Vikan - 16.07.1970, Page 36
ekki yngri en 18 ára óskast á stórt sjúkra-
hús i fallegu umhverfi 16 km. frá London.
Ekki ráðið til skemmri tíma en 3ja mán-
aða. - Umsóknir sendist:
Domestic Superintendent, Royal National
Orthopaedic Hospital, Brockley Hill, Stan-
more, Middlesex HA7 4LP England.
★ SUMARIÐ ER KOMIÐ
★ NJÖTIÐ HVERS EINASTA DAGS.
★ O.b. HJÁLPAR YÐUR TIL ÞESS.
0. b. NORMAL - 0. b. PLUS - 0. b. EXTRA.
0. b. ER NOTAÐ INNVORTIS.
* 12800-14878.
fyrir
eldhúsgrindur
PLASTPRENT H/F
Hennar keisaralega
tign
Framhald af bls. 23.
Á næsta augnabliki varð hann
alvarlegur á ný. — Ég verð að
skrifa keisaranum strax ...
Franz Jósef samþykkti afsal
Jóhanns Salvator og leyfði hon-
um að nota nafnið Orth. Þó varð
Jóhann Orth að skuldbinda sig
til að stíga aldrei fæti á austur-
riska grund.
Jóhann Orth fékk skjölin frá
keisaranum til Hamborgar, þar
sem hann bjó með Milly á „Ham-
burger Hof“. Nokkrum dögum
síðar komu hin nýju skilríki hans.
Það leit helzt út fyrir að hirðin
í Vín vildu hraða þessu máli sem
mest.
Áður en almenningur var bú-
inn að gleyma ævintýri hins upp-
reisnargjarna erkihertoga, ævin-
týrinu um hásæti Búlgaríu, kom
ný frétt, þess efnis að hann hefði
afsalað sér tignarstöðu sinni.
Þetta kom eins og sprengja.
Milly og Gianni urðu að fara
um bakdyr á hótelinu, til að losna
við forvitna blaðamenn, sem
alltaf voru á höttunum eftir
þeim.
— Ég vildi óska að við værum
komin um borð í skipið . .. sagði
Milly, hún var orðin leið á þess-
um eltingaleik blaðamannanna.
— Brúðkaúpið fyrst, ástin mín!
En það verður ekki hér, ég vil
ekki að það verði sirkusauglýs-
ing.
Hann var búinn að kaupa þrí-
siglda skonnortu, „St Margaret",
sem lá við akkeri í höfninni í
Chatham. Þetta var léttbyggt,
glæsilegt skip, 1368 brúttotonn,
sem hafði verið í siglingum yfir
Atlantshafið í nokkur ár.
Fjármálin voru ekki einföld.
Eignir Giannis hrukku ekki til
fyrir skipinu. Listmunir hans og
innanstokksmunir voru seldir á
uppboði í Vín, og hann fékk veð-
lán út á höllina Orth. Uppruna-
lega var það ætlunin að selia
Woolsey lávarði hana, en það
gekk ekki saman með þeim.
Allt tók þetta tíma. Loksins í
febrúar 1890 var allt klappað og
klárt. Milly og Jóhann Orth fóru
að næturlagi frá hótelinu og fóru
gegnum Holland til London. Hin-
ir óþreytandi blaðamenn böfðu
fylgst vel með kaupunum á skip-
inu, og þeir vissu að kaupandinn
myndi skjóta upp kollinum þar
sem skipið lá, fyrr eða síðar ...
Svo byriaði aftur flóttinn frá
blaðamönnunum . ..
Brúðkaupsdagurinn rann upp,
hinn margþráði dagur, sem Gi-
anni hafði beðið eftir með svo
mikilli eftirvæntingu. Hann hafði
frá upphafi viÞað hamra það í
gegn að þu gætu búið í löglegu
hiónabandi. Nú var komið að því.
Þetta var frekar dimmur dag-
ur, regnið streymdi stöðugt nið-
ur. Milly var í einföldum, bláum
kjól, með svartan hatt og ljós-
grátt axlaslá. Gianni í brúnum
jakkafötum.
Þau óku í tveim lokuðum
vögnum, hvort í sínu lagi og sitt
í hvora áttina, frá Savoy hóteli.
Þau hittust svo aftur í einni af
útborgunum, Golden Green.
Hjónavígslan fór fram í lítilli
steinkirkju. Kirkjuþjónninn og
kona hans voru vígsluvottar.
Þegar tónarnir frá orgelinu
hljómuðu um kirkjuna, leit Milly
á Gianni. Aldrei áður hafði hún
séð þennan svip á ásjónu hans.
Hún fann nú að Gianni kvæntist
ekki til að bjóða einum eða nein-
um byrginn, heldur einfaldlega
vegna þess að hann elskaði hana
innilega.
Hún sá það nú að hann myndi
aldrei iðrazt þessa skrefs. Hún
tók í hönd hans og takmarkalaus
hamingja fyllti hug hennar.
Eftir vígsluna héldu þau aftur
til hótelsins í tveim vögnum.
Þau héldu upp á brúðkaup sitt
í litlu skoti í hinum glæsilega
borðsal hótelsins, og kampavínið
freyddi í giösum þeirra.
— Nú drekkum við skál óvina
okkar, sagði Gianni, — Fabbri
baróns, Albrechts erkihertoga og
allrar hirðklíkunnar. Án þeirra
hefðum við ekki fengið að upp-
lifa þessa stund!
Milly brosti. Hún var fegurri
en nokkru sinni. Mild birtan frá
gasljósunum á veggnum, féll á
hár hennar og augun urðu ennþá
stærri og dekkri.
— Þá er hringnum lokað, sagði
hún, — ég kynntist þér sem Jó-
hanni. Þú hlýtur "að muna eftir
því. Og hvernig ég komst að því
að þú varst erkihertogi? Mér
fannst það þá vera mesta áfall
lífs míns. En nú er ég gift þesss-
um sama Jóhanni Orth, það hefi
ég hér, svart á hvitu.
Hún hló glaðlega, en svo þagn-
aði hún. Henni hafði dottið móðir
sín í hug, og það gerði skarð í
gleði hennar. Henni leið illa
vegna ósátta við móðurina, því að
henni bótt’ miög vænt um hana.
— Hvað er að þér? spurði Gi-
anni.
Hún sagði honum það. — En
nú er ekki ler.gur ástæða fyrir
fiandsakp hennar. Honum var
ekki beint gegn þér persónu'^m.
heldur Habsborgarfiölskyldunni.
En hún hlýtur nú að hafa lesið í
blöðununi að bú ert búinn að
segia þig úr fiölskylduböndunum.
Þá ætti hún ekki að vera lengur
ósátt við mig.
— Það getur líka verið að hún
sé bað ekki, sagði Gianni. — Þú
ættir að skrifa henni .. .
Milly gerði það samdægurs.
meðan Oianni var að semja við
skipamiðlara um farminn.
,.St. Margaret" átti að sigla mpð
sementsfarm til La Plata. á aust-
urströnd Suður-Ameríku, því
næst með kiölfestu suður fyrir
Cap Horn, til vesturstrandarinn-
36 VIKAN 29- tbI-