Vikan - 09.12.1971, Page 35
Innkaupaferð
Hafnarfjarðar!
Góð hugmynd. Verzlunin HAFNARBORG við
Strandgötu, við hliðina á HAFNARFJARÐAR
APÓTEKI, býður yður úrvat úr ótrúlega mörg-
um vöruflokkum. i snyrtivörudeildinni létta
snyrtisérfræðingar yður valið á snyrtivörum og
ilmvötnum. Leikfangadeildin stendur yngstu
viðskiptavinunum opin, vel byrg af varningi á
viðráðanlegu verði. I búðinni fást gjafir handa
mömmu og pabba og öllum hinum, búsáhöld
og baðvörur, glervörur og skrautvörur, hand-
töskur og handklæði, dýrindis dúkar og ótal-
margt fleira. Úti eru næg bílastæði bak við
verzlunina. Inni gefst gott næði til að meta
verð og vörugæði og til að velja.
^ v. svss | Himggl
HAFNARBORG
Heimsækið okkur í Hafnarborg,
það borgar sig.
STRANDGOTU 34. HAFNARFIROI
NUNNAN
EIGNAÐIST BARN
Framhald. af bls. 19.
endurskoðað þessar kröfur og
viðurkennir rétt til að losa þau
undan heiti sínu, sem þess
óska af heilum hug, heiti um
hlýðni, hreinlífi og fátækt.
HNEYKSLH) MIKLA.
Séra Ansgar hafði orð fyrir
að vera mjög aðlaðandi maður
og það gerði honum oft erfitt
fyrir að halda einlífisheitið.
Fyrir fimm árum var nafn hans
á lista yfir þá sem komu til
greina við biskupskjör og gerði
það sitt til að hneykslið, vegna
sambands hans við systur Jó-
hönnu, varð ennþá meira.
Það hefur frá ómunatíð kom-
ið fyrir að kaþólskir prestar
hafa orðið ástfangnir af nunn-
um, og nunnur ástfangnar af
prestum og munkum, og oft
hafa fundizt beinagrindur af
smábörnum vandlega falin inn-
an klausturmúra.
En nú orðið geta nunnur og
prestar fengið lausn frá skír-
lífisheitinu, farið út í veröldina
og fylgt rödd hjarta síns og
hinum nýju viðhorfum í sam-
búð við elskaða, mannlega veru.
Heimur séra Ansgars og systur
Jóhönnu er nú orðinn stærri
og flóknari. En nú hafa þau
valið veraldlegan ys og þys, ut-
an klausturmúranna. Að sjálf-
sögðu eiga þau eftir að horfast
í augu við ýmsa erfiðleika, en
þau hafa sjálf valið þann veg-
inn.
☆
„EINS OG JÖLATRÉ
EÐA SJÖSKRINISLI"
Framhald af bls. 28.
Og sjötta grein: „Við hátíð-
leg tækifæri ber stórmeistar-
inn, auk stórkrossstjörnunnar,
merkið í gullnri keðju um háls-
inn. Keðjan liðast í blásteinda
skildi með silfrum fálka og
skjaldarmerki lýðveldisins í
litum þess, til skiptis. — Keðj-
an ásamt stórkrossstjörnunni
er jafnframt æðsta stig orð-
unnar, og ber stórmeistari það
einn íslenzkra manna. Stór-
meistari getur sæmt þjóðhöfð-
ingja annarra ríkja þessu stigi
orðunnar.
7. gr. — Sameiginlegt merki
orðunnar er gullrenndur, inn-
skorinn, hvítsteindur kross og
álmuhornin stýfð af innávið.
Framan á krossinum miðjum
er gullrenndur, blásteindur
skjöldur og á honum silfur-
fálki, er lyftir vængjum til
flugs. Aftan á krossinum miðj-
um er blásteind, sporöskjulög-
uð, gullrennd rönd, og á hana
letrað með gullnum stöfum:
Seytjándi júní 1944. — Kross-
ar stórkrossriddara og stór-
riddara eru jafnstórir. Riddara-
krossar minni. — Band orð-
unnar er heiðblátt, en jaðrar
hvítir með hárauðri rönd; band
stórkrossriddara er breiðast, en
riddara mjóst. — Stórkross-
riddarar bera krossinn á hægri
mjöðm í bandinu um vinstri
öxl. Stórriddarar bera hann í
bandinu um hálsinn, en ridd-
arar á brjóstinu hægra megin.
— Stórkrossriddarar bera enn-
fremur á brjóstinu, vinstra
megin átthyrnda silfurstjörnu
með krossmerki á. — Embætt-
ismenn kirkjunnar og vígðir
kennarar í guðfræðideild há-
skólans, sem eru stórkrossridd-
arar, bera krossinn, þegar þeir
eru í embættisbúningi kirkj-
unnar, í bandi um hálsinn. —
Stjarna stórriddara er átthyrnd
silfurstjarna og á henni miðri
blásteindi silfurskjöldurinn
með silfurfálkanum, og bera
þeir hana á brjóstinu vinstra
megin. — Öll merki orðunnar
og bönd skulu gerð samkvæmt
teikningum, sem stórmeistar-
inn hefur samþykkt.
8. gr. — Formaður orðu-
nefndar ber, stöðu sinnar
vegna, hægra megin á brjóst-
inu stórkrossstjörnuna.
9. gr. — Stórmeistari skrif-
ar undir útnefningarbréfið, og
allir nefndarmenn rita einnig
á það nafn sitt.
10. gr. — Innsigli orðunnar
er stórkrossstjarnan og áletr-
un: Sigillum ordinis falconis
Islandiæ. Á bakhlið fyrir ofan
stjörnuna standa einkunnarorð
49. TBL. VIKAN 35