Vikan


Vikan - 20.01.1972, Qupperneq 36

Vikan - 20.01.1972, Qupperneq 36
NORNANOTT Framhald af bls. 33. vert af því. Þessvegna lét hann byrgja námuopið svona vand- lega. — Charles sagði að þú hefðir gert það, skaut Helen inn í. Alan hristi höfuðið. — Mér dettur nú í hug að einu sinni fékk Charles náma- verkfræðing til að koma hing- að, þegar þú varst í fríi og ég lagði saman tvo og tvo, sagði John. — Ég veit svolítið um bergtegundir sjálfur. Ég fór niður í námuna og tók sýnis- horn, sem ég hefi látið rann- saka. Og þá varð rnér ljóst hvað fyrir honum vakti. Þinn hlutur i námunni féll í hlut Godfreys, ef þú féllir frá án löglegra erf- ingja, er það ekki? Já, það datt mér í hug. — En hvernig komstu að þvi sem þau ætluðu að gera við mig? spurði Helen. — Ég sá að þú varst undir áhrifum einhverra eiturlyfja í gærkvöldi, þegar þú komst nið- ur. Það kom mér til að skilja að maðkar væru í mysunni. — Og ég hélt að þú værir einn af þeim, þegar ég sá þig í kapellunni! — Eins og ég sagði hefi ég haft gætur á þeim. Þegar ég sá að þú smeygðir þér inn í kapell- una, ætiaði ég að koma þér und- an, en ég sá þig ekki í myrkr- inu. — En Charles var í St. Malo og Penelope í fasta svefni. Og hann varð alveg frávita af reiði þegar hann heyrði það sem ég hafði að segja. — Vegna þess að hann þoldi ekki að nokkur annar léki hlut- verk Satans. Þau vissu það og gættu þess að láta Penelope ekki komast að því sem þau höfðu fyrir stafni. — Það var hún sem eitraði fyrir mér, sagði Helen. — Fyrst smurði hún einhverju smyrsli í hársvörðinn á mér og síðan með baðolíu. Og áður en hún lagði af stað með mig nuddaði hún einhverri olíu inn í hör- undið, sem hafði þau áhrif að ég varð næstum lömuð. — Það var samsuða af jurt- um, sem hafa sín áhrif gegn- um húðina og orsaka sál- rænar truflanir, vöðvalömun og svima. Já, þegar þú varst farin, bauð ég Penelope góða nótt og fór til samkomustaðarins, grímuklæddur, eins og hitt fólkið. Þar heyrði ég hvað til stóð og gat undirbúið björgun þína. Svo veizt þú sjálf það sem síðar skeði. Þrem dögum síðar var Helen komin á fætur .Hún var að vísu nokkuð eftir sig, en hamingju- samari en nokkru sinni fyrr. John hafði farið til vinnu sinn- ar daglega, meðan hann beið þess að hún jafnaði sig. Þegar hann kom heim til hádegis- verðar þriðja daginn, hafði hann fréttir að færa. — Þeir byrjuðu í dag — hófu vinnu við námuna! — Hverju bíðum við þá eftir? spurði Alan. — Nú hljótum við að hafa sönnunargögn í hönd- unum! — Ég er sammála þér, svar- aði John. — Ég er búinn að gera lögreglunni viðvart. Ég sting upp á þvi að við förum og komum þeim á óvart. — Ég kem líka, sagði Hel- en. — Ég vil ekki sitja hjá. Það verður fróðlegt að sjá fram- an í þau, þegar við Alan rísum bæði upp frá dauðum ... Eftir hávaðanum að dæma, hafði allt starfslið frá grjótnám- unni verið flutt þarna upp á heiðina, með borvélum, skurð- gröfum, vélskóflum og öðrum tækjum og það var hræðilegt- að sjá hvernig umhorfs var á enginu, sem áður hafði verið svo fagurt og^friðsælt. Sá fyrsti sem þau komu auga á var Rocky. Hann sneri i þau breiðu bakinu. Svo sáu þau hvar Penelope kom ggngandi frá ,,höllinni“. John kallaði: — Halló, Rocky, hvar er Godfrey? Rocky sneri sér við og þegar hann kom auga á þau, rak hann upp ferlegt öskur, hopaði aftur á bak, hrasaði og féll endilang- ur til jarðar. Svo rauk hann á fætur og ætlaði að taka til fót- anna, en rakst þá á Charles, sem kom út úr námugöngunum. Charles bölvaði og sló til Rocky. Rocky babblaði einhver óskilj- anleg orð og benti í áttina til þreménninganna. Charles sneri sér við og ætlaði að þjóta áfram en nam staðar, þrumu lostinn. Nú kóm Penelope þjótandi til þeirra, náföl. Hún hljóp til Hel- en og ætlaði að faðma hana að sér, en Alan þreif í axlir henn- ar og vék henni til hliðar. — Nei, Penelope, í þetta sinn dug- ar enginn leikaraskapur. Hann tók undir handlegg Helen og leiddi hana fram fyrir Charles. — Sæll vertu, Charles, sagði Alan .