Vikan


Vikan - 17.12.1970, Síða 29

Vikan - 17.12.1970, Síða 29
Regnið var loksins komið, eftir mesta þurrkasumar í manna minnum. Það dundi á rúðunum. Hitinn lækkaði um fleiri gráður og það dimmdi í stofunni, en Cissi tók ekkert eftir því. Hún sat á hækjum sér við hliðina á segulbandstækinu og horfði á ná- fölt andlitið og ljósa hárið. Nú var leitinni lokið, hún hafði fundið móður Mikaels. Hún kink- aði hægt kolli, eins og svefn- gengill. — Sylvia. Það ert þá þúl — Já. En þú hefir aldrei í al- vöru haldið að það væri einhver ókunnugur. Rödd Sylviu van der Heft var hvell. Cissi reis upp. — Nei, ekki einhver ókunnug, en ég hafði þrjár konur að velja um. Það gat verið þú, Elisabeth Sture og .... Cissi þagnaði. Það var ekki nauðsynlegt að draga Kötju inn í þetta. Sylvia hló. — Elisabeth Sture! Það er nú einu sinni svo að það þarf tvo til að geta barn. Hún reynir að láta sem hún sé mikið fyrir karlmenn, en ég hélt að allir vissu að hún myndi ekki einu sinni þora að láta nokkurn mann koma nálægt svefnherberginu sínu, hvað þá annað. Það fær örugglega enginn nema Seved Sture að snerta hana, og hann vill ekki eða nennir ekki að standa í því. Cissi hrökk við. Það var eitt- hvað óhugnanlega kalt í augna- ráði Sylviu. . — En hversvegna, Sylvia? — Hversvegna hvað? — Hversvegna lagðir þú Mik- ael í þessa körfu? — Kemur það þér við, Cissi? Cissi fann reiðina blossa upp í sér. Hún settist, óboðin, í hæg- indastól, hinum megin við borð- ið. — Finnst þér það ekki, Sylvia? Er ég ekki búin að annast Mikael í allan þennan tíma? Ég hefði getað fengið lögreglunni hann, en ég gerði það ekki, vegna þess að ég hafði hugboð um að móðirin vildi það ekki. Hefi ég ekki ein- hvern rétt til að vita hvernig í þessu liggur? Sylvia kinkaði hægt kolli, án þess að líta á Cissi. — Það getur verið. Þú getur líka fengið að heyra eitthvað af því. Ég setti Mikalel þarna í stigaganginn í hreinu ofboði. Ég vildi bjarga honum frá tengda- föður mínum. — Veit hann ekki um tilvist Mikaels? — Nei. Það eru reyndar ekki margir sem gera það. Ég hefi ekki tilkynnt yfirvöldunum fæð- ingu hans. — En hvernig hefir þú getað Loksins hafSi Cissi fundiS móSur Mikaels. Og orSin, sem hún hafSi lengi kviSiS fyrir, létu ekki standa á sér: - Ég vil fá barniS mitt aftur... 12. HLUTI SÖGULOK 28 VIKAN 5i. tbi. hans með að láta taka fóstrið. Ári síðar var ég orðin leið á Leo og vildi hætta við hann. En Leo var ekki orðinn leiður á mér og hann elskaði mig heitt, heldur til að neyða mig í hjónaband. Það var reyndar ekki vegna þess að han nelskaði mig heitt, heldur til að sýna mátt sinn. Líklega var það af sömu ástæðu að hann vildi ekki láta mig fá skilnað, þrátt fyrri að hann var sjálfur búinn að missa áhuga á mér. Hann naut þess mest af öllu að hafa vald yfir öðrum. — En þegar hann fórst? Hvers- vegna þurftir þú að halda þung- un þinni leyndri? — Eins og ég sagði áðan, vegna tengdaforeldra minna. Þau höfðu andstyggð á mér, en ég gat verið þeim heppileg, ég gat eignast barn. Þau óskuðu innilega eftir barnabarni. Otto van der Heft vissi vel að sonur hans var mesta skepna. Hann hafði aldrei hugsað sér að láta hann taka við fyrir- tækinu. Leo var aðeins til mála- mynda hluthafi. Faðir hans fyr- irleit hann og lét hann aðeins hafa litla upphæð mánaðarlega. Þessvegna reyndi Leo að auka tekjur sínar með fjárhættuspili, fjárkúgun og slíkum myrkra- verkum. Þetta var orðinn hrein- asti vítahringur hjá honum. • En ég gerði strik í reikninginn. Konsúllinn vildi eignast sonar- son, sem hann gæti arfleitt, auð- vitað með þeim forsendum að útiloka okkur Leo bæði frá því að erfa nokkurn skapaðan hlut. Þetta vissi Leo og hann var ákveðinn í því að hann skyldi ekki eignast barn áður en faðir hans létizt. Því að þá gat enginn komið í veg fyrir það að hann fengi hlutdeild í fyrirtækinu. En flugslysið breytti öllu ... Það var hætt að rigna og kyrrð- in var þrúgandi. - Ég