Vikan - 09.12.1971, Qupperneq 4
Maxikjólar
Síðdegiskjólar
Síð pils
Sfutt pils
Tækifæriskjólar
Buxnasett
Verðlistinn
Kápudeild
Hlemmtorgi
Sími 83755
Frúarkápur
Táningakápur
Telpnakápur
Buxnadragtir
Úlpur
Síðbuxur
Peysur
Kjóladeild
v/Laugalæk
Sími 33755
GÚÐAR JOLAGJAFIR
ELAN-skíði, Kastle-skíði
TYROLIA örbindingar
Skiðasett
í jólapakkann
Listskautar
Ódýrir
barnaskautar
Snjóþotur
Skíðaskór
Nestis-
töskur
Vind-
sængur
Verzlið þar sem úrvalið er.
Verzlið þar sem hagkvæmast er.
Laugavegi 13 — Póstsendum — Kjörgarði — Simi 13508
P0STORINN
Situr heima og
grætur
Kæri Póstur!
Mig langar til að biðja þig um
hjálp. Þannig er, að ég er 16
ára og einmana sveitastúlka. Ég
er feimin og haldin minnimátt-
arkennd og hef aldrei verið með
strák. Ég hef aldrei farið á op-
inn dansleik, nema hérna í sveit-
inni. Aðra krakka umgengst ég
lítið, því ég á aðeins eina vin-
konu, og hún er að heiman í
vetur, á skóla.
Þegar hún er heima getur hún
farið hvert sem henni sýnist, en
það get ég ekki; þar tekur
stjúpfaðir minn fram fyrir hend-
ur mínar. Það verður allt að
dansa eftir hans höfði ef á að
haldast friður á heimilinu. Svo
sit ég bara heima og græt þeg-
ar aðrir krakkar skemmta sér.
Ég er hvorki falleg né Ijót, bara
svona í meðallagi, en mér finnst
eins og allir strákar forðist mig
þegar ég fer á þessi fáu böll.
Svo er ég alveg að gefast upp
á lífinu og tilveruna. Það eina
sem heldur í mér lífinu, er að
ég er hrifin af strák hér í sveit-
inni. Ég þekki hann lítið og hef
aldrei talað við hann, en ég
veit hvað hann heitir og að hann
er fallegur. Hann fer sjaldan á
böll, en þegar hann gerir það,
er hann fullur. Ég veit ekki til
þess að hann hafi verið með
stelpu. Ég held að hann sé dá-
lítið feiminn eins og fleiri en ég
sé hann ekki nema svo vilji til
að við séum á sama ballinu.
Góði Póstur, hvernig á ég að
fara að þessu öllu saman, sér-
staklega þó að kynnast strákn-
um? Ef þér finnst þetta ekki
svaravert, þá skaltu bara henda
því í ruslakörfuna, en láttu mig
samt vita svo ég bíði ekki og
voni.
Einmana sveitastúlka.
ÞaS er slæmt til þess aS vita að
16 ára gömul stúlka skuli þjást
af lífsleiSa og ennþá verra aS
vita til þess aS henni sé haldiS
inni, frá sínum jafnöldrum. Hitt
er annaS mál, aS þetta er ekki
óalgengt, aS unglingar á gelgju-
skeiSinu séu leiSir á lífinu og
þessi margumtaiaSi námsleiði er
hluti þess.
VarSandi strákinn getum viS lít-
iS ráSlagt þér, en þú ættir aS
reyna aS nálgast hann eitthvaS
á næsta balli, spjalla viS hann og
jafnvel aS sýna þá hugdirfsku
aS bjóSa honum í dans. Taktu
hann þó ekki alvarlega, því
fulla menn er ekki mikiS aS
marka. VerSi hann hins vegar
ekki fullur í þaS skiptiS, þá
skaltu beita öllum þínum töfr-
um (sem eru töluverSir eftir
bréfinu aS dæma), en gæta þess
jafnframt aS fara mjög varlega,
þannig aS hann fái ekki á til-
finninguna aS þú ætlir aS kló-
festa hann. Láttu hann heldur fá
á tilfinninguna aS hann verði að
klófesta þig því þú sért þess
virði. Og gangi það, skaltu láta
hann eltast dálítið við þig.
Varðandi samkomulagið á milli
þín og stjúpföður þíns, er eigin-
lega ekki hægt að ráðleggja
annað, en að þú talir um þetta
við móður þína og að þið farið
svo saman í stjúpföður þinn og
reynið að fá hann til að slaka
eitthvað á. Þá gætir þú til dæm-
is bent honum á að þú ert orð-
in 16 ára gömul, og samkvæmt
lögum verður maður sjálfráða
þá.
Svar til Bínu
1. Þetta er allt ( lagi.
2. Já, svo sannarlega.
„Viðurstyggilegt
klám“
Til Póstsins, Vikunni:
Um leið og ég segi blaðinu upp,
ætla ég að lýsa vanþóknun minni
á því viðurstyggilega klámi sem
þið eruð að birta í Póstinum,
sérstaklega með tilliti til bréfs
sem þið svöruðuð í blaðinu sem
kom út 28. október sl.
Gerið þið ykkur alls enga grein
fyrir því, að VIKAN er heimilis-
blað og liggur meðal fjöl-
skyldna og víðar, þar sem
óþroskuð börn og unglingar á
gelgjuskeiði reka augun ( þenn-
an óþverra, sem auk þess er al-
gerlega út í bláinn? Svona skrif
geta auðveldlega haft mjög al-
varleg áhrif á sálarlíf barna og
unglinga og hef ég því misst
allt það álit sem ég hafði á
VIKUNNI, sem fræðandi og
skemmtilegu heimilisblaði.
Ég vona að fleiri fylgi fordæmi
4 VIKAN 49. TBL.