Vikan


Vikan - 16.07.1970, Síða 34

Vikan - 16.07.1970, Síða 34
ATHUGIÐ Ef þú ert að byggja eða þarft að bæta og jafnvel ef þú vilt breyta, þá teljum við það hagkvæmt að líta við hjá okkur, því að sjón er sögu ríkari gagnvart vöruúrvali. Gott verð. B2Z-24 10-32212 FRÁ RAFHA RAFHA eldavél, gerð 2650, með föstum hellum, 30 ára reynsla. - ÓDÝRASTA RAFMAGNSELDAVÉLIN á markaðinum. — Heim- keyrsla og Rafha ábyrgð. VIÐ ÖÐINSTORG - SÍMI 10322 STJO ÍRNUSPÁ^ |f Hrútsmerkið (21. marz — 20. apríl): Vinkona þín er óánægð með hlutskipti sitt og hyggst breyta verulega um. Láttu hana hjálpa þér áður, eins og þið hafið hugsað ykkur. Gættu framkomu þinnar í hvívetna og reyndu að afla þér virðingar. Nautsmerkið (21. apríl — 21. maí): Þú verður að sjá af hlut sem þér er mjög annt um. Þú verður í miklu fjölmenni um helgina og gleymir óllum áhyggjum sem að þér hafa steðjað. Taktu ekki neinar bindandi ákvarðanir, þó lagt sé að þér. Tvíburamerkið (22. maí — 21. júní): Gættu þess að þvermóðska og sérvizka ráði ekki gerðum þínum í ákveðnu máli, til þess er alltof mikið í húfi. Þú þreytir þína nánustu með því að klifa alltaf á því sama.. Hugsaðu betur um störf þín. Krabbamerkið (22. júní — 23. júlí): Vinnufélagi þinn sýnir þér mikið trúnaðartraust sem kemur þér nokkuð á óvart. Ef þú með nokkru móti getur aðstoðað vin þinn þá skaltu gera það. Þú verður fyrir barðinu á úrillri manneskju. Ljónsmerkið (24. júlí — 23. ágúst): Margar tafir hafa orðið á því að þú gætir verið við áhugamál þitt. Þú berð góðan árangur úr býtum fyrir sameiginlegt átak nokkurra lcunningja þinna. Þér verðúr sýndur óvæntur vináttuvottur. Meyjarmerkið (24. ágúst — 23. september): Þú verður að taka þér á hendur ferð sem er þér á móti skapi. Ýmsir erfiðleikar steðja að þér, sér- staklega í sambandi við fjármálin. Þú verður fyrir drengilegri aðstoð eldri manns sem vill þér vel. Vogarmerkið (24. september — 23. október): Sökum kunnáttu þinnar og aldurs verðurðu að ger- ast foringi fyrir vissum hópi sem reynist þér nokk- uð erfiður. Þú verður fyrir smávegis fjárhagslegum ábata, vegna klækja eins kunningja þíns. Drekamerkið (24. október — 22. nóvember): Þú hefur mann í þjónustu þinni sem er sérhlífinn. Þú getur látið hann vinna mjög vel ef þú beitir lagni við hann. Gott útlit er fyrir að þú gerir hag- kvæm viðskipti. Gættu þess að borða ekki of mikið. Bogamannsmerkið (23. nóvember — 21. des.): Seinni hluta vikunnar verður þér nokkuð mi-nnis- stæður vegna heimsóknar á stað sem þú hefur ekki gist áður. Vegna forfalla annarra kemstu í mjög skemmtilegt ferðalag. Þú færð óvæntar fréttir. & Steingeitarmerkið (22. desember — 20. janúar): Viss persóna beitir þig talsverðu óréttlœti, sem þú fœrð ekki leiðrétt fyrr en síðar meir. Þú verður að sjá af hlut sem þú heldur upp á. Misklíð innan fjölskyldunnar veldur þér nokkrum erfiðleikum. Vatnsberamerkið (21. janúar — 19. febrúar): Ungur maður hefur mikinn áhuga á að komast í samband við þig vegna þekkingar þinnar á vissu sviði. Varastu að vera of ánægður með þig og vera mannblendinn um of. Þú kannt að verða hlunnfarinn. Fiskamerkið (20. febrúar — 20. marz): Maður sem þú varst búinn að gleyma sprettur nú fram í sviðsljósið og endurnýjar gamlan kunnings- skap ykkar. Þú hefur einstakt tækifæri til að gera góð viðskipti. Amor kemur nokkuð við sögu. 34 VIKAN 29-tbl-

x

Vikan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.