Vikan


Vikan - 19.08.1971, Blaðsíða 39

Vikan - 19.08.1971, Blaðsíða 39
hljómsveitinni og var sú hljóðrit- uð að viðstöddum áheyrendum. Strax rauk platan upp vinsælda- listana. „Við erum nokkuð ánægð- ir með plötuna," sagði Simon, „og vonum að aðdáendur okkar séu það líka. Við gerðum okkur grein fyrir því þegar við hættum, að margir yrðu mjög vonsviknir, en við vonum að þetta sama fólk verði opið fyrir því sem við ger- um í framtíðinni og hafi áhuga á nýju hljómsveitunum." „Þetta er síðasta platan sem FREE vann að." sagði Paul, „og í minum augum er hún saga hljóm- sveitarinnar. Þess vegna finnst mér hún ákaflega mikils virði, persónulega. A henni eru öll okk- ar vinsælustu lög og okkur þykir sérstaklega vænt um stúdíó-lagið, sem er eins konar yfirlýsing um það sem var að gerast innan hljómsveitarinnar þegar hún hætti." ☆ FER BJÖRGVIN ... ? Framhald af bls. 21 gera mér neinar gyllivonir. Þá verð ég ekki fyrir vonbrigðum. Ég tek þessu tækifæri ef það býðst, en stóla ekkert frekar á það á meðan það liggur ekki hreinna fyrir." Margoft hefur verið minnzt á LP-plötu þá sem Björgvin hefur verið að syngja inn á, en ennþá hefur ekki verið lokið við að taka hana upp. „Ef ég á að segja alveg eins og er," sagði Björgvin, „þá er ég.eiginlega búinn að fá leið á henni. Það hefur gengið ákaf- lega illa að komast inn í stúdíó hérna og nú er ég búinn að ákveða að hætta að láta þetta valda mér höfuðverk. Ég mæti í upptöku þegar mér verður sagt að mæta, en geri ekkert i þessu þess á milli, enda hef ég nóg annað að gera; við í Ævintýri reiknum með að fara til London einhvern tima í næsta mánuði að taka upp LP- plötuna okkar og því er nóg að gera." Komist Björgvin til Toyko ósk- um við honum til hamingju, ann- ars er það bara „töff lökk" og við bíðum í ofvæni eftir LP-plötunum tveimur. ☆ SYNDAGJÚLD CAPONES Framhald af bls. 17 Hann hafði auðvitað aldrei borgað eyri í skatt, og það var allt annað en auðvelt að sanna að hann ætti eyrisvirði. Capone hafði skrifað húseignir sínar í Chicago og Miami og landssetur sitt í Wisconsin á nafn eigin- konu sinnar. Hann hafði aldrei haft bókhald, bankareikning eða undirritað ávísun. Að sið gamalla maurapúka varðveitti hann peninga sína í viðarkistli, sem hann oftast hafði til fóta þegar hann svaf. Elmer L. Grey, yfirskatt- stjóri, varð gráhærður af áhyggjum út af þessu. Allur heimurinn vissi að Capone átti milljarða. En engin skrifuð sönnun fannst fyrir því að þessi auður væri til. Heldur en ekki neitt greiddi skattstjórinn at- lögu að Ralph, bróður Capones. Sumarið 1930 var Ralph Ca- pone dæmdur til þriggja ára fangelsisvistar ' fyrir skattsvik og hlaut auk þess að greiða á aðra milljón króna í sektarfé. A1 Capone varð hneykslaður. Hann sagði: „Það getur ekki verið löglegt að skattleggja peninga, sem græðzt hafa með ólöglegu móti. Mér finnst það hreinlega siðl^ust." En þá var þess skammt að bíða að röðin kæmi að honum sjálfum að taka gjöld glæpa sinna. í Lexington-hóteli, aðal- stöðvum hans í Chicago, hafði þá um skamma hríð hafzt við dökkhærður, sultarlegur ná- ungi, sem nefndist Michael Le- pito. Hann sagðist vera ræn- ingi frá Fíladelfíu á flótta und- an lögreglunni. A1 Capone lagði metnað sinn í að vernda glæpamenn á flótta. Þess vegna tók hann Lepito að sér og leyfði honum að gera sig heimakominn í sex her- berja svítu sinni á hótelinu. Það var mesta glappaskot, sem A1 Capone gerði um dagana. Michael Lepito var þrjátíu og eins árs, jafnaldri Capones. I raun réttri hét hann Mike Ma- lone og var einn færasti starfs- maður skattstofunnar í Wash- ington. Það tók hann ekki nema fáeina daga að finna út eftir- farandi: Fyrir hótelsvítuna borgaði bófakonungurinn hálfa þriðju milljón króna í leigu á ári. Ár- legir simareikningar hans voru helmingi hærri. Þá komst Ma- lone yfir sannanir fyrir því, að Capone stjórnaði smyglhring með útibúum yfir öll Banda- ríkin. Gimsteinakaupmaður einn minntist þess, að hafa selt Ca- pone þrjátíu demantskreyttar beltissylgjur og dýrlegan gull- borðbúnað fyrir hálfa þriðju milljón króna. í húsgagnaverzl- un einni hafði hann gert inn- kaup fyrir á fimmtu milljón heimurinn segirjá viS hinum togagyiltu BENSONand HEDGES 33. TBL. VIKAN 39

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.