Vikan - 16.07.1970, Síða 43
er árið 1927, er hann kom því í
kring að byltingin skyldi gerð af
bændum en ekki verkamönnum.
Hann er þreyttur, en veit að
hann getur ekki sofnað enn. —
Handleggir hans titra er hann
gengur stífum skrefum inn í
svefnherbergið.
Fyrir meira en tíu árum varð
hann gegn vilja sínum að segja
af sér störfum ríkisforseta. En
síðan tókst honum að hefja sig
í guðatölu; orð hans og hugsan-
ir áttu að geta læknað sjúka,
hjálpað borðtennisleikurum til
sigurs og verkamönnum til ofur-
mannlegra afkasta. Svoleiðis
nokkuð hlýtur að vera hlægilegt
í augum náttúrugreinds raun-
sæismanns frá Húnan. Menning-
arbyltingin, síðasta meiri háttar
tilraun hans til að ná einræðis-
valdi, misheppnaðist, og síðan
hefur smátt og smátt dregið úr
guðsdýrkuninni. Stjórnartaum-
arnir eru dregnir úr höndum
hans, hægt og hægt. Hætt er að
geta hans daglega í útvarpinu,
og í tilkynningum frá Flokknum
eru nöfn annarra nefnd ásamt
hans. Fólkið hlýðir ekki lengur
honum einum, heldur einhverju
sem kallast „samvirk forusta“.
Fleiri blikur eru á lofti. Tsjang
Tsjing er enn meðal þeirra
áhrifamestu í Flokknum, en
stjarna hennar fer lækkandi.
Hvað verður um hana — og
dæturnar tvær — þegar for-
mannsins nýtur ekki lengur við?
Maó þekkir sitt fólk og veit, að
næstráðendur hans hafa þegar
ákveðið hvað gera skuli þegar
hann hefur tekið síðustu and-
vörpin.
☆
Hin miskunnsama lygi
Framhald af bls. 17.
mér, og ég skal ekki valda þér
neinni sorg eða vonbrigðum, því
að þú ert sú bezta manneskja,
sem ég þekki.
Árin liðu. Eftir striðið hvarf
Rósa aftur til verzlunarinnar í
hafnarhverfinu, þar sem hún
reyndi að hjálpa til. Hún gat
ekki fengið atvinnu í sínu fagi,
þar sem allar verksmiðjur voru
í rúst.
Dag nokkurn kom Rósa æð-
andi inn í verzlunina og var viti
sínu fjær, ekki af sorg heldur
gleði og spenningi. Agatha var
að pakka tóbakssendingu og leit
undrandi á hana. Hún hafði al-
drei séð Rósu fyrr í slíku upp-
námi. Rósa settist á stól bak við
búðarborðið og hóf að segja frá:
Hún hafði hitt á einum af mót-
orferjum hafnarinnar mann og
kynnzt honum. Og það var gamla
sagan. Tvær ungar manneskjur
höfðu hitzt af tilviljun, farið að
tala saman og orðið á svipstundu
ástfangin hvort af öðru.
Pétur Klúfer hét ungi maður-
inn. Hann var verkfræðingur, en
það var með hann eins og fleiri
á þessum tíma: Eftir stríðið var
hann atvinnulaus. Nú hafði hann
gert samning við fyrirtæki í
Afríku og hann var bundinn af
þeim samning í þrjú ár. Hann
átti að byggja brýr fyrir suður-
afríkanskt félag. Fyrirtækið
hafði ráðið hann um leið og það
sá meðmæli hans og eftir átta
daga átti hann að leggja af stað.
HIN ILLU ÖRLÖG
Agatha hugsaði sig lengi um,
eftir að hálfsystir hennar hafði
lokið frásögn sinni, og loks sagði
hún varfærnislega:
Hugsaðu þig nú vel um.
Hann verður fjarverandi í þrjú
ár og þú þekkir hann í rauninni
ekkert ennþá.
Hvað eru þrjú ár, þegar
maður elskar?- svaraði Rósa og
þaut á fætur. — Eg elska hann
og ég er sannfærð um að hann
er eini maðurinn í heiminum,
sem kemur til greina.
Að svo mæltu gekk hún fram
og aftur um búðina, en Agatha
hélt áfram að pakka. Hún hristi
höfuðið og tautaði:
— Þú segist elska hann, en ég
endurtek, að þú þekkir hann
hreint ekki neitt. Hvað hafið þið
verið lengi saman? Einn tíma
eða tvo?
— Oj, hvað þú getur verið
gömul og leiðinleg, Agatha, sagði
Rósa og stappaði í gólfið. Síðan
gekk hún inn í stofuna á bak
við búðina en kallaði fram:
— Veiztu þá ekki, að fólk get-
ur orðið ástfangið strax við
fyrstu sýn?
Jú, Agatha hafði lesið um það
í vikublöðunum, sem hún seldi
í búðinni hjá sér, en hún hafði
aldrei sjálf orðið ástfangin og
trúði því þess vegna ekki. Æsk-
an var orðin svo eirðarlaus og
spillt. Kannski var það stríðinu
að kenna...
Upp frá þessu var Rósa með
Pétri Klúfer á hverjum einasta
degi og dag nokkurn sagði hún
við systur sína:
— í kvöld fer Pétur út í heim-
inn til þess að þéna peninga.
Hann kemur aftur eftir þrjú ár
og þá giftum við okkur. Það er
afráðið og ég er í sjöunda himni
af gleði og hamingju. Hann ætl-
ar að skrifa mér í hverri viku,
svo að við séum í stöðugu sam-
bandi hvort við annað. Þá verð-
ur tíminn ekki eins lengi að líða
hjá okkur. Þú verður að sjá um,
að ég fái bréfin strax og þau
koma. Þegar ég fæ atvinnu og
bréfin koma, þegar ég er ekki
heima, þá verðurðu að hringja
strax til mín, svo að ég geti skot-
izt og sótt þau í kaffitímanum.
— Það var leiðinlegt, að þú
skulir ekki vita hvernig er að
vera ástfangin, Agatha mín,
bætti hún við eftir litla þögn og
brosti lítið eitt. - Það er eins
og að vera í Paradís.
Agatha vissi ekki, hvað hún
ætti að segja við þessu. Hún
þekkti ekki þessa tilfinningu, en
SÁ BEZTI
REYNIÐ RUSKOLINE KRYDDRASP
HEILDSÖLUBIRGÐIR: JQHN LINDSAY H.F.
SÍMI 26400 GARÐASTR/ETI 38, R.
FÆST í NÆSTU MATVÖRUVERZLUN.
Ungir og aldnir njóta þess að borða
köldu Royal búðingana.
Brag-ðtegfundir: —
Súkkulaði. karamellu. vaniliu og
jarðarberja.
29. tbi. VIKAN 43