Vikan - 17.12.1970, Page 5
Er Nurejew búinn að
fá nýjan dansfélaga?
Rússneska ballettdansmærin
Natalia Makarova flúði í Lond-
on í arma samlanda síns Rudolfs
Nurejew. Þau voru búin að
dansa saman i níu ár við Len-
ingrad-Kirov ballettinn, þegar
hann bað um hæli sem flótta-
maður í París forðum. Síðan
hefur Nurejew aðallega dansað
með Margot Fonteyn, en eins og
allir vita er hún komin nokkuð
til ára sinna. Þegar brezka
dansstjarnan heyrði að Nurejew
hefði heldur betur fagnað sínum
fvrri dansfélaga, sagði hún:
Fg er nú ekki nema fimmtíu og
eins árs, svo það þarf engin að
koma í minn stað næstu ár.
Nú er eftir að vita hvort Nata-
lia fær hlutverk á móti Nure-
jew við leikhús. en þau eru nú
þegar búin að koma fram í sión-
varpi.
☆
# vísur vikunnar
Vísa um vindinn
Á jólanótt ef blæs veður,
andlát valdsmanna þá skeður;
aðra nótt ef verður vindur,
vill gróður lítt gleðja kindur;
þriðju nótt ef veður þylja,
þá kóngar við heiminn skilja;
fjórðu nótt ef fram gýs andi,
ferlegt hungur varð í landi.
(Úr Þjóðsögum Jóns Árnasonar)
Einn og tveir og
hoppa...
Þótt ótrúlegt megi virðist, þá
hefur ljósmyndarinn ekki „retú-
serað“ myndina svona; maður-
inn hefur hoppað svona hátt, og
er ekki að hoppa niður af þak-
inu. Annars tilheyrir hann fræg-
asta dansflokki Júgóslava, og
var myndin tekin er flokkurinn
kom í heimsókn til Lundúna og
sýndi þar í Sadler Wells-leik-
húsinu. Það er í rauninni óskilj-
anlegt, þegar allar þjóðir remb-
ast við að ala upp stjörnur á
öllum sviðum, að þessi maður
skuli ekki vera settur í landslið
Júgóslavíu i frjálsum íþróttum,
til dæmis hástökki. Og svo segja
iþróttafrömuðir okkar, bæði hér
og erlendis, að íþróttir séu fyrir
alla — en halda áfram að þjálfa
upp fáa útvalda.
☆
5i. tbi. VIKAN 5