Vikan


Vikan - 19.08.1971, Side 18

Vikan - 19.08.1971, Side 18
I Lifðu lifinu FRAMHALDSSAGA EFTIR H. SHEFFIELD FIMMTI IILUTI ROBERT Vió skröltum áíram að leigu- flugvélinni. Eg vissi fyrirfram að flugmaðurinn var einn af þessum andstyggilega peninga- gráðugu Ameríkönum, sem að mínu áliti eru hrein afhrök. Mér fannst ég vera óhreinn og taugaveiklaður og þurfti reglu- lega á því að halda að vera kaldur og kærulaur, því að mér var svo vel Ijóst hvað beið min. Hjarta mitt var suðvitað hjá stúlkunni yndislegu, sem sat við hlið mé’- og stýrði jeppan- um og reyndi árangurslaust að skilja afstöðu mína. Hvað hafði ég gjört? Ég hugsaði um þetta fram og aftur. Hvaða öngþveiti var ég búinn að koma sjálfum mér í? Hún var svo töfrandi, gjöful og elskuleg. Hvar var nú hinn fasti ásetningur minn um að hætta öllum framhjá- hlaupum og vera tryggur og trúr Catherine minni? En ég hafði ekki tíma til að hugsa um það á þessari stundu, ég þurfti að taka á öllu sem til var til að standast það sem beið mín. Ég settist í það sæti sem var ætl- að aðstoðarflugmanni og lét á mig heyrnartæki, til að heyra hvað flugmaðurinn sagði. — Þetta er Yankee Kilo flugstjóri, heyrirðu til mln? Ég heyrði vel til hans og sagði honum það. — Ertu með peningana? É'g fullvissaði hann um að svo væri og fleygði til hans umslagi með peningum í. Hann kinkaði koUi og bætti við: — Þegar við kom- um til Congo tekur þyrla við ykkur og flýgur með ykkur til búðanna. Þegar þið hafið lokið ykkur af, flýg ég aftur með ykkur til Uganda. En ég tek það f ram, að ef þið verðið gripnir, þá heyrið þið aldrei frá mér. Er það í lagi? Ég kinkaði kolli. Þessi tíkar- sonur, — leiguþýsblók, vissi að það var allt í lagi. Hann var eins og flóttalegur kaupmaður á brunaútsölu, viss um ágóða sinn, en þurfti samt að fá það staðfest. Þetta var þjófur, við- urstyggileg afæta, nothæfur eingöngu vegna þess að hann kunni til verka. Við þögðum mestan hluta leiðarinnar. Þessi maður var hluti af ofbeldinu, einn þeirra sem fela lífshættu- legar sprengjur undir steinum. Þessir menn auðga sjálfa sig á andstyggilegu ofbeldinu, og satt að segja vorum við Michael í þeirra hópi þennan dag, svo ég segi sem minnst. Flugmaðurinn lenti með okk- ur, snilldarvel, og þar beið þyrlan, sem átti að flytja okk- ur Michael til búða leiguher- mannanna, sem börðust fyrir þann sem hæst bauð, hvorum megin sem var. Þessir menn höfðu verið kallaðir „terror- istar“ eða „hinir hræðilegu". Þeir komu til móts við okkur, það var heil móttökunefnd, og það var ekki annað að sjá en að þeir væru hinir hressustu, þegar ég fór að tala inn á seg- ulbandið: — Þetta eru hinir frægu leiguhermenn, mennirn- ir í fremstu línu. Við erum í Congo, einhvers staðar milli Bouta og Stanleyville. Frammi fyrir okkur eru búðir leigulið- anna, „terroristanna“. Við höf- um oft séð slíkar herbúðir í sjónvarpinu, en þetta er í fyrsta sinn sem við erum staddir í þessum sérstöku búðum, til að líta í kringum okkur og sjá hvemig liðið er þjálfað, eins konar herskóli, sem sér um þjálfun leiguhermanna, sem hafa þetta að atvinnu, sem oft- ast er vel launuð. Foringinn horfði á mig og það gætti efa í augnaráði hans. — Heyrið mig, herra minn, þetta eru aðeins þjálfunarbúð- ir, yður hlýtur að vera það 1 jóst? Við höfðum verið að vaða upp að hnjám i vatni, sem var ekkert annað en gulleit leðja. Þetta var lækur, ekki samt nógu djúpur fyrir krókódílana, on við höfðum vaðið yfir marga slíka á leið okkar og ég talaði stanzlaust inn á segulbandið. Foringinn var mjög málgefinn og ákafur í frásögn sinni, sem óg held að hafi verið sannleik- anum samkvæm, sagði mér allt um sjálfan sig og félaga sína; við þjálfum pilta alls staðar ið frá Evrópu . . . — Unga menn? spurði ég meðan Michael hélt sig að myndatökunni. — O, ekki eingöngu. Þeir eru á öllum aldri. Meðaltalið held ég sé þrjátíu og fimm ár. — Hvaða atvinnu stunduðu þessir menn, áður en þeir komu hingað? — O, allt mögulegt, en aðal- lega eru þetta uppgjafa her- menn og lögregluþjónar, Reynd- ar eru flestir vanir vopnaburði, og . . . já . . þeir hafa ekkert á móti hernaðaraðgerðnm. — Hve margir leiguliðar eru hér? — Ja, það koma um það bil fjörutíu á viku. Þeir fá þjálf- un . . . Maðurinn baðaði út höndunum á franska vísu. Hann var svolítið skömmustulegur á svipinn, en samt hreykinn. Mér fannst hann fráhrindandi, en líklega var hann það alls ekki. Catherine hefði fundizt það, en hann var aðeins mannlegur. Hann var búinn að fá meira sjálfsöryggi, en þegar hann barðist í síðari heimsstyrjöld- inni. Hár hans var farið að þynnast, en hann var frekar góðlegur á svip. Já, jafnvel föðurlegur, eða afalegur, því að liklega var hann orðinn afi. Það, að hann væri fráhrindandi, sá ég líklega með augum konu minnar. Jafnvel Candice hefði ekki fundið neitt að honum. Hann var sem sagt „notalegur náungi". Ég brosti vingjarnlega, svo- lítið utan við sjálfan mig og sagði: — Ykkur þykir líklega ekki skemmtilegt að vera kall- aðir leiguhermenn? — Nei, en það er ekki. ein- göngu það . . við höfum ekk- ert sérstakt á móti því að vera kallaðir leiguhermenn . . . en við erum engin skrímsli. Sum- ir blaðamenn . . . sumir . . . ja, samverkamenn þínir, hafa kallað okkur „hræðilega" og alls konar ónefnum. Mér þyk- ir það slæmt, því að ég get ekki séð að við séum nokkuð verri en herir Sameinuðu þjóð- anna, sem gera það sama. Yið fáum reyndar ekki heiðurs- merki og höfum ekki sömu tryggingu. Þeir hafa tryggingu að baki sér, sem við höfum ekki. !& VIKAN 33. TBL.

x

Vikan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.