Vikan


Vikan - 28.01.1971, Blaðsíða 23

Vikan - 28.01.1971, Blaðsíða 23
og sú varð brátt raunin á þessum slóðum. Hræðslu- bandalag 'Alþýðuflokksins og Framsóknarflokksins við alþingiskosningarnar 1956 gerbreytti allt í einu vígstöðunni á Akureyri, svo að uggvænleg bætta steðj- aði að Jónasi G. Rafnar. Orrustan i höfuðstað Norð- urlands þótti vopnaleikur prúðra drengja, en keppi- nautarnir lágu samt enpan veginn á liði sinu. Fór svo, að Friðjón Skarpliéðinsson þáverandi dómsmálaráð- lierra hlaut 1579 atkvæðli Akurevringa og fimmtán umfram Jónas G. Rafnar, er sat heima með sárt enn- ið. Hins vegar átti Jónas ekkcrf á hættu í fyrri kosn- ingunum 1959, ])ar eð allir kærleikar með Alþýðu- flokknum og Framsóknar- flokknum voru þá úr sögu og hin gamla regla aftur í gildi um lilutskipti atkvæða. Rar hann úr býtum 1549 atkvæði og gekk á ný keik- ur til sætis á alþingi. Hann skipaði efsta sæti á fram- boðslista Sjálfstæðisflokks- ins á austanverðu Norður- landi haustið eftir og varð annar þingmaður kjördæm- isins og síðan endurkosinn 1963 og 1967. Nú lætur hann af þingmennsku við næstu kosningar og mun ætla sér náðuga daga. Jónas G. Rafnar er for- seti efri deildar og stýrir fundum hennar þannig, að öllum likar. Eitthvað mun hann hafa komið til tals sem ráðheri*aefni i sumar leið eftir að Jóhann Haf- stein gerðist oddviti rikis- stjórnarinnar við sviplegt fráfall Bjama Benedikts- sonar, en það spjall féli nið- ur, og Auður Auðuns Iircppti sessinn tigna. Auk ættarfylgisins hefur Jónas einkum notið kurteisi sinnar og snyrtimennsku meðal kjósenda á Akur- eyri, enda cr maðurinn fríð- ur sýnum, alúðlegur í við- móti og vel til fara. Jónas þótti og liðtækur þingmað- ur framan af, brást þægi- lega við tilmælum og rejmd- ist laginn að koma fram málum. Lætur honum einn- ig prýðilega að koma á framfæri óskum sinum um pólitíska liðveizlu, enda geðprúður og hófsamur, en þó ýtinn. Jónas G. Rafnar biður um atkvæði kjós- enda fremur með augunum en vörunum. Eigi að síður er liann kappsfullur og hör- undsár. Sveið honum til- finnanlega hyltan 1956 og gerðist upp úr þvi eins og miður sín. Hefur .Tónas þá sennilega fundið til þess, hvað veraldarframinn er sleipt kefli í hendi, og tek- ið að ilniga, hvort lysti- snekkja hans væri ekki bet- ur komin inni á lygnum polli en úti á úfnu hafi. Hann telst varla skörungur i bankastjórastól, en skip- ar hann myndarlega og lætur sér liða vel í því hæga sæti. Jónas G. Rafnar hefur ekki mátt sin mikils í orða- sennum á alþingi eða í hér- aði. Hann likist í móður- ættina um létt hjal fremur en honum kippi í föðurkyn- ið um mælsku og ritleikni. Jónas er hins vegar svo slyngur i umgengnisháttum Steinnesmanna, að hann kemst af án skapsmuna Jónasar afa síns og kimni föðurins og verður þó far- sæll. Hann beitir aldrei hörku í samskiptum, en krækir sér hægt og rólega i drjúgan skammt á disk sinn úr hverjum eftirsókn- arverðum potti. Samt mun hann ekki lvstugri en ger- ist og gengur og dregur sig þess vegna óvænt i hlé úr veizlunni, þó að enn væri þar von á mörgum bita. Framhald á bls. 43. 4. tbi. VIKAN 23

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.