist alltaf aftur á bak. Að síðustu
komst ég þó þjökuð og þreytt.
Þá sé ég, að stelpan liggur á
teppi í sandinum í sólbaði og
einhver strákur hjá henni.
Ég varð svolítið afbrýðisöm,
en leggst á sandinn beran og
segi um leið, að stelpan sé of fín
til að liggja á sandinum. Hún
verði að hafa teppi.
O. G.
Það er fyrir hamingju og hagn-
aði að dreyma, að maður sé að
baða sig í sjó. Þessi draumur
mundi því áreiðanlega vera hag-
stæður og líklega vera fyrir
óvenju skemmtilegu sumarleyfi,
sem mun sannarlega draga dilk
á eftir sér.
Sár á fótum og bleikt
baSherbergi
Kæri draumráðandi!
Mig langar að biðja þig að
ráða fyrir mig tvo drauma. Fyrri
drauminn dreymdi mig fyrir
stuttu síðan, en hinn fyrir
nokkrum mánuðum.
Sá fyrri er á þessa leið:
Mér fannst ég vera háttuð og
sitja uppi í rúmi. Þá verður mér
snögglega litið á iljarnar á mér.
— Hvað, er ég svona skítug á
iljunum, hugsa ég.
Svo fer ég að athuga þetta bet-
ur. Þá eru þetta sár á þremur
tám og eitt langt og mjótt þvert
yfir ilina. Þau voru dökkbrún og
blæddi ekkert úr þeim.
Á hinum fætinum var ekkert
sár.
— Þetta er laglegt, hugsaði ég.
— Nú kemst ég ekki í neina skó.
Hinn draumurinn er svona:
Mér fannst ég vera stödd í
íbúð, sem ég kannaðist ekkert
við. Ég var með strák, sem ég
var einu sinni trúlofuð, og ein-
hverri stelpu. Við ætluðum að
fá að fara í bað þarna og áttum
að borga 3000 krónur fyrir það.
Strákurinn lætur mig fá pening-
ana og ég fer inn í baðherberg-
ið, en þá voru engin hreinlætis-
8 VIKAN 28' tbl-
tæki þar, heldur var þar maður
að vinna. Búið var að setja gul-
ar flísar á veggina.
—■ Heldurðu að þetta verði
ekki flott, segir maðurinn og
sýnir mér hvernig hreinlætis-
tækin eigi að vera á litinn. Þau
voru bleik, einhvern veginn grá-
bleik.
Þegar ég fór út hugsaði ég
með mér:
— Hvernig skyldi gult og
bleikt fara saman?
Með fyrirfram þökk. H.H.
Þessir tveir draumar virðast ekki
vera í neinu samhengi. Yfirleitt
er sár fyrir mótlæti og erfiðleik-
um, og þá gjarnan tengd blóði.
En í þínu tilviki var ekki um
blóð að ræða, svo að varla geta
þetta orðið neinir meiriháttar
erfiðleikar. Ætli þeir verði ekki
á sviði peningamála. Síðari
draumurinn mundi vera fyrir
skyndilegum endurfundum við
gamlan aðdáanda. Það verða
sannarlega fagnaðarfundir og þú
gerir þér vonir um, að allt geti
orðið eins og það var í gamla
daga. En margt hefur breytzt ng
þú kemst að raun um, að tilfiijn-
ingar hans rista ekki eins djúpt
og þú hafðir gert þér vonir um.
Þjófur í draumi
Kæri draumráðandi!
Mig langar til að biðja þig að
segja mér, hvað það táknar að
dreyma, að maður sé að stela og
sé staðinn að verki. Mig hefur
dreymt þetta tvisvar sinnum nú
að undanförnu og þykir það
heldur einkennilegt, þar sem ég
er fullkomlega grandvör og
heiðarleg manneskja. f bæði
skiptin hef ég liðið miklar sálar-
kvalir, sérstaklega á meðan ver-
ið var að elta mig og ná mér,
eftir að ég hafði drýgt þennan
líka þokkalega verknað. Eg get
ómögulega munað hvað það var
sem ég var að stela, því að í
bæði skiptin byrjaði draumurinn
á því, að ég var búin að fremja
ódæðið. Ég geri mér grein fyrir,
að þetta boðar líklega eitthvað
slæmt, en vona þó hið gagn-
stæða, því að oft er það svo að
óþægilegir draumar eru fyrir
góðu. Má þar til nefna, að saur
táknar peninga og auðlegð, eins
og þarf náttúrlega ekki að segja
þér. draumspökum manninum.
É2 hef þá þessar línur ekki
lengri, en vil þakka Vikunni
f"--ir allt gamslt. og gott. Ég les
aút-f draumabáttinn og finnst
sá einn galli við hann, að hann
er alltof stuttur. Gætuð þið ekki
haft hann heila síðu í hverju
blaði?
Þér verður að ósk þinni, því að
bínir óbær'ilegu draumar eru
hagstæðir. Það er fyrir góðu að
dreyma að maður sé að stela, og
alveg sérstaklega, ef það kemst
upp.
í UMSJÖN
ÖLAFS
BRYNJÖLFSSONAR
Eftir nokkurt hlé, sem varð á
íslandsmótinu fyrir skömmu, var
tekið til við keppni aftur og skall
þá yfir áhorfendur þvílíkt flóð
leikja að menn þurftu að hafa sig
alla við til að fylgjast með öllu
því sem fram fór. Ekki bætti það
úr skák að við íslandsmótið bætt-
ust svo landsleikir, heimsókn
vestur-þýzka liðsins Speldorf,
sem lauk í Reykjavík með all
sögulegum hætti og þá tók sjón-
varpið til við að sýna leiki frá
heimsmeistarakeppni í Mexico.
Þurftu því knattspyrnuáhuga-
menn ekki að kvarta undan því
að ekki væri að nógu að taka.
Jóhannes Atlason, fyrirliði Fram. Hann hefur í ár tekið á móti tveim
bikurum fyrir félag sitt og er ekki ótrúlegt að þeim eigi eftir að fjölga.