vissi að ef konsúllinn kæmist að því að ég eignaðist barn, myndi hann taka það frá mér og ala það upp á sinn hát.. Hann myndi reyna að láta það feta í sín fótspor. — Hann hefði aldrei getað tek- ið barnið af þér, sagði Cissi, — ekki á móti vilja þínum. Sylvia hló, gleðivana hlátri. — Þú heldur það .Hann er rík- ur, hann er valdamikill, ég er hvorugt. Hann hefði fundið ein- hver ráð. Fyrr eða síðar hefði hann fundið eitthvað til að hanka mig á. Honum hefði verið trú- andi til að komast að fóstureyð- ingunni og að öllum líkindum tilkynnt það lögreglunni og lát- ið dæma barnið af mér. Eða eitt- hvað í þá áttina. En aðalatriðið er að hann fái aldrei að vita um Mikael. Þú getur ímyndað þér hve skelfingu lostin ég varð, þeg- ar ég kom heim með Mikael. Ég sá hann í glugganum og vissi að hann hafði líka séð mig. Hvað átti ég að gera? Þá kom ég auga á körfuna og hljóp upp stigann með hana, á síðustu stundu, áður en frú Skop- alski kom fram aftur. Svo lagði ég drenginn í körfuna, ýtti henni inn í gluggaskotið og fór inn til mín. Þegar tengdaforeldrar mín- ir voru farin, þá flýtti ég mér upp, en varð skelfingu lostin, þegar ég sá að karfan var horfin. Ég var dauðhrædd um að sá sem hafði tekið barnið, hefði fengið það lögreglunni. Þegar ég heyrði mannamál, opnaði ég rifu á dyrn- ar og hlustaði. Þá heyrði ég að þú varst að biðja Willie Samson um mjólk, svo mér var ljóst að þú hafðir tekið barnið. — Ég skil ekki hversvegna þú komst þá ekki upp til að sækja drenginn. — Ég veit ekki siálf hvers- vegna. Ég þekkti þig ekki og gat ekki komið með neina skýringu. Ég gat ekki einu sinni hugsað skýrt. En þegar ég sá að þú hafð- ir ekki tilkynnt lögreglunni þetta, þá flýtti ég mér að taka saman það litla sem ég átti af fötum handa honum og setti alla pen- inga sem ég hafði í pakkann. Ég vonaði að þú skildir að ég bað þig raunverulega um hjálp. Cissi kinkaði kolli. — Ég skildi að þetta var bæn um hjálp, en ég varð að hafa hann fyrsta kastið. Nú var hún búin að segja það, — hugsa um hann fyrsta kastið. En hve lengi? Það var eins og að Sylvia gæti lesið hugsanir henn- ar. Þær horfðust í augu, og Cissi sá einhvern vott af tortryggni í augum hennar. — Eftir jarðarförina, Cissi! Cissi var þurr í munninum. Meðan á samtalinu stóð hafði Cissi orðið vör við tilfinningu, sem varð æ sterkari, óeðlilega tilfinningu, en hún varð ein- hvernvegin að koma orðum að henni. Hún heyrði sína eigin rödd, ósköp vesældarlega. — En heldurðu að þú sért fær um að hafa barnið eins og er, Sylvia? Það var dauðaþögn, en svo svaraði Sylvia, taugaóstyrk og æst. — Hvað áttu við. — Mér finnst að þú sért ekki reglulega með sjálfri þér núna. Þú hefir þurft að ganga í gegn- um svo mikið og ert taugaóstyrk og æst. Væri ekki heillavænleg- ast að sjá til... Meðan Cissi var að tala, beygði Sylvia sig yfir hana og greip Framhald á bls. 43 Sylvia slökkti í hálfreyktri sígarettunni og hélt áfram, með hljómlausri rödd:: — Ég hitti einu sinni pilt, sem gerði mig ófríska. Það var hrein tilviljun og kæruleysi og ég vildi ekki giftast honum. Ég var nítján ára. Seinna hitti ég Leo og varð yfir mig ástfangin af honum. Ég var svo ástfangin, að ég fór að vilja leynt þessu? Ég á við meðgöngu- tímann ... — Það voru einu hlunnindin við að ganga í sorgarbúningi allt sumarið í þessum hita, Cissi. Ég umgekkst ekki nokkurn mann, og þeir sem sáu mig á ferli, gátu ekki séð á mér, vegna þess að kápan mín var svo víð. Ég varð reyndar ekki svo fyrirferðar- mikil. — En fæðingin? — Ég fæddi á sjúkrastofnun, sem. virðir þagnarheiti. — Var það sami læknirinn sem ... Cissi þagnaði og roðnaði upp í hársrætur. Sú hlið málsins varð að vera algert einkamál Sylviu. En Sylvia virtist vera alveg köld fyrir því. Hún svar- aði rólega: — Já, það var sami læknirinn, sem losaði mig við hitt barnið. 81. tbi. VIKAN 29

x

Vikan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.