Vikan


Vikan - 19.08.1971, Side 49

Vikan - 19.08.1971, Side 49
BOB DYLAN SKIPTIR UM NAFN Senn líður ekki á löngu, þar til allur heimurinn fer að tala um snjallan þjóðlagasöngvara að nafni Robert Zimmermann. Þar verður um að ræða hinn gamla og góða Bob Dylan, sem nú hefur skipt um nafn og heitir aftur það sem for- eldrar hans skírðu hann. Astæðan fyrir nafnbreytingunni er sú, að Bob Dylan, sem er þrí- tugur að aldri, finnst nú, að með listamannsnafni sínu hafi hann svikið hinn gyðinglega uppruna sinn. Dylan er Gyðingur í húð og hár, og hefur nú upp á síðkastið kynnt sér rækilega gyðingdóm og harmsögu Gyðinga frá upphafi. Þegar hann tók sér listamanns- nafnið Bob Dylan hugsaði hann ekkert um slíkt. í fyrra ferðaðist hann til ísrael, án þess að nokkur hefði hugmynd um, og stofnaði þar sjóð til styrkt- ar ungum Gyðingum. Nú hefur hann semsagt stigið skrefið til fulls. Héreftir mun hann syngja og senda frá sér plötur undir sínu upprunalega gyðinglega fjöl- skyldunafni: Robert Zimmermann. ★ LIÐSFORINGINN VARÐ NEKTARDANSMÆR Glaðværir gestir, sem klappa fyrir nektardansmærinni Jeanette Schmidt, sem sýnt hefur að und- anförnu víða í Evrópu og í Aust- urlöndum nær ættu bara að vita, að það er ekki langt síðan þessi ágæta dansmær var karlmaður. Hún gegndi meira að segja í hæsta máta karlmannlegu starfi: var hermaður. Joseph Scmidt fæddist í Vínar- borg og var sonur bankamanns. Hann var byrjaður að læra akró- batik og dans, þegar hann var kallaður í þýzk-austuríska herinn. Þar gat hann sér gott orð og varð fljótlega liðsforingi. Eftir stríðið tók hann aftur til við dansinn, sýndi á skemmtistöðum og þótti góður í listgrein sinni. Hann naut mikillar kvenhylli og lifði sam- kvæmt því sannkölluðu Casanova- lífi, þar til hann kvæntist stúlku frá Vínarborg og eignaðist með henni barn. Skyndilega tók hann eftir að mikil breyting var að eiga sér stað, jafnt hið ytra sem innra með honum. Skegg hans hætti að vaxa og honum tóku að vaxa brjóst. Hann leið mikla önn fyrir þetta. Hjónaband hans fór út um þúfur; konan flutti til Bandaríkjanna með barnið, en Joseph Scmidt hélt áfram að sýna dans sem karlmað- ur, þótt hann gerði sér Ijóst, að hann væri smátt og smátt að breytast í konu. Þegar hann var á sýningarferða- lagi í Beirut, tók hann loks þá ákvörðun að leita læknisaðstoðar og láta breyto sér í kvenmann. Það var engin önnur en Soraya fyrrum drottning, sem taldi hann á að gera þetta. Hún horfði á hann dansa, sá hvers kyns var, heimsótti hann í búningsherbergið á eftir og sagði: — Þér ættuð að fara til Kairo og fá hinn fræga prófessor Sou- clem til að hjálpa yður. Hann hef- ur hjálpað mörgum við að skipta um kyn. Eftir að hafa rætt við prófessor- inn í höfuðborg Egyptalands, gekkst Joseph Schmidt undir sárs- aukafullan uppskurð. A eftir fylgdu síðan langvarandi hormónagjafir. Nú er hann aftur farinn að dansa, og nafni hans hefur verið breytt á auglýsingaspjöldunum úr Joseph Schmidt í Jeanette Schmidt. ☆ 33. TBL. VIKAN 49

x

Vikan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.