Vikan - 16.07.1970, Side 44
IUTILEGUNA
SVEFNPOKAR
GASLJOS OG PRÍMUSAR
POTTASETT
AÐALSTRÆTI 8 - SÍMI 24026.
hún reyndi samt að taka þátt í
gleði systur sinnar og sagði:
— ÍÉJg vildi óska að þú yrðir
hamingjusöm.
Þetta kvöld fór Pétur Kliifer
með vöruflutningaskipi til Suð-
ur-Afríku. Rósa stóð á bryggj-
unni og veifaði, þar til skipið
hvarf úr augsýn.
o—o
Pétur Klufer hafði aldrei kom-
ið í tóbaksbúðina við höfnina.
Þau höfðu alltaf verið saman í
bænum. Þau lifðu aðeins fyrir
hvort annað, og höfðu ekki tíma
til að hugsa um neitt. En Pétur
hafði að sjálfsögðu fengið heim-
ilisfang Rósu og hann vissi einn-
ig að hún bjó með systur sinni,
sem hafði gengið henni í móður
stað.
Stuttu síðar fékk Rósa bréf
frá fyrirtæki, þar sem henni var
boðin atvinna. Nú var laus staða
fyrir hana og hún var beðin um
að mæta sama dag á skrifstof-
unni klukkan 18 eftir hádegi.
Hún ræddi við tilvonandi hús-
bændur sína og það samtal stóð
yfir í lengri tíma en hún hafði
búizt við. Til þess að spara sér
tíma fór hún þvert yfir höfnina
á heimleiðinni, en höfnina þekkti
hún út og inn. Þetta voru jú
bernskuslóðir hennar. En höfnin
var orðin allt öðruvísi, en hún
hafði verið fyrir stríð. Rústir
voru á mörgum stöðum. Hvert
sem litið var blöstu við gapandi
rústir, skot á skot ofan og múr-
steinahrúgur alls staðar. Það var
ekki eins auðvelt að stytta sér
leið gegnum höfnina eins og það
hafði verið á æskudögum Rósu.
Rósu var þetta ekki ljóst, þar
sem hún var áköf í að komast
heim til þess að segja systur
sinni frá nýjum gleðitíðindum:
Hún var búin að fá góða og vel
launaða stöðu. Nú gat hún unn-
ið sér inn peninga á sama hátt
og Pétur. Ekki var vanþörf á
því. Það mundi kosta skilding að
setja nýtt heimili á stofn.
Til að byrja með raulaði hún
glaðlega fyrir munni sér, en
smátt og smátt fór hún að bíta
saman tönnunum og gretta sig,
því að hún óð þarna í möl og
múrsteinabrotum. Það var farið
að dimma og auk þess var rign-
ing. Ef til vill var hugur hennar
bundinn við Suður-Afríku. Ef
til vill var hún að hugsa um
fyrsta bréfið, sem hún ætlaði að
skrifa elskhuga sínum. Það mun
aldrei koma í ljós. Hið eina, sem
vitað er, er að Rósa steyptist of-
an í vatnsþró, sem varð á vegi
hennar, og drukknaði. Engin
heyrði hana hrópa á hjálp, því
að allri vinnu við höfnina var
lokið þennan dag og allir forð-
uðust að vera í námunda við
þessar hvimleiðu rústir.
Snemma næsta morgun fannst
unga stúlkan drukknuð og í ein-
um af sjúkrabörum slökkviliðs-
ins var hún borin sveipuð teppi
í litla húsið.
Það var eins og Agatha yrði
að steini, þar sem hún stóð yfir
líki systur sinnar. Það var eins
og eitthvað brotnaði innra með
henni. Hún mælti ekki orð frá
vörum. en varð öskugrá í fram-
an. Upp frá þessu var hún þög-
ulli og innilokaðri en hún hafði
áður verið. Hún fann að hún
hafði ekki framar neitt til þess
að lifa fyrir. Hún hafði svo til
aldrei látið sjá sig utan hafnar-
hverfisins. Nú fór hún oft í
kirkjugarðinn. Á meðan var
verzlunin lokuð tímunum sam-
an og þegar hún kom aftur heils-
aði hún óþolinmóðum viðskipta-
vinum sínum með þögninni einni
saman.
BREFrÐ FRÁ AFRÍKU
Dag nokkurn kom loksins
fyrsta bréfið frá Afríku. Utan á
því stóð Rósa Dornberg. Þá nótt
lá Agatha andvaka í rúmi sínu
og starði með stórum og upp-
glenntum augunum upp í loftið.
Lokað bréfið lá á náttborðinu
hennar og hún átti í miklu sálar-
stríði.
Ég get ekki skrifað honum, að
Rósa sé látin. Ég get alls ekki
orðað slíkt bréf, hugsaði hún
með sér. Hann er einn í fram-
andi landi og á þar enga vini.
Ef hann fær að vita, að stúlkan,
sem hann elskar sé ekki lengur
á lífi, mun hann missa allan
kjark. Það ríður honum að fullu.
Rósa hafði sagt, að báðir for-
eldrar hans hefðu látizt í loft-
árás í stríðinu. Hann stóð einn
uppi í veröldinni og átti engan
að, nema Rósu.
Það væri blátt áfram grimmd-
arlegt af henni, að segja honum
að Rósa hefði farizt á sviplegan
hátt af slysförum, örskömmu
eftir að hann fór til Suður-Afr-
íku. Svo grimm og ómannúðleg
get ég ekki verið, hugsaði hún.
Það verður að bíða þar til síð-
ar, þegar hann er búinn að koma
sér fyrir og eignast nýja vini.
Eitthvað í líkingu við þetta
voru hugsanirnar, sem flugu upp
í huga Agöthu Dornberg eins og
leiftur. f morgunsárið stóð hún
á fætur og opnaði bréfið:
— Elskan mín. Ég er kominn
hingað heilu og höldnu. Eftir
nokkra daga fer ég lengra inn í
landið. Hvað ég er hamingju-
samur yfir því að hafa hitt þig.
Hugur minn er hverja stund hjá
þér....
Bréfið var allt í þessum dúr,
þrjár þéttskrifaðar blaðsíður. —
Ástin sat vissulega í fyrirrúmi
og skaut upp kollinum, þótt
hann skrifaði henni um allt
annað.
Á því andartaki, sem Agatha
lauk lestri bréfsins, tók hún
ákvörðun, sem nefna mætti
miskunnsama lygi eða hvíta
lygi:
GIRNI
0G
STENGUR
SPORTBÆR
BANKASTRÆTI 4 - SÍMI 18027
Karlmannaföt í miklu úrvali.
Einrtig til gott úrval af stökum buxum og jökkum.
Sportskyrtur karlmanna á aðeins kr. 445,00.
Karlmannapeysur úr ull, odelon og krep.
Kreppeysur drengja í fallegum litum. Drengjaskyrtur.
Utsniðnar gallabuxur og terylinebuxur.
Svartar mittisblússur í drengja- og unglingastærðum.
Margs konar smávörur í miklu úrvali.
M/ÐSrÖÐ/AÍ BANKASTRÆTI 9.
44 VIKAN 29- tbl-