Vikan


Vikan - 17.12.1970, Blaðsíða 8

Vikan - 17.12.1970, Blaðsíða 8
Tilvalriar jolagfjatir MIG DREYMDI Snjór upp að þaki Kæri draumráðandi! Mig dreymdi að ég væri stödd uppi á þaki á misháu húsi. Snjó- föl var á þakinu og fannst mér ég vera að renna fram af brún- inni. Ég var lengi að bagsa við að komast upp á mæninn og þegar það loksins tókst, fór ég að líta í kringum mig. Glaða- sólskin var og blankalogn, lít- ill snjór á jörðu og vegurinn auður svo langt sem augað eygði, en á bak við húsið voru stórir skaflar sem náðu upp á þakrönd. Sérstaklega fannst mér skaflinn vera meiri þeim meg- in sem húsið var hærra. Guðbjörg Þorsteinsdóttir. Þessi draumur er þér fyrir veik- indum, nokkuff alvarlegum en þó skammvinnum, þannig aff þú verffur sennilega nokkuff mikiff veik í mjög stuttan tíma. Rósir í hringleikhúsi Kæri draumráðandi! ■ Mig dreymdi að ég væri í Stjörnubíói með systur minni, sem heitir E. Þegar við komum inn var hálf-rökkur og þegar ég kem inn í sýningarsalinn finnst mér að E hafi tafizt frammi. En þegar ég fer að leita mér að sæti sé ég að þetta er alls ekki bíó, heldur hringleikahús og þar inni ríkir sama kyrrðin og sama rökkrið og er í bíói. Þegar ég er að ganga niður á milli sætarað- anna verður mér litið niður fyr- ir mig ög sé að ég er komin í síðan kjól, ljósbláan úr atlas- silki. Finnst mér kjóllinn geysi- fallegur, enda útsaumaður með silfri, en ég verð mjög hissa, því allir aðrir voru hversdagslega klæddir. Og þegar ég hef valið mér sæti þá uppgötva ég allt í einu að á næsta þrepi fyrir framan mig situr vinkona mín með syst- ur sinni, en þær heita S og A. Þær veita mér athygli um leið og ég þeim, svo við förum að tala saman. Allt í einu draga þær unr> stóran rósavönd og gefa mér án þess að nefna nokkra ástæðu, en ég varð auðvitað mjög hissa og glöð. Rósirnar voru dökk- rauðar og stilkurinn langur. Svo fannst mér sýningu vera lokið, en ekki man ég eftir að neitt hafi farið fram á sviðinu. Á leiðinni út mæti ég E ystur minni og sýni henni blómvönd- inn, en er þá komin með tvo aðra. Annan hvítan, og í honum voru eingöngu nellikkur og hinn líktist mjög brúðarvendinum mínum, með rauðum rósum og litlum, bláum blómum. Pinnst mér sá síðarnefndi vera farinn að eldast, rósirnar orðnar dökk- ar og linar og farnar að hanga. Ég verð mjög undrandi á öllum þessum blómum og gef E systur minni hvíta vöndinn, þar sem ég þurfi þetta ekki allt ein. Svo hugsa ég með mér: — Það er bezt að fara strax og setja rósavöndinn strax 1 vatn. Síðan vaknaði ég. Ég vona að ég fái ráðningu á þessum draumi sem fyrst. Með fyrirfram þakk- læti. Blásokka. P.S. Hvað segir skriftin? Sama. Skriftin er dálítið hroffvirknis- Ieg og gæti veriff merki þess aff þú ert eilítið kærulaus. Staf- setningin er ekki nógu góff og stíllinn ekki heldur. Draumur þessi er þér annars fyrir lítilvægum erfiffleikum innan skamms, en síffar fyrir mikilli gleffi og hamingju og nær tvímælalaust í sambandi viff nýj- ar og miklar ástir. Kristur Kæri draumráðandi! Ekki alls fyrir löngu dreymdi mig að Kristur kæmi til mín og talaði við mig. Ekki man ég hvað hann sagði, en ég veit það eitt, að mér leið ákaflega vel á með- an, og eins er ég vaknaði. Þó hef ég aldrei talizt sérlega trúaður maður. Stebbi. Sumir hafa haldiff því fram aff þaff sé fyrir sorg aff dreyma Krist, en gömul kona sagffi okk- ur þetta: Þaff boffar ávallt gott eitt aff sjá Krist í draumi og heyra hann tala. Þaff getur líka verið holl áminning um bætt líf- erni. Þetta er einn bezti draum- ur sem boriff getur fyrir fólk. Svar til Svanhvítar Ef merkingaratriffum þessa draums er raffaff niður í þeirri röff sem þau koma fyrir, þá byrjar þaff á því aff þú verður fyrir einhverju happi, sennileg- ast fjárhagslegu. Síffan bendir allt til þess aff af þér verffi stol- iff einhverju, mögulega fjármun- um, en á eftir því koma fyrir nokkur atriffi, sem benda til lieilsubrests, þó ekki alvarlegs, og tjóns. En síðustu tvö atriði draumsins boffa þér ríkidæmi og velgengni, svo ekki er gott aff segja hvaff þetta á aff þýffa allt saman. Helzt erum viff á að þér sé óhætt aff taka þessi atriffi nokkuff alvarlega. 8 VIKAN «• »1.

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.