Vikan - 16.07.1970, Blaðsíða 23
— Gianni...! Milly rauk upp af stólnum.
— Ertu genginn af vitinu? Þú getur ekki
gert það . . .
— Get ég það ekki? Ég verð hreinlega að
gera það! Ég vil líka gera það vegna þess að
ég elska þig!
— Gianni!
— Já, á ég kannske að standa eins og þol-
inmóð kind og bíða þess að verða leiddur til
slátrunar? Þeir skulu ekki fá að hrósa þeim
sigri. Ég fleygi erkihertoganum í þá, með
orðum og heiðursmerkjum, áður en þeir ná
því að brýna kutana!
Milly varð alveg frá sér. — Það er hreint
brjálæði! hrópaði hún í örvæntingu sinni. —
Þú mátt ekki gera það, Gianni, ekki mín
vegna! Öll þessi óhamingja stafar af méir, ég
eyðilegg allt, ég er tortíming þín ...
En Gianni var léttur í skapi, eins og hann
hefði varpað af sér þungri byrði. Hugsunin
ein um þessa ákvörðun, gerði hann ham-
ingjusaman.
Hann dró Milly að sér.
— Komdu til mín, tortíming mín litla,
sagði hann glaðlega, — og hlustaðu nú vel á
það sem ég segi. Það sem þú kallar óham-
ingju, er í raun og veru mesta hamingja sem
ég hefi orðið fyrir í lífinu. Og án þín hefði
ég aldrei lent í þessari aðstöðu...
— Einmitt! Það er ég alltaf að segja! ég...
En hann leyfði henni ekki að ljúka við
setninguna. — Uss, elskan mín! Nú hefi ég
loksins tækifæri til að verða frjáls maður.
Án þess hefði ég alltaf orðið óhamingjusam-
ur, alltaf uppreisnargjarn erkihertogi. Hreint,
og beint hlægileg fígúra. Geltandi, tannlaus
hvutti, sem engin tekur mark á. En þú veit-
ir mér frelsi. Þú ert ekki óhamingja mín, þú
ert bjargvættur minn. Skilurðu það ekki?
Milly hvíldi nú höfuðið við öxl hans og
grét. — Þú munt sjá eftir þessu, Gianni.
Hugsaðu bara um afleiðingarnar.
— Hvaða afleiðingar? Að ég fæ ekki líf-
eyri lengur. Ég er fyrir löngu orðinn þreytt-
ur á því að vera sníkjudýr á fjölskyldu minni.
Ég get sjálfur unnið mér inn nægilegan líf-
eyri. Og við getum gift okkur! Loksins verð-
ur þú konan mín, Milly. Ekki erkihertoga-
frú, og ekki furstafrú af Búlgaríu. Það voru
hliðarskref, heimskuleg hliðarskref. En þú
verður einfaldlega borgaraleg kona, frú Orth.
Eða viltu það ekki?
— Ó, Gianni... Milly vafði örmum sínum
ástríðufullt um háls hans. — Ég elska þig!
Ég geri allt sem þú vilt!
Hann strauk hár hennar. — Við hvað ertu
hrædd? Nú þegar ekkert er lengur til að vera
hrædd um. Sá tími er liðinn, tími hættunnar.
Við getum lifað í friði og ró og verið ham-
ingjusöm.
— Já, hamingjusöm, en ekki í friði og ró,
það stendur ekki í stjörnum okkar, svaraði
Milly, eins og hún eygði einhvern slæman
fyrirboða.
Gianni sagði allt í einu: — Ég ætla að
kaupa skip.
Hún trúði ekki sínum eigin eyrum.
— Skip?
— Já, ég verð að vinna fyrir peningum.
Hvað ætti ég annars að taka mér fyrir hend-
ur. Ég get ekki farið að gerast vinnumaður,
það er af og frá. En ég hefi lært sjómennsku.
Jóhann Orth, skipstjóri! Finnst þér það ekki
hljóma vel. Hann hló drengjalega. — Finnst.
þér það elcki hljóma hundrað sinnum betur
en hans keisaralega tign Jóhann Salvator af
Toskana, erkihertogi. Ó, að við værum nú
bara búin að koma öllu í kring!
Framhald á bls. 36.
29. tbi. VIKAN 23