Vikan


Vikan - 09.12.1971, Page 42

Vikan - 09.12.1971, Page 42
Gúlú-nornin leitar hins i'uiiKomna manns. ara. Og þar af leiðandi hef ég líka dálæti á henni. Ambáttir mínar munu þjóna henni í framtíðinni, baða hana og bera á hana ilmsmyrsl, þegar bróð- ir minn sendir eftir henni . . . Zobeidu tókst það snilldarvel að hella olíu á eldinn. Hvert orð sem hún sagði var sagt í þeim tilgangi að æsa reiði Ar- nauds, reiði, sem hún vonaði að yrði stúlkunni hættuleg. Og reiði hans var augljós. Hann stóð með kreppta hnefa, Zobeida sendi honum töfrandi bros. — Ég læt þig einan með henni núna. Gerðu við hana það sem þig lystir, en það eina sem ég bið þig um, er að þú látir mig ekki bíða þín lengi . . . Og svo sneri hún sér að gömlu konunni. — Svo mátt þú fara, Morayma, en farðu ekki of langt í burtu. Þú átt að sjá þessari konu fyrir dvalarstað, þegar bróðir hennar hefur rætt við hana . . . og það á að vera sæmandi staður fyrir hefðar- konu! Catherine beit reiðilega á vörina. Hvað vildi þessi blóð- þyrsta læða? Vildi ftún að Ar- naud dræpi hana? Og skipan- irnar sem hún gaf Morayma voru ábyggilega í þá átt að hún ætti að koma henni fyrir í einhverjum afsíðis kjallara. Catherine trúði ekki á þessi skyndilegu gæði. Zobeida hat- aði hana ábyggilega helmingi meira fyrir það að hún hafði þekkt Arnaud í fyrra lífi hans. Þessi kona var örugglega af- brýðisöm út í fortíð hans! Þeg- ar Máraprinsessan skundaði hnarreist fram hjá Catherine, á leið til herbergja sinna, gat Catherine ekki á sér setið að yrða á hana: — Vertu ekki of örugg Zo- beida . . . Ég er ekki dauð enn- þá. Það er ekki siður í okkar landi að bræður drepi systur sínar eða eiginmenn konur sín- ar. — Allir sanntrúaðir eru í höndum Allah! Hví skyldi ég hafa áhuga á því hvort þú ert lifandi eða dauð? En ef ég væri í þínum sporum, myndi ég frek- ar kjósa dauðann. Það er eina leiðin til að losna undan örlög- um þínum, sem eru að vera þræll meðal þræla, láta kjá við þig meðan þú ert ung, en fleygja þér svo þegar tími þinn er út- runninn! . — Nú er nóg komið, Zobeida, tók Arnaud fram í fyrir henni og var nú orðinn óþolinmóður. — Ég einn hef úrslitavaldið í þessu máli. Farðu nú! Prinsessan skundaði út með stríðnisbros af vörum. Arnaud og Catherine voru nú ein, aug- liti til auglitis. Þau stóðu grafkyrr og þegj- andi, í nokkurra skrefa fjar- lægð hvort frá öðru og hlust- uðu eftir hljóðum frá höllinni. Catherine hugsaði biturlega með sjálfri sér að hana hefði aldrei grunað að endurfundir þeirra yrðu með þessu móti. Kannske eins og rétt áður, þeg- ar hann reif blæjuna frá andliti hennar og var að því kominn að taka hana i faðm sér. Já, því hafði hún búizt við. En nú höfðu eiturörvar prinsessunnar hitt hann beint í kvikuna. Nú myndu þau halda áfram að eitra sálir hvors annars eins og erkióvinir . . . Var það til þessa að þau höfðu elskað hvort ann- að og fundið hvort annað, þrátt fyrir aðra menn, stríð og allar hörmungar sem yfir þau höfðu dunið! Þetta var hræðilegt! Catherine þorði varla að líta á eiginmann sinn, sem stóð með krosslagða arma á brjósti. Hún vildi ekki að hann sæi tárin í augum hennar. Þau voru að hefja strið og hún leyfði sér andartaks hvíld. Kannske yrði hann fyrri til að tala. En hann sagði ekki nokkurt orð, líklega í því trausti að þögn hans næði meira valdi yfir henni. En svo var það hún sem hóf samræð- urnar. Hún reigði sig og benti á rýt- inginn í belti Arnauds. — Eftir hverju ertu að bíða? Ertu ekki búinn að fá þínar fyrirskipanir? Reiddu rýting- inn til höggs og dreptu mig strax, Arnaud! Ég viðurkenni 42 VIKAN 49. TBL.

x

Vikan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.