Vikan - 03.02.1972, Side 3
5. tölublað - 3. febrúar 1972 - 34. árgangur
Framhalds-
saga eftir
Edgar Allan
Poe
Stutt framhaldssaga hefst
í þessu blaSi eftir Edgar
Allan Poe, upphafsmann
leynilögreglusagna, sem
blómgast svo vel á okkar
dögum. Sagan nefnist
Leyndarmál Maríu Roget
og er i fjórum hlutum. —
Fyrsta hlutanum fylgir
æviágrip Poes.
Sjá blaðsíðu 16.
Dularfyllsta
persóna
Evrópu-
sögunnar
Margir íslendingar kann-
ast við Wallenstein úr
Sögum herlæknisins eftir
Topelius, sem séra Matt-
hías þýddi á sinum tíma.
Hann er í hópi dular-
fyllstu persóna Evrópu-
sögunnar og margir þætt-
ir lífs hans þrætuepii
sagnfræðinga. Sjá grein á
blaðsíðu 12.
Heimur
Walt
Disneys
Walt Disney tókst alla ævi
að varðveita í hjarta sínu
heim bernskunnar —
ævintýrið mikla, sem hjá
flestum er úti um ieið og
fullorðinsárin og alvara
lífsins taka við stjórnar-
taumum. Sjá litmynda-
syrpu um nýjasta undra-
land Disneys á bls. 26.
KÆRI LESANDI!
„Árið 1895 varð Jennie örlaga-
ríkt. Eiginmaður hennar lézt í
upphafi ársins eftir langvarandi
veikindi. Það var syfilis, sem
þjáði hann og undir lokin var
hann með ölln viti sínu fjær. —
Nokkrum vikum áður kvæntist
elskhugi hennar, sem ekki gat
beðið lengur. Synir hennar, Win-
ston og Jack, áttu báðir við
vandamál að stríða, sem hún
varð að taka tillit til.“
Þetta er ofurlítið brot úr við-
burðaríkri sögn, sem rakin er í
þessu blaði. Það er sagan af
Jennie, móður Sir Winston
Churchills. Um hann er sannar-
lega óþarfi að fjölyrða. t>egar
verið er að hampa „mönnum árs-
ins“ um hver áramót, er vert að
minnast þess, að Churchill var
kosinn „maður aldarinnar“ — og
stendur undir þeim titli.
Minna hefur hins vegar verið
vitað nm móður hins fræga
stjórnmálamanns, þar til á síð-
asta ári, að bók kom út um hana
í Bretlandi. Þar er henni meðat
annars lýst á þessa leið: „Hún
var með afbrigðum smekkleg
kona og fljót að koma auga á hið
bezta, lwort sem það voru föt,
húsgögn, bækur eða — karl-
menn.“
Vikan birtir kafla úr þessari
skemmtilegu ævisögu á bts. 20.
EFNISYFIRLIT
GREINAR BLS.
Ég sá svipi i göngunum, grein um hinn kunna miðil, Astrid Lindgren 6
Wallenstein — Tékkinn sem reyndi að bjarga Þýzkalandi 12
Jennie, grein um móður Sir Winston Churchills 20
Undraland Disneys 26
VIPTÖL
Við erum ekki af víkingakyni fyrir ekki neitt,
rætt við Pál Heiðar Jónsson 24
SÖGUR
Dauðinn skrifar á ritvél, smásaga 8
Leyndardómur Mariu Roget, ný örstutt fram- haldssaga eftir Edgar Allan Poe, fyrsti hluti 16
Kona um borð, framhaldssaga, þriðji hluti 10
ÝMISLEGT
Matreiðslubók Vikunnar, fjórar litprentaðar
uppskriftir 29
Simplicity-snið 23
FASTIR ÞÆTTIR
Pósturinn 4
Heyra má 18
Krossgáta 49
Stjörnuspá 48
Myndasögur 33, 36, 40
FOWSÍPAN________________________
Áður en Walt Disney lézt, hafði hann hafið
undirbúning að stofnun nýs ævintýralands í
Florída. Nú hefur það verið opnað og er sagt,
að það sé enn stórkostlegra en gamla Disney-
landið i Los Angeles. Á forsiðu og í miðopnu
eru svipmyndir úr þessum nýja skemmtigarði.
VIKAN
Útgefandi: Hllmlr hí. Ritstjóri: Gylfi
Gröndal. Blaöamenn: Dagur Þorlelfsson, Matthlldur
Edwald og Ómar Valdlmarsson. Útlitstelkning:
Sigurþór Jakobsson. Auglýsingastjórar: SigrfBur
Þorvaldsdóttir og SigríSur Ólafsdóttir. — Ritstjóm,
auglýsingar, afgreiðsia og dreifing: Skipholti 33.
Símar: 35320 — 35323. Pósthólf 533. VerS i lausa-
sölu kr. 60,00. ÁskriftarverS er 575 kr. fyrir 13 tölu-
blöB ársfjórSungsIega eSa 1100 kr. fyrir 26 blöS
misserislega. ÁskriftargjaldiB greiSist fyrirfram.
Gjalddagar eru: nóvember, febrúar, mai og ágúst.
5. TBL. VIKAN 3