Vikan - 03.02.1972, Blaðsíða 5
óþægindum. Pví verðum við að
fara þess á leit við lesendur að
þeir láti einnig símanúmer fylgja
fullu nafni og heimilisfangi með
bréfum sínum, og þannig ætti
allur misskilningur að vera úti-
lokaður. Með öll bréf eru að
sjálfsögðu farið með sem algjört
trúnaðarmál, en við sjáum okkur
ennþá ástæðu til að minna á, að
nafnlaus bréf fara ólesin í rusla-
körfuna.
Dauðarefsing
Kæri Póstur!
Ég vil byrja á að þakka allt
gamalt og gott, sérstaklega
framhaldssögurnar. Nornanótt er
alveg frábær. Það sem mér ligg-
ur á hjarta er varðandi „Dauða-
refsingu". Ég varð alveg yfir
mig undrandi þegar þið sögðust
aldrei hafa heyrt á hana minnzt,
því þessi hljómsveit hefur spil-
að í Reykjavík einu sinni eða
tvisvar, en þeir voru frá Vest-
mannaeyjum eins og stóð í bréf-
inu.
Vertu svo sæll, elsku Póstur.
Ein í Gaggó í Vestm.
Aftur um
Dauðarefsingu
Kæri Póstur!
Ég hef aldrei skrifað þér áður.
Ég hef heldur ekki haft ástæðu
til þess fyrr en nú að ég las
bréf frá tveimur vinkonum, sem
voru að þræta um hljómsveitina
„Dauðarefsing". Þetta bréf birt-
ist í fyrsta tölublaði þessa árs,
6. janúar sl., og þar sem þú,
Póstur góður, hafðir ekki hug-
mynd um tilvist þessarar hljóm-
sveitar en sagðist jafnframt
þakka allar upplýsingar, datt
mér í hug að skrifa þér allt sem
ég veit um „Dauðarefsingu".
Hljómsveitin var stofnuð rétt
fyrir þjóðhátíð 1970. Undirbún-
ingur var nánast enginn, nema
að þessum fjórum piltum datt í
hug að stofna hljómsveit.
Upphafsmaður hljómsveitarinnar
var Valdimar Gíslason, gítarleik-
ari, 19 ára og kallaður Valli. —
Söngvari var Hafþór Pálmason,
sem einnig er knattspyrnumað-
ur, en hann var yngstur, á 18.
ári. Trymbillinn var Bjartmar
Guðlaugsson, 20 ára og bassa-
leikari var Kristinn Jónsson,
kallaður Diddi, en hann er að-
eins eldri en Hafþór. Um jólin
1970 bættist svo 5. liðsmaður
hljómsveitarinnar í hópinn, var
það Olafur Guðjónsson, 21 érs.
Óli leysti Hafþór af hólmi og
sneri Hafþór sér þá að orgelleik.
„Dauðarefsing" varð tiltölulega
vinsæl meðal ungu kynslóðar-
innar og einnig þeirra eldri, þar
sem þeir félagar ásettu sér strax
í upphafi að dempa niður há-
vaða, svo gestir færu ekki heyrn-
arlausir eða vitlausir út af dans-
stöðunum. Hljómsveitin varð
aftur á móti ekki langlíf, mig
minnir að þeir hafi hætt að spila
saman í apríl '71 og síðan hefur
ekkert heyrzt til þeirra á þessu
sviði.
Ég ætla þá ekki að skrifa þér
meira að sinni, heldur bið ég að
heilsa þér, Póstur góður, með
þakklæti fyrir allar sögur sem
og annað efni er stytt hefur mér
marga stundina hér í Eyjum.
Gaur úr Eyjum.
Jæja, þá ættu allir að vita hvaða
hljómsveit það var sem hét
„Dauðarefsing" og við þökkum
bæði píunni í Gaggó og gaurn-
um úr Eyjum kærlega fyrir bréf-
in.
Svar til
„I love my body“
Það er algjörlega útilokað að
ætla að hann sé kynvilltur fyrir
þessa ástæðu eina. Þetta stafar
vafalaust af taugaspenningi og
því skuluð þið halda áfram að
reyna og ekki gefast upp þótt
illa gangi í fyrsta skipti. Og fyr-
ir alla muni: Talaðu um þetta við
hann, þetta er vandamál sem þið
verðið að leysa i sameiningu.
Ef þetta lagast ekki innan fárra
mánaða, skuluð þið leita læknis.
r--------------—-------------------------------------------------
MTDXPRENTUN
Takiö upp hina nýju aðferð og látið prenta
alls konar aðgöngumiða, kontrolnúmer, til-
kynningar, kvittanir o.fl. á rúllupappír. Höf-
um fyrirliggjandi og útvegum með stuttum
fyrirvara ýmis konar afgreiðslubox.
LEITIÐ UPPLÝSINGA
HILNIRhf
Skipholti 33 — Sími 35320
L________________________7
5. TBL. VIKAN 5