Vikan - 10.05.1973, Side 14
músík með meiru
ALICE
COOPER
„Alice, Alice, Alice,” öskruöu
nokkur hundruö hálf-brjálaöra
aödáenda, þegar bláa, rauða og
hvita þota hljómsveitarinnar,
Alice Cooper, lenti á Prestwick
flugvelli i Glasgow i upphafi
þessa árs. Það var upphaf á
margumræddri Evrópuferö
hljómsveitarinnar. — Þegar þeir
gengu niður landganginn, mjög
svo ánægðir meö þær góöu við-
tökur, sem þeir fengu, breyttust
skyndilega kringumstæður. Hinir
áköfu aðdáendur höfðu brotið
niður hindranir, sem voru á milli
þeirra og hljómsveitarinnar, og
streymdu i átt til þeirra félaga,
sem urðu að taka á sprett upp i
bilana, sem biðu þeirra.
Hurricane Alice eða Hvilfirbylgja
Alice, eins og Glasgow blöðin
kölluðu hann daginn eftir, var
komiö I öruggt fylgsni i Central
hótelinu. Næstu 24 timar urðu
þeir ægilegustu og kannski eftir-
minnilegustu i sögu hljóm-
sveitarinnar.
Upphaf hryllingsins.
Forleikur þess, sem verða átti,
varö i Glasgow, tveimur dögum
áöur en hljómsveitin kom
þangað. Alice Cooper, þá i New
York, las um ólæti, sem orðið
höfðu viö knattspyrnuleik i
Glasgow. Mynd á forsiðu London
Times sýndi unga stúlku borna
burt af leikvanginum með hnif á
kafi i höfðinu. Ahrifamáttur
poppstjörnunnar sýndur svart á
hvitu. Keimlikt atriði er aö finna i
prógrammi Alice Cooper. —
Skyldi einhver ekki vita hvernig
hljómleikar Alice Cooper eru, þá
samanstanda þeir af hryllings-
atriðum og tónlist. Alice er
hengdur, hálshöggvinn og þar
fram eftir götunum. Allt er þetta
Alice Cooper: t Munchen kom
heill sirkus á flugvöllinn til að
taka á móti honum og hann hélt
inn til borgarinnar á baki fils,
sem flutti hánn til sirkus-
tjaldsins, þar sem hljómleikar
kvöldsins skildu haldnir. Hann er
þjóöarhetja i Þýzkalandi. Fyrsta
L.P. platan hans, Prettys for you,
var bezt stjórnaða L.P. platan
fyrir fjóru og hálfu ári siðan.
gert mjög raunverulegt.
Myndirnar hér i opnunni tala
annars sínu máli um þann
fjölbreytileika og „aksjón”, sem
sjá má á hljómleikum Alice
Cooper. — En þegar fyrrgreindur
atburður á knattspyrnuleiknum i
Glasgow varð ljós, hætti Alice
Cooper viö samsvarandi atriði i
prógramminu. Það var þvi engin
furða, þó þeir félagar væru litið
eitt smeykir við sjálfa sig, þegar
þeir komu til Glasgow.
t fyrstu virtist, sem1 verstu
hu|sanir þeirra ætluðu að koma
fram, umkringdir hundruðum
æstra aðdáenda, var þeim haldið
föngum á hótelinu. Fjörutiu lif-
vöröum hafði verið bætt við þá,
serh fyrir voru, þegar hljóm-
sveitin kom til Playhouse, þar
sem hl jómleikarnir skyldu
haldnir.
Hinir þrjú þúsund aðdáendur,
fögnuðu Alice með ólátum og
skrflshætti, sem aldrei fyrr hafði
sézt i hinu virðulega Skotlandi.
Aður en stjarnan haföi á sviðið
komið, höfðu hundruð stúlkna
brotizt i gegn um varnarraðir
lögreglumanna og brotið niður
þrjár sætaraðir um leið. Þá
skyndilega varð mikiö reykský á
sviöinu og þegar það hægt en
sigandi eyddist, birtust Alice
Cooper og félagar i allri sinni
dýrö, Alice iklæddur gulli og
svörtu leðri, með svartan farða i
kringum augun, leiddi hljóm-
sveitina þar inn i upphaf hljóm-
leika, sem liklega verða skráðir
með gulli i sögu hljóm-
sveitarinnar.
Með hreyfingum, sem sæma
myndu hvaða ballerinu sem væri,
svlfur hann um sviðið. Gæludýrið
hans, snákurinn Yvonne, hringar
sig af ástúð um háls hans og
mjaðmir og lætur sig siðan renna
með þokkafullum hreyfingum
niður á milli leggja hans. Alice
svéiflar sverði umhverfis sig, svo
áhorfendur hálftryllast af
hræðslu. Skyndilega hefur hann
tekið sér brotna flösku i hönd og
ógnar trommuleikara hljóm-
sveitarinnar, Neil Smith. Allt i
einu stingur hann flöskunni á kaf
milli herðablaða Smiths. „Hengið
Nýyfirstaðin Evrópuferð, gerði
Alice Cooper að eftirlýstasta
manni heims. Margrét prinsessa
fór fram á sérstakan konsert og
að öllum likindum fer hann til
Englands i þessum mánuði tif að
halda enn fleiri hljómleika.
hann”, hrópa áhorfendur i
tryllingsæði. Þeir eru hrifnir
með, blóðþorstinn leynir sér ekki.
Alice er bundinn og dreginn I átt
til gálgans, ólæti brjótast út
meöal áhorfenda og um stundar-
sakir virðist sem Alice hafi tapað
stjórn á aðdáendum sinum.
Skozkir lögreglumenn draga
nokkra unglinga burtu i skyndi og
sýningin heldur áfram meö
trumbuslætti. Það var verið að
setja snöruna um hálsinn á Alice.
Skyndilega var sem allt væri yfir-
staðið. Alice dinglaði I snörunni
14 VIKAN 19.TBL.