Vikan


Vikan - 20.01.1972, Síða 16

Vikan - 20.01.1972, Síða 16
Á miðju balli var danssýning, samkvæmisklætt fólk sýndi valsa, foxtrotta og tangóa og þá stökk fólk eins og Mary Hopkins, Jimmy Page, Sandy Denny, Elton John, félagar okkar úr Deep Purple, meðlimir Faces og helmingurinn af Who upp á stóla og borð til að sjá betur. „Mestu vonbrigðin," sagði einn gesta okkar eftir á, „voru er okkur varð ljóst að við urðum sjálf að borga fyrir það sem við drukkum.“ Óþarfi er að reyna enn einu sinni að meta þau áhrif sem Bítlarnir einu og sönnu höfðu á heiminn. í þessu sambandi er vitaskuld átt við þá sem heild, en nú vita allir hvaða einstakl- ingar það voru sem höfðu mesta áhrif á heildina, sem voru auð- vitað þeir John Lennon og Paul McCartney; Ringo og George höfðu óbeinni áhrif, en þó senni- lega meiri en við látum okkur detta í hug. Og enda þótt eig- inlega sé útséð um að Bítlarn- ir komi ntfkkurn tíma saman aftur til þess að spila, eru þeir ekki hættir að hafa áhrif á okkur. John Lennon hefur til dæmis komið því til leiðar, að álit heimsins á Paul McCartney er heldur lítið. Nú þykir ekki fínt lengur að dást að Paul: Hann er væminn, peningasjúk- ur, leiðinlegur, hæfileikalítill og hver veit hvað það annars er sem við segjum um hann. En eí við reynum aðeins að gera okkur grein fyrir hvað það er sem þeir félagar hafa á móti Paul, þá komumst við að raun um að það er ekki mikið annað en það, að Paul vill losna úr öllum tengslum við þá og hætta að verða Bítill á pappírnum jafnframt því sem hann hefur hætt því utan pappírsins. Ann- að er það í rauninni ekki. Hingað til hefur lítið sést haft eftir Paul um þessi mál, og því þóttumst við hafa himin hönd- um tekið þegar við rákumst á viðtal við hann. Áður ert farið verður út í viðtalið sakar ekki að geta þess, að 8. nóvember sl. héldu McCartney-hjónin dans- leik í þekktu veitingahúsi enskrar miðstéttar í London og buðu þangað um það bil 800 manns, poppstjörnum, blaða- mönnum, plötusnúðum og fleiri fyrirmennum úr poppheimin- um. Tilefni þessa dansleiks var að kynna nýju plötuna með WINGS, hljómsveit þeirra hjóna, svo og hljómsveitina sjálfa. Boðskortin hafði Paul skrifað með eigin hendi, það er að segja eitt slíkt, og látið síð- an fjölrita 800 stykki. Ekki spil- uðu WINGS þó á þessum dans- leik, heldur hafði Paul fengið „hljómsveit hússins", „Ray Mc Vay Dance Band“, en McVay þessi er kominn vel yfir fimm- tugt og er með tíu manna hljómsveit, eins og maður sér í glamorkvikmyndum frá 1950! Paul var jklæddur allt of stór- um jakka sem ekki hafði einu sinni verið lokið við að sauma og spjallaði vingjarnlega við alla. „Þetta er í rauninni ekkert annað en dulbúinn blaðamanna- fundur," sagði hann og glotti. „Ég vildi bara vera viss um að allir kæmu!“ Hár hans er mjög stutt nú og stökkt af brilljan- tíni og skegglaus er hann. Viðtalið átti sér stað nokkr- um dögum síðar, þegar Paul bauð blaðamönnum að koma og hlusta almennilega á nýju WINGS plötuna, „Wild Life“. Blaðamenn létu frekar vel af plötunni og sagði einn um hana að hún væri „return of the Mc Cartney magic“. Önnur hliðin er fjörleg og „þung“, en hinum megin eru rólegri lög og meló- 16 VIKAN 3.TBL.

x

Vikan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.