Vikan


Vikan - 03.02.1972, Page 31

Vikan - 03.02.1972, Page 31
LOVE STORY HILMIR HF. Heillandi ástarsaga um ungt nútímafólk Metsölubók um allan heim ÉG SÁ SVIPINN ÁGÖNGUNUM Framhald af bls. 7. samband við „gesti“ sína. Hún lýsti því sem hún sá: — Fyrir löngu síðan varð hörmulegt slys hérna úti á vatninu. Ég heyri neyðaróp. Það detta margir í vatnið, en aðeins ein manneskja drukkn- ar . . . það er ís á vatninu . . . en það er mjög langt síðan... (Síðar sagði Lindgren mag- ister frá því að í upphafi sautjáridu aldar hefði Anna von Grúnau, sem var gift hirðmar- skálkinum Diedrik von Mörner, drukknað, þegar sleði fór nið- ur um ísinn og allir sem í hon- um voru fóru í vatnið). Frú Gilmark reyndi að fikra sig gegnum aldirnar: — Hér er einhver sem talar mjög undarlegt mál, ég held það geti verið rússneska eða pólska. Ég held það sé pólska. Hvers vegna talar hann þetta mál? Hann hlýtur að hafa ver- ið í Póllandi, það var stríð . . . hann dó þar, en hann er ekki grafinn hér. (Bernhard von Liewen féll í Póllandi, en hann var í liði Karls XII. Hann var grafinn í Halsingborg). Astrid heldur áfram: — Ég sé frú, mjög glæsilega klædda. Hún hefur mikinn persónu- leika til að bera og hlýtur að hafa átt hér heima fyrir löngu síðan. Þetta er fögur kona, sterk og glöð. Hún er að segja mér hvað hún heitir . . . Kata- rina? . . . Höllin - tekur mikl- um stakkaskiptum á hennar tímum, það segir hún sjálf; hún breytti þessum kastala í það sem hann er í dag . . . en það er langt síðan . . . Það er alltaf gleði í kringum hana . . . (í sögu hallarinnar er getið um Katarina Stensdotter Biel- ke, hálfsystur karls konungs Knutssonar Bonde, sem var uppi um 1400. f hennar tíð var kastalinn endurbyggður, en það er ekki vitað hvort það var hún eða Nils Klausson, sonur hennar, sem stóð fyrir endur- byggingunni). — Ég finn reykjarlykt, held- ur frú Gilmark áfram. Hér hlýtur að hafa verið bruni. en það er um aldamótin 1900, svo það er ekki svo langt síðan. Maður, sem hefur hlotið mikil brunasár, talar um kæruleysi með olíulampa . . . hvað getur það verið? (Eitt af íbúðarhúsum skóla- nema brann til kaldra kola og einn kennari brann inni. Elds- upptök urðu aldrei kunn). Hver er þaö sem gengur um á nóttunni? — Nú mun ég fá að vita hver það er sem gengur um á nótt- unni, segir frú Gilmark, eftir stutta þögn. — Það er alls ekki neinn af þeim fjölskyldum, sem hér hafa búið. Mér er sagt að jörðin hafi verið hlutuð í sundur og eitthvað af henni selt; það var í lok 18. aldar. Ég fæ ekki að vita hvað kaup- andinn heitir, en hann var dug- legur bóndi; mér sýnist hann vera eins konar ráðsmaður, hann er alls ekki líkur þeim mönnum sem hér voru á und- an honum. Maðurinn sem þá býr í höllinni er þarna, ég sé hann í einhvers konar einkenn- isbúningi, ég held hann sé ma- jór. En hann er ekki litríkur persónuleiki. Frú Gilmark segir frá ýmsu öðru, stekkur milli alda. Hún segir frá veiðum, hornablæstri, hestum á stökki, lífi og fjöri, það er eins og veggir hallar- innar segi henni frá liðnum at- burðum á þessum stað. Stund- um á hún erfitt með að greina í sundur hljóð og tal, persón- ur og tímabil. Klukkan hefur gengið sinn gang. Myndavélin hefur suðað einhljóma frá því klukkuna vantaði korter í eitt þangað til hún er korter yfir tvö. Arv- holm verkfræðingur tilkynnir að ekkert hafi komið fram á 5. TBL. VIKAN 31

x

Vikan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.