Vikan - 09.07.1970, Side 50
Hjónin eru miklar barnagælur og hlakka eflaust til að eignast barn.
NÚ ER Norðmönnum
vonandi rórra, því hin
margþráða tilkynning frá
hirðinni er loksins komin.
Og mikið er búið að ganga
á. Eftir að norsku krón-
prinshjónin komu úr ferð
sinni til Ástralíu voru
stöðugt á kreiki sögur um
að von væri á fjölgun hjá
þeim, en aldrei kom nein
opinber tilkynning frá
hirðinni.
Blaðamenn á Norður-
löndum létu ekki aðstoð-
arforingja krónprinsins í
friði. Hann svaraði því
einu til að ekkert væri að
frétta. Evju liðsforingi er
snillingur í að svara blaða-
mönnum, hann hélt því
fram að þetta væri einka-
mál hjónanna, en þjóðin
var ekki á sama máli.
Þetta er nefnilega ekki
svo einfalt. Ef Sonja fæð-
ir manni sínum ekki barn,
þá verður að leita til ann-
arrar þjóðar eftir rikiserf-
ingja, ef Noregur á ekki
að verða lýðveldi. Almenn-
ingur hugsaði ekki svo
langt. Norðmenn eru kon-
ungshollir menn, svo það
var ekki óeðlilegt að beðið
væri í ofvæni eftir nýjum
ríkiserfingja. En nú standa
vonir til að ósk þeirra ræt-
ist, því nú hefur verið send
Sonja er aðeins 32 ára, svo hún
getur eignazt mörg börn.
Þetta var setning sem
klingdi manna á meSal
í Noregi síðastliðiS ár.
Stöðugt voru sögur á
kreiki um það að von
væri á fjölgun hjá
krónprinshjónunum.
Þetta var orðin almenn
taugaveiklun og
ástandinu líkt við það
sem ríkir í Belgíu, enda
Harald krónprins og
Belgakonungur
systrasynir...
út tilkynning frá hirðinni
þess efnis að Sonja sé með
barni, og mikið hlýtur
hlessaður aðstoðarforing-
inn að vera feginn yfir að
fá frið.
Sumir voru nú farnir
að hafa áhyggjur af að öll
þessi taugaspenna gæti
haft slæm áhrif á Sonju,
en hún virðist vera ósköp
venjuleg kona, sem tekur
hlutunum með ró.
Sonja og Harald eru ný-
komin úr ferðalagi til Jap-
an og það er sagt að ham-
ingjan Ijómi af þeim. En
í sumar hafa þau mörgum
skyldustörfum að gegna
og fá aðeins nokkurra
daga frí í Suður-Noregi.
Almenningur er farinn
að hafa áhyggjur af að
henni verði ofgert með
þessum skyldustörfum, —
svo vonandi verður ein-
hver leið til að sjá henni
fyrir hvíld.
Hjónin sjálf virðast ekki
hafa nokkrar áhyggjur af
þessu, en blöðin og fólkið
verða að liafa eitthvað lil
að lala um.
50 VIKAN 2S- tbl-