Vikan - 09.07.1970, Blaðsíða 11
við EiGum no sEun þbð
VIKAN lítur inn á æfingu hjá Tízkuþjónustunni og ræðir viS
Maríu Ragnars.
TEXTI: ÓMAR VALDIMARSSON, MYNDIR: EGILL SIGURÐSSON
í dansskolahúsnæði að Laugavegi 178 samtök veita, undir stjórn Maríu Ragn-
kemur Tízku.jrjómwtan saman öðru arsdóttur, setn meðal annars hefur starf-
hvoru og æfir fyrir tízkusýningar og að viö sýningarstörf í Danmörku í fjög-
fyrirsetur. Það er sú þjónusta sem þessi ur ár.
SEm um súnum
♦ (Vlaría segir nemendum sínum til.
María ræðir við stúlkurnar og gefur þeim
góð ráð.
Við brugðum okkur á æfiíigu hjá
Tízkuþjónustunni í vor, fylgdumst með,
tókum myndirnar sem með þessum Hn-
um eru og ræddum örlítið við formann-
inn, stjórnandann og kennarann, Maríu
Ragnarsdóttur.
:
^ Þuríður Gunnlaugsdóttir, Anna Scheving og
Jakobina Sveinsdóttir.
— Eins og stendur er ég með 24 mód-
el, 5 karlmenn og 19 stúlkur, á aldrin-
um 12—33 ára, segir María. — Jú, og
svo er ég með eina þriggja ára, dóttur
mína.
— Inntökuskilyrði eru einfaldlega þau
að hafa sótt námskeið hjá okkur og að
hafa staðizt það próf sem lagt er fvrir
nemana í lok námskeiðisins. Þar sýna
stúlkurnar síðbuxur og peysu eða blússu,
stuttan kjól, síðan kjól og kápu, en herr-
arnir sýna jakkaföt, stakar buxur og
pevsu og frakka. Til að komast á nám-
skeiðin, sem hafa verið tvö, í tvo mán-
uði, einu sinni í vi'ku, þarf hæðina að
vera 168 cm og beinabygging góð.
— Dómnefndin (sem er skipuð Sigríði
Gunnarsdóttur, Ola Páli, ljósmyndara
og Bertu Snorradóttur, sölukonu') er
ströng, enda verður hún að vera það,
því í rauninni reynir ekkert á þessar
stúlkur — og pilta — fyrr en komið er
út í starfið sjálft. Og það eru það marg-
ir sem sækja námskeiðin, fyrir svo lít-
inn markað, að við verðum að fá það
allra bezta.
— Framhaldsmenntun er í rauninni
engin, nema reynslan. Eftir að ég lief
skólað þær til, kennt þeim algengustu
snúninga og þessháttar, þá verða þær
að koma með hitt sjálfar. Ef þær ekki
hafa tilfinningu fyrir því sem þær eiga
að gera, þá leiðir það náttúrlega af sjálfu
sér að þær „kúplast út“ ef svo má segja;
þær hafa jú misjafnlega mikið að gera.
— Þær verða að hafa mýkt, mikla
mýkt, hafa reisn og þær þurfa að geta
selt; þann fatnað sem þær eru að sýna,
því við erum auðvitað að auglýsa fatn-
að, fyrst og fremst.
— Þó svo sé að ég geti ekki gefið neitt
alþjóðlegt viðurkenningarskírteini, sem
tryggir þeim stúlkum sem ég er með
atvinnu hvar sem er í heiminum, þá
myndi ég eindregið ráðleggja þeim að
fara út og reyna. Það gerði ég sjálf, og
var í fjögur ár. Svo kom ég heim, ætl-
aði að taka mér hálfsmánaðar frí — en
t María Jóhannsdóttir er ein af nýliðum Tízku-
þjónustunnar.
10 VIKAN 28 tbl-
28. tb!. VIKAN 11