Vikan - 28.01.1971, Qupperneq 3
4. tölublað - 28 janúar 1971 - 33. árgangur
Jötnar
í himin-
geimnum
Frumsýn-
ingargestir
á Fást
Vitneskja okkar um himin-
geiminn er enn næsta fá-
tækleg, þrátt fyrir stór-
stígar tækniframfarir. Ný
kenning hefur komið fram
í þeim efnum og heldur
betur nýstárleg. Hún er í
stuttu máli á þá leið, að
jötnar úr himingeimnum
hafi komizt til jarðarinnar
í fornöld. Sjá grein
á bls. 8.
Frumsýning í Þjóðleik-
húsinu á annan jóladag er
atburður, sem færri en
vilja fá tækifæri til að
vera viðstaddir. Á fjórum
síðum 1 miðopnu blaðsins
eru að þessu sinni svip-
myndir frá frumsýningu
ársins — Fást.
EFNISYFIRLIT
GREINAR bls.
Jötnar í himingeimnum 8
Papillon, síðasti hluti 10
Á næstu Olympiuleikjum keppi ég í hjólastól 14
Umhverfis ísland á skútu 16
Við og börnin okkar: Hvers vegna er Kalli ekki eins og ég? 21
Palladómur um Jónas Rafnar 22
Island fær auglýsingu í heimspressunni. Þegar bylting var gerð i Reykjavík, 3. hluti 24
SÖGUR
Mynd af Lísu, smásaga 12
Gullni pardusinn, framhaldssaga, 2. hluti 18
Gleymdu ef þú getur, framhaldssaga, 4. hluti 30
Smásagan:
Myncl
af Lísu
FASTIR ÞÆTTIR
Pósturinn 4
„Runnarnir fyrir utan Mig dreymdi 6
gluggann stóðu í blóma. Er þetta mögulegt, hugsaði ég. Er sumarið komið?“ — Þrátt fyrir froshörkur og vetrarríki á útmánuðum 1 fullri alvöru 7
Heyra má 32
Myndasögur 35, 38, 42
hefst smásaga vikunnar á þessum fallegu orðum. Hún heitir Mynd af Lísu Stjörnuspá 34
Krossgáta 47
og er á bls. 12. Síðan síðast 48
I næstu viku 50
KÆRI LESANDI!
/ þœttmum „Síðan síðast“ ajtast
í þessu blaði getur að líta sýnis-
hom af botnum, sem okkur bárust
við fyrriparti, sem birtist í fyrsta
tölublaði þessa árs. Við höfðum
grun um, að margir liefðu gaman
af að botna vísur, þótt almennt sé
því haldið fram, að hagmœlsku
þjóðarinnar hafi stórlirakað hin síð-
ari ár. En ekki þorðum við að vona,
að þátttakan í þessum leilc yrði eins
mikil og raun varð á. Okkur barst
fjöldi botna á liverjum einasta degi,
alls staðar að af landinu. Þrátt fyr-
ir byltingu í Ijóðagerð, virðist
vísnasmíð blómgast sem tóm-
stundagaman meðal almennings, og
ekki verður séð, að kunnáttuleysi
í bragfræði sé tiltakanlega meira
en það hefur alltaf verið.
Skemmtilegast þótti okkur bréf-
ið, sem barst frá þeim fræga bœ,
Hála í Suðursveit, þar sem Stein-
þór Þórðarson, bróðir Þórbergs
Þórðarsonar rithöfundar, býr.
Steinþór er óþarfi að kynna. Hann
mælti af munni fram í útvarpinu
minningar sínar af fágætri snilld,
og „bókin sem aldrei var skrifuð“
varð metsölubók fyrir síðustu jól.
1 bréfinu voru vísubotnar frá sex
manns á lieimilinu, 9—78 ára.
Ef til vill er gleðilegast við þetta
bréf, að œskan virðist enginn eftir-
bátur hinna fullorðnu í þeirri gömlu
og góðu íþrótt að botna vísur.
ÝMISLEGT_________________________
Frumsýning ársins í Þjóðleikhúsinu, fjórar
myndasiSur af frumsýningu á Fást 26
FORSÍÐAN__________________________
Við töku tízkumynda er leitazt við að hafa um-
hverfið sem frumlegast. Þessi fallega mynd,
sem birtist í splunkunýju frönsku tizkublaði, er
tekin í Saharaeyðimörkinni með úlfalda í baksýn.
En aðalatriðið er að sjálfsögðu hin frumlega,
rauða flík.
VIKAN Útgefandi: Hilmir hf. Ritstjóri: Gylfi
Gröndal. Blaðamenn: Dagur Þorleifsson, Matthildur
Edwald og Ómar Valdimarsson. Útlitsteikning: Hall-
dóra Halldórsdóttir. Auglýsingastjórar: Sigríður
Þorvaldsdóttir og Sigríður Ólafsdóttir. — Ritstjórn,
auglýsingar, afgreiðsla og dreifing: Skipholti 33.
Símar: 35320 — 35323. Pósthólf 533. Verð í lausa-
sölu kr. 60,00. Áskriftarverð er 575 kr. fyrir 13 tölu-
blöð ársfjórðungslega, 1100 kr. fyrir 26 blöð miss-
erislega. Áskriftargjaldið greiðist fyrirfram. Gjald-
dagar eru: nóvember, febrúar, maí og ágúst.
VIKAN 3