Vikan


Vikan - 28.01.1971, Page 6

Vikan - 28.01.1971, Page 6
BÚSLOÐ SPIRA •________ ~ II I-- TftMEIir I 3 svefnbekkurinn hannaður af Þorkeli G. Guðmundssyni] BÚSLOÐ HÚSGAGNAVERZLUN VIÐ NÓATÚN — SfMI 18520 Athugið Ef þú ert að byggja eða þarft að bæta og jafnvel ef þú vilt breyta, þá teljum við það hagkvæmt að líta við hjá okkur, því að sjón er sögu ríkari gagnvart vöruúrvali. Gott verð. LITAVER iSVEÖ 22-24 30280-32262 cJreymdi Skurður á kvið Kæri draumráðandi! Fyrst af öllu vildi ég þakka ykk- ur fyrir alveg hárrétta ráðningu á draumi sem ég sendi ykkur fyrir stuttu. En nú er ég svolítið nervös út af draumi sem mig dreymdi ekki alls fyrir löngu. Mér virtist hann svo óhuggulegur, að ég er viss um að hann boðar ekki gott. Draumurinn er svona: Ég var stödd meðal fjölda ann- arra skólakrakka fyrir utan háar byggingar, og vorum við öll á hlaupum til að verjast miklu grjót- kasti, sem að okkur var beint. Ein- hvernveginn dróst ég afturúr, og að síðustu var ég orðin ein; átti eftir um það bil 20 metra að hin- um krökkunum sem voru öll lögst á götuna. Allt í einu kom ég auga á Itíið barn í þvögunni, og var það stúlka. Og áður en ég vissi af hafði strák- ur, á að gizka 12 ára hent í það steini. Barnið fór auðvitað að gráta og ég hljóp að því óhindruð. Um leið og ég tók það upp athuqaði ég undir skyrtuna og sá að blóð rann framan á maganum. Ég hljóp með það áleiðis heim og var í engum vafa með hvar það ætti heima, þótt ég kannaðist ekkert við barnið. Aður en ég fór inn í húsið athugaði ég sárið aftur og beint framan á kviðnum var stór skurður. Mér fannst sem blóð og þvag kæmi úr sárinu og rann það um höndina á mér. Þegar ég loksins komst inn til móður barnsins, var það að mestu mðevitundarlaust, en þegar ég tók það upp af götunni var það grát- andi og virtist ánægt á svipinn. Þegar ég sá að það var orðið með- vitundarlaust hugsaði ég með mér að það væri örugglega vegna eitr- unar sem kæmist um líkamann vegna þvagsins. Éq fór inn í bað- herbergið, dýfði höndinni í kalt vatn og setti á kollinn á barninn Þá komst það aftur til meðvitund- ar og gerði mig hamingjusama. Svo kom sjúkrabíll og fór með það. Sfðar um kvöldið saoði mamma mín að barnið væri dáið. Það fékk óskaplega mikið á mig og ég grét allt hvað af tók. Frændi minn, sem býr f Reykjavík, giftur og á barn, kom þá og huggaði mig með því að kyssa mig í lengri tíma. Þegar hann loksins reis upp, þá slefaði hann svona ferlega bæði á mig og við hliðina . . . Lengri varð draumurinn ekki, en alveg nógu ógeðfeldinn fyrir það. Ein tæplega 17 áraog berdreymin á Akureyri. Tarna var skrítinn draumur, og svo sannarlega fyrirboSi eins og annars. í honum skiptast á skin og skúrir, en aðalinntakið er þó að miklar framfarir munu eiga sér stað í lífi þínu og á endanum ræð- ur sigursældin öllu. En ef við för- um út í smáatriðin, þá er ekki ólík- legt að innan skamms berist þér einhverjar fréttir, stórtíðindi, og er sennilegt að þeim fréttum fylgi einhver óþægindi; helzt þykir okk- ur sem þú fáir fréttir af einhverjum slysförum eða háska ættingja eða vina. Inn í þetta kemur svo góð heilsa þín, eins og við sögðum, þá er síðasta merkingaratriðið í draumnum, nafn frænda þíns, fyr- ir sigursæld og velgengni. Tennuh í spegli Kæri draumráðandil Mér fannst ég vera að skoða mig í spegli og tók þá eftir því að þrjrá tennur vinstra megin voru svartar (tvær framtennur og augn- tönn). Mér fannst ég taka utan um tennurnar og losnuðu þær þá all- ar þrjár, en ekkert blóð fylgdi þvf. Þá tók é ghníf og skóf tennurnar, en þær héngu allar saman. Þegar ég hafði skafið þær urðu þær allar hvítar og fallegar, og þá þrýsti ég þeim á sinn stað. Mér fannst ég finna þær gróa fastar og síðan leit ég aftur í spegilinn og dáðist að því hve fallegar þær voru. Þakka fyrirfram. S.S. Þetta er sannarlega óvenjulegur draumur. Svo óvenjulegur, að við erum með tvær ráðningar á hon- um. Sú fyrri er á þá leið að þér takist, með mikill ákveðni og röag- semi, að hreinsa af þér slúðursög- ur sem virðast ætla að reynast þér hættulegar, og sú síðari er þér fyr- ir langlífi en fyrir láti einhvers vinar þíns. Sú fyrri þykir okkur þó trúlegri. (5 VIK'AN 4 tw.

x

Vikan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.