Vikan - 17.12.1970, Síða 27
I
I
Sonliia Loran óskar
bess innleoa aó
sanur hennar
eionist svstkin
Hann á reyndar systkin, en
þau eru orðin fullorðið fólk og
sjást hér á einni myndinni, sitt
hvorum megin við föður sinn.
Sophia Loren og Carlo Ponti
búa með syni sínum og barn-
fóstru í stórri höll, og spáð er
að einhvern tíma verði þessi
barnfóstra fræg, þegar hún fer
að skrfia æviminningar sínar,
því að hún hefur verið barn-
fóstra Carlos litla, frá því hann
fæddist.
Höllin er eins og gullið búr,
sem Ponti hefur reist kringum
konu sína og son. Drengurinn
hefur heila íbúð út af fyrir sig,
en það er sagt að hann sé frek-
ar alvarlegt barn, sjaldan glað-
ur, þrátt fyrir allan munaðinn.
Hann á enga leikfélaga, hann er
aldrei óhreinn; hann fær ekki
að sulla í vatni, eins og önnur
börn. Matseðillinn hans er ná-
kvæmlega saminn og það er
barnfóstran fröken Pabst, sem sér
um að öllum hans þörfum sé
framfylgt.
Mamma hans matar hann
stundum, eða horfir á þegar
fröken Pabst gerir það. Föður
sinn sér Carlo litli sjaldan, hann
er af þeirri kynslóð ítala, sem
umgangast börnin sín ekki nema
á sunnudögum.
Sophia óskar þess heitt og inni-
lega að hún eignist annað barn
og örugglega yrði það mikið lán
fyrir þennan litla og einmana
dreng.
5i. tbi. VIKAN 27