Vikan


Vikan - 20.01.1972, Side 8

Vikan - 20.01.1972, Side 8
A BAK VIÐ GRIMUNA Mike Vegas þóttist verða að strjúka hárið og laga hálsbindið, áður en hann drap á skrifstofudyrnar hjá Wally Adams. Hann var starfsmaður lögreglunnar, og þeir fá ekki kaupið sitt fyrir útlitið, en milljónir þekktu sjónvarpsgoðið Wally Adams, og Mike Vegas fannst hann verða að gera eitthvað. — Kom inn! Mike Vegas opnaði dyrnar og depl- aði augunum, er hann sá andlitið fyr- ir innan skrifborðið. Hann ræskti sig og sagði til nafns síns. Adams var líkur þvi sem Mike hafði séð hann í sjón- varpinu, og það var skrítið að sjá hann þarna sjálfan. — Jæja, sagði Adams og bauð Mike sæti við skrifborðið. — Mér er illa við að ónáða lögregluna, en ég er hrædd- ur um að þetta sé alvarlegt mál. Ég veit ekki hverju ég á að trúa. — Þér minntust á bréf, sagði Mike. — Var það hótanabréf? — Nei, alls ekki. Ég get ekki ábyrgzt að það sé ekta. En ef svo er... jæja, það er bezt að þér lesið það sjálfur. Adams tók samanbrotið blað upp úr vasanum. — Hafið þér séð fimmtu- dagsþáttinn okkar, hr. Vegas? Ef þér hafið ekki séð hann, eigið þér sjálf- sagt erfitt með að skilja bréfið. — Ég þekki þennan þátt, sagði Mike. — Hver er maSurinn?“ — Já, einmitt. Þá vitið þér út á hvað hann gengur. Við náum í fólk, sem blöðin hafa nýlega talað um ein- hverra hluta vegna. Fórnarlambið er með grímu, og svo eiga hin að reyna að komast að hver maðurinn er, með því að spyrja spurninga .. . en lesið þér nú bréfið! Mike tók blaðið. Rithöndin var nett og faFeg. kannski svolítið tilgerðar- 'eg, en Mike hleypti brúnum, er hann fór að lesa. Kœri hr. Adams: — Ég hef horft talsvert oft á þáttinn yðar, og ég hugsa að þér hefðuð gaman af að fá mig i gapastokkinn. Ég vil helzt ekki þurfa að gefa of nákvœma lýsingu á sjálfum mér — af ástœð- um, sem eru skiljanlegar, en ég er fertugur og vélateiknari, starfa hjá verkfrœðingafirma í Long Island City, giftur, barnlaus. Á heima á Manhattan, og konan mín hefur dáð yður mikið árum saman. Ég tel, að ég hafi gert talsvert, sem reynir á þolrifin í spyrjendunum, ef þeir eru látnir spreyta sig á mér. Ég er morðingi! Ég geri mér Ijóst, að menn í yð- ar stöðu fá oft bréf frá brjáluðu fólki. Það er skiljanlegt þó þér teljið mig í þeim hóp, en ég full- vissa yður um, að ég er með öllum mjalla og að það er satt, sem ég hef sagt yður. — Ég er sekur um morð af ásettu ráði, og fús til að láta afhjúpa mig í þœttinum. Yður mun finnast tilboð mitt ó- venjulegt, en bendi yður á, að það er borgaraleg skylda yðar að fletta ofan af glœpnum. Ef afhjúpunin verður ekki gerð í sjónvarpinu mun ég þegja, og glæpurinn kemst aldrei upp. Ef þér viljið ná sambandi við mig skuluð þér senda mér bréf, stílað til John Rice, poste restante á aðalpósthúsinu. Þetta er auðvit- að dulnefni. Ef þér reynið að ná í mig, er ég vitja bréfsins, mun ég neita öllu, sem ég hef skrifað hér! — Vona að heyra frá yður sem fyrst. Með beztu kveðju. John Rice. MIKE VEGAS fann hvernig Wally Adams horfði á hann meðan hann var að lesa bréfið. Hann reyndi að láta ekki á því bera, að hann væri hissa, en sagði: — Þetta er gífurlegt tilboð, en hvað segja þeir, sem eiga að borga brúsann? — Ég skal ekki leyna yður neinu, svaraði Adams og brosti. — John Rice sér réttilega, að þetta er peninga virði fyrir okkur. En firmað, sem borgar dagskrána, gerir sér líka ljóst, að það getur orðið hneykslismál út af svona tiltæki. Þess vegna töldum við réttast að spyrja lögregluna ráða. — Það var rétt athugað, sagði Mike og stóð upp. Honum leið alltaf betur, þegar hann stóð í fæturna. — Við megum ekki hlaupa á okkur. Kannski hefur þessi nánugi drepið einhvern, og þá er þetta eina ráðið til að ná í hann. —• Þér álítið þá að við eigum að láta hann koma fram í sjónvarpið? — Já, það finnst mér, en ég vil ekki afráða það einn. Við verðum að tala við saksóknara ríkisins. 8 VIKAN 3. TBL.

x

Vikan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.