Vikan


Vikan - 09.12.1971, Page 57

Vikan - 09.12.1971, Page 57
I LOVE STORY HILMIR HF. Heillandi ástarsaga um ungt nútímafólk Metsölubók um allan heim skulfu og hann var að því kom- inn að gráta. — Þannig er nú ástandið, en við reynum að bjarga okkur sem bezt, öll saman. Við skul- um líka skemmta okkur. En fyrst verðum við að ræsta hús- ið. Hreingerningarkonan kem- ur ekki og við getum ekki lát- ið Heidi gera allt þetta eina. Við verðum að hjálpa henni eftir beztu getu. Eruð þið ekki sammála? —■ Jú, jú! hrópuðu báðar telpurnar. — Jæja, þá tökum við til, sagði Kollok hressilega. — Húrra! hrópuðu telpurnar og þutu upp stigann. — Húrra, við skulum hreinsa allt húsið! Ó, það verður gaman! Nicky gekk hægt upp stig- ann á eftir þeim, skuggalegur á svip. — Mér þykir þetta leiðin- legt, sagði Heidi í afsökunar- róm, meðan börnin voru að taka til á herbergjum sínum. — É'g skil ekki hvað gengur að drengnum. — Það er engin ástæða til að hafa áhyggjur af því, sagði Kollok brosandi. — Hann er aðeins lítill drengur. — Auðvitað. Hún brosti líka. — En ég hef aldrei séð hann svona. Hann er venjulega hlýð- inn og ljúfur. — Er hann það? — Já. Hann er glaðlynt barn og alltaf þægur. Mér hefur þótt mjög vænt um hann. — Það er gott að heyra, sagði Kollok. — En segðu mér eitt, hefur það aldrei hvarflað að þér að það sé eitthvað skrít- ið við hann? — Skrítið? Nei, sannarlega ekki. Kollok þagði, en það var eitt- hvað við þögn hans, sem fékk hana til að virða hann vand- lega fyrir sér. — Hvað áttu við? Hefði ég átt að taka eftir einhverju? Finnst þér hann eitthvað skrít- inn? — Já, sagði Kollok hljóð- lega, —- mjög skrítinn. Hann virti hana fyrir sér, áð- ur en hann hélt áfram: — Það er eitthvað við þenn- an dreng, sem ekki kemur heim og saman. Hann er ekki í jafn- vægi, eða finnst þér það? — Að sjálfsögðu er hann kannske eitthvað miður sín núna. Móðir hans er ekki heima og hann er mjög háður henni. — Ég átti ekki við það. Þegar hún ætlaði að inna hann eftir nánari skilgreiningu, komu telpurnar hlaupandi. Þær tilkynntu hreyknar að þær væru búnar að ræsta herbergi sín, og vildu nú fá að vita hvað þær ættu að gera næst. Þau fóru til markaðsins í Camden Town, til að kaupa inn til hádegisverðarins. Þang- að höfðu börnin aldrei komið áður. Þau voru himinlifandi og horfðu með forvitni á fólkið. Flest af því var aldrað fólk, gamlar og þreytulegar konur, Athugið Ef þú ert að byggja eða þarft að bæta og jafnvel ef þú vilt breyta, þá teljum við það hagkvæmt að líta við hjá okkur, því að sjón er sögu ríkari gagnvart vöruúrvali. Gott verð. UTAVER psíSVra 22-24 SMAR: 30280-322G2 49. TBL. VIKAN 57

x

Vikan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.