Vikan - 28.01.1971, Blaðsíða 5
Ekki er pósturinn svo fróður a3
hafa lesið umrætt blað, en áreið-
anlega verður bréf þitt til að vekja
áhuga hans á því, heldur en hitt.
Svo er að skilja á bréfinu að þú
sért einkum hneyksluð yfir tvennu
í því, annarsvegar því sem þú
nefnir klám og hinsvegar and-
bandariskum áróðri. Ekki fáum við
nú annað séð en hér sé um nokk-
uð óskyld atriði að ræða. Fróðlegt
væri líka að heyra hvaðan þér
kemur sú vitneskja að kommún-
istar (hverja sem þú nú átt við með
þeim titli) séu gefnari fyrir klám
og eiturlyf en gengur og gerist.
Þá kemur og fram hjá þér sú
grilla, sem furðu margir virðast
hafa fengið á heilann, að hrein-
læti fólks standi í einhverju sam-
bandi við hárvöxt þess. Nú er það
vitað mál og maður skyldi ætla að
það væri ekki annað en allir vissu,
að fólk hefur alla tíð verið mis-
jafnlega hreinlátt, og aldrei höf-
um við heyrt neitt sem bendi til
þess að siðhært fólk sé upp og
niður sóðalegra en gengur og ger-
ist.
Og meðal annarra orða: veiztu
nokkuð með vissu um útlit þeirra
sem skrifuðu nefnt skólablað? Það
skyldi þó aldrei vera að þeir væru
snoðklipptir englabassar sem dag-
lega ganga með hvítt um hálsinn?
Það er annars ekkert nýtt að
hneykslast sé á „kláminu", aðrir
bréfadálkar hafa fengið meira á
því að kenna en Vikupósturinn.
Okkur er fortalið að meðal þeirra,
sem mest hafa óskapast út af þvi
að kynferðismál skuli tekin frjáls-
lega til meðferðar opinberlega séu
menn, sem sjálfir væru al-
ræmdir klámkjaftar í einkalífi sínu.
Og spursmál er hvort ekki sé öllu
ógeðslegra að temja sér slikt prí-
vat, umhverfi sínu til stórra leið-
inda, heldur en að fjalla pukur-
laust og hlutlægt um kynlífið í
ræðu og riti, eða í kvikmyndum.
Blöð og bækur þarf þó enginn að
lesa frekar en hann vill, og
enginn þarf að sjá kvikmyndir
frekar en hann vill.
Hugleiðingar þínar varðandi al-
þjóðamál og Vietnam sér Póstur-
inn ekki ástæðu til að ræða, en ef
einhverjum finnst taka því er hon-
um heimilt rúm hér í þættinum.
Palladómi mótmælt
í 51. tbl. Vikunnar er palladóm-
ur um Jónas Pétursson alþingis-
mann. í þessari ritsmíð er farið
langt yfir þau mörk velsæmis sem
gera verður kröfu til af þeim, sem
þykjast ætla að skrifa hlutlausa og
sanna dóma um menn og málefni.
I þessum palladómi er þrítekið
fram að bústjórn Jónasar Péturs-
sonar á Skriðuklaustri hafi ein-
kennst af slóðaskap og gefið í
skyn að vanhirða hans um fénað
hafi verið slík að landsskömm hafi
verið að.
Þessum aðdróttunum er bezt að
svara með einu orði, að þær eru
lygi frá rótum, og ef Hr. Lúpus'
ætlast til þess að dómar hans um
þingmenn séu teknir alvarlega, þá
er honum sæmst að biðja Jónas
Pétursson afsökunar í Vikunni,
annars hljóta skrif hans að teljast
rógur einn og að engu hafandi.
Um Jónas Pétursson vil ég segja
þetta: Ég hygg að meira snyrti-
menni muni vandfundið, oq sem
fjármaður og fjárræktarmaður á
hann fáa sér líka á þessu landi. Er
fjárstofn tilraunabúsins á 4Skriðu-
klaustri þar Ijósast dæmi. Árið
1949 tók Jónas bar við ósam'tæðri
hiörð aðkeyptri frá að minnsta
kosti þrem stöðum, en skilaði bví
af sér 13 árum seinna sem einn'i
glæsilegustu og samstæðustu fiár-
hjörð sem til er á einu búi hér á
landi.
Þetta dæmi læt ég nægja til
þess að sýna fram á hversu fjar-
stæðukennd ummæli Lúpusar eru.
Um önnur ummæli Lúpusar um
Jónas læt ég vera að ræða, en er
þeim á engan hátt sammála. Ég
álít að ef skrif Lúpusar verða í
sama dúr framvegis að þá sé við
hæfi að breyta nafni greinanna og
nefna þær framvegis sleggjudóma
um þingmenn.
Jónas Pétursson mun nú um
sinn hverfa af þingi og verður við-
skilnaður austfirskra sjálfstæðis-
manna við hann þeim til ævarandi
skammar. En samt el ég þá von í
brjósti að gæfan hafi ekki með
öllu snúið bakið við oss austfirð-
ingum og Sverrir Hermannsson
verði aldrei fulltrúi okkar á þingi.
Ég geri þá kröfu til Vikunnar að
hún birti bréf mitt óstytt, þar eð
hún hefur farið yfir mörk al-
menns velsæmis og birt lygar og
róg um einn af ágætustu mönnum
þjóðar vorrar.
Virðingarfyllst,
Hrafnkell A. Jónsson,
Klausturseli,
Jökuldal,
N.-Múl.
ERUM
FLUTTIR
i HÚS OKKAR AÐ
SUÐURLANDSBRAUT 10
ÞAR BJÓÐUM VIÐ YÖUR ALLAR TRYGGINGAR, BETRI
ÞJÓNUSTU. HAGTRYGGINGARHÚSIÖ ER í ALLRA LEIÖ -
NÆG BÍLASTÆDI.
<$> HAGTRYGGING HF.<f>
síMi- 8-5588
Okukennsla
Æiingarlímar
Hdgi dí- Scssilíusson
Bólsiaðahltð 42 - Sími 813U9
4 tbi. VIKAN 5