— Þú segir ekki neitt. Ertu ekki ánægður yfir því að sjá okkur á lífi? Þér finnst kannski ekki að Helen sé nógu stássleg, og ég viðurkenni að fötin af John hæfa henni ekki sem bezt, þau eru nokkuð stór. En það verður bráðlega hægt að kippa því í lag, ef þú ert ekki nú þegar búinn að fleygja fötunum hennar. Þá var það að Rocky gerði krossmark fyrir sér. Djöfla- dýrkandinn sjálfur lyfti skjálf- andi hendi og krossaði sig. — Jæja, Rocky, sagði Alan háðslega. — Trú þín á honum er þá ekki sterkari en þetta. Á hinum háa herra, djöflinum sjálfum í mannsmynd! Charles lyftu brúnum. — Ég ræð þér til að gæta tungu þinn- ar, Alan. — Ég skil að þú getur varla verið með réttu ráði eftir slysið, en þolinmæði min er ekki ótakmörkuð. Ég gæti látið stefna þér fyrir ærumeiðingar. — Gerðu það þá. Lögreglan er á leiðinni hingað. En ég er hræddur um að ég hafi fleiri og veigameiri kærur á hendur þér. — Og hvað gæti það svo sem verið? — Tvær morðtilraunir, sem Rocky framkvæmdi eftir þinni skipun. Charles hló dátt. — Ég hélt ekki að þú værir svona einfald- ur. Rocky verður sjálfur að bera ábyrgð á gjörðum sínum. — En ég hlýddi aðeins boð- um hans, öskraði Rocky. Hann sagði að þau væru óvinir okkar og það væri mikill heiður fyrir mig að fá að vera böðull þeirra. Hann er sá meistari, sem ég verð að hlýða! — Haltu kjafti, bjáninn þinn, hvæsti Charles. En í þetta sinn reis þrællinn upp á móti meistara sínum. Hann sló hann með hnefanum undir hökuna svo Charles féll til jarðar. Það heyrðist óhúgn- anlegt brothljóð, þegar höfuð hans skall á steini. Það stóðu allir grafkyrrir og horfðu á líf- vana líkamann. Það þurfti ekki rannsókna við, það var augljóst að maðurinn var látinn. Penelope var sú fyrsta sem áttaði sig. Hún leit ekki á líkið af eiginmanni sínum, heldur sneri sér strax að því að hreinsa sjálfa sig. — Það var eins með mig, ég hlýddi aðeins skipunum hans, ég gat ekkert að gert. Hann beitti mig þvingunum. — Það getur þú reynt að út- skýra fyrir lögreglunni, við höfum engan áhuga á því, sagði Alan. — Komdu Helen, við skulum sækja dótið þitt. John sá að nú var komin kyrrð á, að minnsta kosti um stundarsakir. — Hvaða áform hefur þú nú, Alan? spurði hann. — Ég hefi hugsað mér að hreinsa til hérna. Segja upp þessu fólki frá Sark, það hefur komið þessum fíflalátum af stað hérna. Svo ætla ég að byggja betri hús fyrir verka- mennina, svo að menn geti bú- ið hér með fjölskyldur sínar. Ég ætla líka að greiða þeim hærri laun. — Við höfum líka hugsað okkur að breyta „höllinni" í hótel, sagði Helen. — Opna eyna fyrir ferðamönnum og útiloka með því að fólk geti einangrast hér. Penelope virð- ist ekki hafa hug á að setjast hér að, jafnvel þótt henni tak- ist að fullvissa lögregluna um sakleysi sitt. — Ég þori að hengja mig upp á að henni tekst það, sagði John biturlega. — Hún notar sín stóru tárvotu augu til þess. Og síðan lifir hún hátt á eigum mannsins síns sáluga, án þess að skeyta um það að hann var hreint skrímsli meðan hann lifði... — Mér er alveg sama, ef ég get losnað við að sjá hana framar, sagði Helen. — Það væri bezt að gleyma þessu öllu. eða hvað finnst þér, ástin mín? Hún rétti Alan höndina og hann svaraði henni með því að kyssa hana. Sögulok. ISKUGGA EIKARINNAR Framhald af bls. 11. brúnni sá hún það sem hún hafði búizt við, einmitt það sem hún hafði haldið. Nicky. Sonur hennar. Yngsta barnið hennar. Hann lá á grúfu og það var líkast því að hann svæfi. Hand- leggirnir, sem hún svo oft hafði fundið um háls sér, voru teygð- ir fram. Þeir flutu á vatninu, eins og greinar af ungu tré. Hárið bylgjaðist á vatninu eins og sefgras. Hún sá grannan barnshálsinn hulin gullnum lokkum. Hárið var dekkra uppi á höfðinu, jafndökkt og vatnið sem það flaut á. Hún vissi að hann var horf- inn úr faðmi hennar fyrir fullt og allt. .. hann var í örmum annarrar móður. Og þegar hún stóð þarna í þöglum garðinum og horfði á litla hreyfingalausa líkamann, heyrði hún óm af rödd hans, þegar hann kallaði á hana að næturlagi. Hann var hræddur og hann kallaði aftur og aftur og rödd 36 VIKAN 3. TBL.

x

Vikan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.